Víkurfréttir - 16.06.2004, Síða 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
G runnskólar á Suðurnesjum slitu skólastarfi ísíðustu viku og útskrifuðu nemendur úr 10.bekk. Útkoma úr samræmdu prófunum var
misjöfn meðal skóla en Grunnskóli Grindavíkur var
með hæstu meðaleinkunn skóla á Suðurnesjum 6,85
og nokkru ofar en landsmeðaltalið sem var 6,45.
Holtaskóli kom næstur með meðaleinkunnina 6,50 og
meðaltal einkunna samræmdra prófa í Heiðarskóla
var 6,18.
Víkurfréttir leituðu til skólastjóra grunnskóla á Suðurnesj-
um og fengu viðbrögð þeirra við útkomu úr samræmdu
prófunum.
Holtaskóli
Jónína Guðmundsdóttir, skólastjóri
Ég er mjög ánægð með mitt fólk og þau uppskáru í sam-
ræmi við þá vinnu sem þau höfðu lagt á sig. Það er gott
námsfólk í skólanum og þau mynduðu námshópa seinni
hluta vetrar með dyggri aðstoð foreldra. Krakkarnir undir-
bjuggu sig mjög vel, sinntu náminu vel bæði í skólanum
og utan og þau uppskáru samkvæmt því. Við erum að
sjálfsögðu mjög stolt af því að Holtaskóli sé með hæsta
meðaltal einkunna í 10. bekk af skólum á Suðurnesjum.
Við erum hærri en landsmeðaltalið í öllum prófum nema
einu.
Grunnskóli Grindavíkur
Gunnlaugur Dan Ólafsson, skólastjóri
Ég er mjög ánægður með árangurinn og þetta er okkar
besti árangur á samræmdum prófum. Skólinn hefur verið
að bæta árangur sinn í samræmdum prófum á undanförn-
um árum og að þessu sinni er um að ræða námslega sterk-
an árgang sem eiga áhugasama foreldra. Þegar upp er
staðið er áhugi og aðstoð foreldra við heimanám barna
sinna lykilatriði.
Grunnskólinn í Sandgerði
Guðjón Þ. Kristjánsson, skólastjóri
10. bekkur í skólanum þetta árið hefur átt á brattan að
sækja í náminu og virðast þó heldur hafa sótt í sig veðrið.
Því mun fámennari sem hóparnir eru hefur hver einstak-
lingur meira að segja í meðaltali. En ég vil taka það fram
að hópurinn sem fer úr skólanum þetta árið er einstaklega
ljúfur og ég hef fulla trú á því að þau eigi eftir að standa
sig í framtíðinni.
Gerðaskóli
Erna M. Sveinbjarnardóttir, skólastjóri
Árangurinn var hefðbundinn og sumt betra en annað. Hér
er vandað til kennslu og lítil kennaraskipti, en allur stöð-
ugleiki skiptir máli. Skólastarfið hefur verið jákvætt í vet-
ur og gengið ljúft fyrir sig. Í heildina séð erum við ánægð
með krakkana okkar og ég treysti þeim í hvað sem er í
framhaldinu, en auðvitað hefðu kannski sumir þurft að
bretta frekar upp ermar í náminu.
Heiðarskóli
Gunnar Jónsson, skólastjóri
„Þessi árangur var viðunandi þó að alltaf megi gera betur.
Annars lít ég ekki á útkomu úr samræmdum prófum sem
einhvern allsherjar dóm yfir hæfni nemenda heldur bara
eitt mat, en stór hópur nemenda úr skólanum stóð sig afar
vel.“
Myllubakkaskóli
Sigurður Ingimundarson, skólastjóri
Sigurður Ingimundarson, annar skólastjóra Mylllubakka-
skóla, sagði árangurinn hjá þeim vera misjafnan eftir fög-
um. „Við héldum okkur í landsmeðaltali í stærðfræði og
erum mjög ánægð með það og stefnum á að gera betur á
næsta ári“.
Sigurður bætti því við að lykilatriðið á bak við árangur í
skóla væri þáttur heimilanna og að foreldrar tækju virkan
þátt í námi barnanna. „Annars er þetta bara einkunn úr
einu prófi en ekki einhver lokadómur um framtíð þeirra“.
Njarðvíkurskóli
Gylfi Guðmundsson, skólastjóri
„Það er margt afburðarfólk í útskriftarhópnum en hins
vegar er einnig stór hópur sem dregur niður meðaltalið.
En þetta er alltaf slagurinn stóri að ná árangri.
Lykilatriðið er baklandið þ.e. að foreldrar sýni námi barn-
anna meiri áhuga og ef að það er í lagi erum við á réttri
leið.“
Skólaslitin voru þau síðustu hjá Gylfa og segist hann sátt-
ur við búið sem hann skilar af sér enda sé skólinn í góðum
höndum. „Ég hef engar áhyggjur af framtíðinni og er viss
um að Lára á eftir að standa sig frábærlega. Ég hef unnið
með henni í átta ár og hefði ekki viljað sjá nokkurn annan
í stöðunni.“
Stóru-Vogaskóla
Snæbjörn Reynisson, skólastjóri
Þegar einkunnir á samræmdu grunnskólaprófi eru bornar
saman er vert að hafa eftirfarandi í huga: Samræmd próf
eru ekki lengur skylda í 10. bekk og mjög misjafnt er milli
skóla hve hátt hlutfall nemenda tekur þau. Hæst er hlut-
fallið í íslensku, stærðfræði og ensku en í samfélagsfræði
og náttúrufræði er hlutfallið víða mjög lágt.
