Víkurfréttir - 16.06.2004, Blaðsíða 24
sportið
24 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Sparisjóðurinn styrkir GS
Sparisjóðurinn í Keflavík og Golfklúbbur Suðurnesja hafa gert með sér samstarfssamning til fimm ára sem var undirrit-
aður nú á dögunum. Samningurinn felur í sér víðtækan styrk til starfsemi GS og má m.a. nefna Sparisjóðsmótið, keppn-
issveitir GS og fær unglingastarf klúbbsins einnig sinn skerf. Sparisjóðurinn hefur verið einn af bakhjörlum GS undan-
farin ár og með samningnum er það samstarf treyst og aukið enn frekar. Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri og
Gunnar Þórarinsson, formaður GS lýstu yfir ánægju með samvinnuna við undirritun samningsins og töldu að
báðir aðilar myndu njóta góðs af honum í náinni framtíð.Laugardaginn 5. júní sl.fór fram árlegt Íslands-mót ÍF í frjálsum íþrótt-
um utanhúss á Kópavogsvelli.
Keppt var í flokki hreyfihaml-
aðra, þroskaheftra og blindra.
Nes átti þar fjóra keppendur í
flokki þroskaheftra sem stóðu
sig frábærlega og voru á palli í
öllum greinum sem þeir kepp-
tu í þar á meðal unnu þeir þre-
falt í kúluvarpi karla á mótinu.
Keppendur frá Nes voru: Arn-
ar Már Ingibjörnsson sem náði
1. sæti, gull (Íslandsmeistari) í
100m hlaupi, hástökki og lang-
stökki, 2. sæti, silfur í kúlu-
varpi og spjótkasti og 3. sæti
brons í kringlukasti, Guð-
mundur Ingi Einarsson sem
náði 1. sæti, gull (Íslandsmeist-
ari) í kúluvarpi, kringlukasti
og spjótkasti, Sigríður Karen
Ásgeirsdóttir náði 1. sæti, gull
(Íslandsmeistari) í hástökki og
kringlukasti, 2. sæti, silfur í
langstökki, spjótkasti og kúlu-
varpi, Ragnar Ólafsson náði í
3. sæti, brons í kúluvarpi og
langstökki. Árangur keppenda
er að finna á vefsíðu félagsins
www.gi.is/nessport undir mót.
Krakkar úr 3. flokkiknattspyrnuliðs Reynisog Víðis hlupu á laugar-
daginn alla leið til Hafnar-
fjarðar með áskorun til stjórn-
valda um flýtingu á tvöföldun
Reykjanesbrautar.
Krakkarnir höfðu staðið fyrir
undirskriftasöfnun og fengið nær
4000 undirskriftir sem þau af-
hentu Guðmundi Hallvarðssyni,
formanni samgöngunefndar Al-
þingis, við komuna í Hafnarfjörð
eftir að hafa hlaupið allt frá
hringtorginu við Mánagrund.
Reynir Sveinsson hjá Víði sagði
stemmninguna á leiðinni hafa
verið frábæra þrátt fyrir slæmt
veður, rigningu og mótvind. „Það
sem kom mér þó helst á óvart var
hversu krakkarnir voru jákvæðir
og til í að leggja mikið á sig.“
Skarphéðinn Guðmundsson liðs-
maður Víðis var að öllum ólöst-
uðum maður dagsins þar sem
hann hljóp 27 kílómetra af 38 og
þar af síðustu 20 kílómetrana án
hvíldar.
Reynir sagði móttökurnar hafa
verið góðar og bætti því við að
það hafi verið þreyttir krakkar
sem héldu heim í rútunni.
Þess má einnig geta að krakkarn-
ir voru líka að safna áheitum til
styrktar keppnisferðalagi til Sví-
þjóðar og er rétt að benda á að sú
söfnun stendur enn yfir og er
hægt að leggja þeim lið með því
að hringja í síma 902-5050 og
verða þá 300 kr. gjaldfærðar af
símreikningi.
„Ég vona bara að Suðurnesja-
menn séu tilbúnir til að leggja
krökkunum lið eftir það sem þau
lögðu á sig fyrir þetta sameigin-
lega hagsmunamál“.
3. flokkur Keflavíkur
enn ósigraður
Stelpurnar í 3. flokki Keflavíkur
sigruðu Reyni/Víði 5-1 í Kefla-
vík á föstudag. Helena Rós Þór-
ólfsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir
Keflavík, þar af eina markið sem
skorað var í fyrri hálfleik. Karen
Sævarsdóttir og Eva Kristinsdótt-
ir skoruðu sitthvort markið fyrir
Keflavík. Hanna María skoraði
fyrir Reyni/Víði.
Keflavíkurstelpurnar hafa nú
spilað fjóra leiki og unnið þá alla
með markatöluna 27-3 og hefur
Helena Rós gert 11 mörk í þess-
um leikjum.
6. flokkur Keflavíkur
stóð sig vel á Tungu-
bökkum
Um síðustu helgi lagði 6. flokkur
Keflavíkur leið sína í Mosfellsbæ
þar sem keppt var í Jako-móti
Aftureldingar. Veðrið lék svo
sannarlega við ungu knattspyrnu-
snillingana sem og þá fjölmörgu
áhorfendur sem mættu á knatt-
spyrnusvæðið að Tungubökkum.
Keflavíkurpiltar stóðu sig með
miklum ágætum og B-liðið sigr-
aði t.a.m. í öllum sínum leikjum.
Mótið tókst í alla staði mjög vel
og var Mosfellingum til mikils
sóma. Piltarnir fóru glaðir í
bragði heim með verðlaunapen-
ing, vatnsbrúsa, liðsmynd og lít-
inn fótboltakall.
Nes með átta Íslandsmeist-
aratitla á Íslandsmóti ÍF
Fótboltakrakkar
skora á stjórnvöld
25. tbl. 2004 32 sidur 15.6.2004 15:46 Page 24