Víkurfréttir - 07.07.2004, Qupperneq 2
Alls bárust 50 lög íLjósalagskeppnina semhaldin er í tengslum við
Ljósanótt í Reykjanesbæ 2004
og úr þeim hafa 10 verið valin
til úrslita.
Þetta er í þriðja sinn sem keppnin
er haldin og er skemmst að
minnast vinningslagsins frá í
fyrra, „Ljóssins englar“, í flutn-
ingi Ruthar Reginalds.
Dómnefndina skipuðu Jón Ólafs-
son, Guðbrandur Einarsson,
Baldur Guðmundsson og Stefán
Hjörleifsson og þeim til halds og
trausts voru Íris Jónsdóttir fulltrúi
menningar-, íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjanesbæjar og
Valgerður Guðmundsdóttir
menningarfulltrúi Reykjanesbæj-
ar.
Það var samdóma álit dómnefnd-
ar að erfitt hefði verið að velja úr
innsendum lögum því mikið úr-
val góðra laga hafði borist. Eftir
miklar vangaveltur voru 10 lög
valin í úrslitakeppnina sem hald-
in verður í Stapa í lok ágúst.
Lögin sem valin voru til úrslita
í Ljósalagskeppninni 2004.
Mín ást
Lag: Elvar Gottskálksson
Texti: Valur Ármann Gunnars-
son
Ástin er ótrúleg
Lag og texti: Bryndís Sunna
Valdimarsdóttir
Þessa einu nótt
Lag og texti: Védís Hervör
Árnadóttir
My heart´s finally back on
solid ground
(Ath. íslenskur texti í vinnslu)
Lag og texti: Ingvi Þór Kor-
máksson
María
Lag: Magnús Kjartansson
Texti: Kristján Hreinsson
Ástaróður
Lag: Hreimur Örn Heimisson
Texti: Vilhjálmur S.V. Sigur-
jónsson
Aðeins eina nótt
Lag og texti: Örlygur Smári
Loforðin
Lag: Halldór Guðjónsson
Texti: Þorsteinn Eggertsson
Ljósadans
Lag: Halldór Guðjónsson
Texti: Kristján Hreinsson
Völd
Lag: Halldór Guðjónsson
Texti: Þorsteinn Eggertsson
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Garðaúðunin SPRETTUR
Upplýsingar í símum
421 2794, 821 4454 og 820 2905
Úða gegn roðamaur og óþrifum
á plöntum. Eyði illgresi úr gras-
flötum. Eyði gróðri úr stéttum og
innkeyrslum. Leiðandi þjónusta.
c/o Sturlaugur Ólafsson
Getum bætt við okkur nokkrum
lóðum í snyrtingu, kantskurð,
slátt og bætt mold í beð.
Upplýsingar í síma 821 4454
ÚÐA SAMDÆGURS EF ÓSKAÐ ER... OG EF VEÐUR LEYFIR
10 ljósalög í úrslit
Bæjarstjórn Árborgar ogfulltrúar Hitaveitu Suð-urnesja h/f hafa sam-
þykkt að HS kaupi rafveitu-
hluta Selfossveitna. Umsamið
söluverð er 615 milljónir
króna.
Kaupsamningur með fullnaðar-
útfærslu allra þeirra atriða er
kaupin varða og þjónustusamn-
ingar sem kaupunum fylgja
verða lagðir fyrir viðkomandi
bæjaryfirvöld í Árborg og hlut-
hafafund HS til staðfestingar
áður en kaupin taka formlega
gildi. Stefnt er að því að samn-
ingar milli aðila geti tekið gildi
eigi síðar en 1. september 2004.
Andvirði hins selda hluta verður
að 2/3 hlutum greitt með pening-
um og 1/3 hluta með hlutabréf-
um í Hitaveitu Suðurnesja h/f.
Samkomulag hefur orðið um að
hlutabréf verði metin á genginu
2,0. Jafnframt hefur orðið sam-
komulag um að frá og með gild-
istöku sölunnar lækki verðlag á
veitusvæði Selfossveitna til jafns
við verðlag í Vestmannaeyjum
eða um 10 %. Ekki er gert ráð
fyrir breytingum í starfsmanna-
haldi aðila.
Fulltrúar eigenda Selfossveitna
líta á hlutabréfaeign í HS sem
langtímafjárfestingu í öflugu
orkufyrirtæki með mikla vaxtar-
möguleika. Jafnframt eru bæjar-
fulltrúar sammála um að hand-
bært fé vegna sölunnar verði nýtt
til niðurgreiðslu skulda en einnig
til brýnna verkefna í sveitarfélag-
inu s.s. til fjármögnunar á hinum
nýja Sunnulækjarskóla.
Hitaveita Suðurnesja
kaupir rafveituhluta
Selfossveitna
➤ Útþensla hitaveitunnar:
Ruth Reginalds flutti lagið Ljóssins
Englar sem valið var Ljósalagið 2003.
28. tbl. 2004 - 24joi10 7.7.2004 12:41 Page 2