Rannsóknir sýna að sterkustu forspárþættirnir varðandi
námsgengi tengjast menntun foreldra. Menntunarlegur
bakgrunnur foreldra getur verið mjög breytilegur milli
skólahverfa, jafnvel innan sama sveitarfélags. Þar sem
menntun foreldra er í lægri kantinum reynir meira á færni
skólanna til að brúa það bil sem skapast milli nemenda
sem þannig eru staddir og þeirra sem eiga bakhjarl í
skólareyndum foreldrum.
Í þessu kristallast, að mínum dómi, vandamál sem og
sóknarfæri margra landsbyggðarskóla.
N ítjánda til 28. maí fóru 10. bekk-ingar Myllubakkaskóla ásamtþrem kennurum, einu foreldri
og ritara skólans í vorferð. Farin var
hringferð um Ísland, með viðkomu í
Færeyjum.
Í ferðinni um Ísland var gist í Grunnskól-
anum á Stöðvarfirði og í skólabúðum að
Reykjum í Hrútafirði. Á báðum stöðum
var tekið á móti okkur með miklum höfð-
ingsskap enda eru gamlir Keflvíkingar
húsráðendur þar.
Á Seyðisf irði gerðum við
lykkju á leið okkar, Ingiber ók
glænýjum fararskjótanum frá
SBK um borð og við sigldum
með Norrænu til Færeyja. Gist
var í svefnpokaplássi um borð.
Við höfðum fjóra 9 manna
klefa. Hver klefi var eins og
skápur og kojunum raðað eins og
u-i í þrjár hæðir. Þar gilti:
,,þröngt mega sáttir sitja“ enda
freistuðust nokkrir til að vaka
heldur lengi. Veitingastaðir, verslanir,
spilasalir og diskótek voru spennandi og
ýmsir þurftu að prófa framandi ístegundir.
Í Færeyjum tóku foreldrar og færeysku
kunningjar okkar og vinir á móti okkur og
hjá þeim dvöldum við í góðu yfirlæti.
Margt var til gamans gert og ýmsir staðir
skoðaðir. Katrín Reynisdóttir ,,Njarðvík-
ingur“ var leiðsögumaður okkar í Þórs-
höfn og fór með okkur, í suð-
rænni sólskinsblíðu, í gegnum
Viðargerði niður að Þinganesi. þar
tók á móti okkur Finnur Jakobsen
tengdafaðir Katrínar en hann er
áhugamaður um varðveislu þessa
gamla bæjarhluta. Hann sagði
okkur sögu staðarins. Í Þórshöfn
dönsuðum við einnig færeyskan
dans í Hornahúsinu, heimsótt-
um Eysturskúlann, fórum í
sund, keilu og versluðum.
Í Norðurlandahúsinu fór-
um við á ,,Stjörnuskot“
tónleika ungs, færeysks
tónlistarfólks. þetta var
stórkostleg upplifun, boðið var upp
á klassík, rokk, kórsöng, einsöng og
allt sem nöfnum tjáir að nefna.
Skærasta stjarnan var Brandur
Enni sem kom og heilsaði upp á ís-
lensku krakkana eftir tónleikana.
Við ókum til Gjáar, litum yfir til
Kalseyjar sem tengist þjóðsög-
unni um ,,Selamóðurina“, sáum
Risann
og kerlinguna sem ætluðu að sameina
Færeyjar og Ísland en döguðu uppi og
urðu að steini og Slættaratind sem er
hæsta fjall Færeyja og siglum til Klakks-
víkur.
Í Klakksvík tók einn bæjarstjórnarmanna
á móti okkur, sagði okkur frá bænum og
bauð upp á marglita gosdrykki til hress-
,,Føroyatúrur næminga í
Námsgrein Grunnskólinn í Grindavík Holtaskóli Heiðarskóli Gerðaskóli Njarðvíkurskóli Stóru-Vogaskóli Myllubakkaskóli Sandgerðisskóli Landsmeðaltal
Íslenska 6,8 6,9 6,8 6,8 6,4 6,3 6,1 6,1 6,8
Stærðfræði 6,8 6 5,7 4,7 5,2 4,6 5,3 4,3 5,8
Enska 7,4 7,2 6,9 6,7 6,8 6,9 6,4 5,8 7
Danska 6,7 6,2 6,3 5,8 5,8 6 5,4 5,2 6,5
Náttúrufræði 6,3 6,4 5,4 5,2 5,4 5,3 5 5 6,3
Samfélagsfræði 7,1 6,3 6 6,1 5 5,3 5,3 5,2 6,3
Meðaltal 6,85 6,50 6,18 5,88 5,77 5,73 5,58 5,27 6,45
➤ Skólastarfið á Suðurnesjum:
Hæsta meðaleinkunn á samræmdum prófum í Grindavík
25. tbl. 2004 32 sidur 15.6.2004 14:45 Page 16