Víkurfréttir - 07.07.2004, Side 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
• KJARNABORUN
• MÚRBROT
• TÆKJALEIGA
Gerum föst verðtilboð
í öll verk, stór sem smá!
JÓN HELGASON
SÍMI 824 6670STEYPUSÖGUN
stuttar
f r é t t i r
Marineruð lúða og
lax á grillið
Stöðvaður á 160
■ Lögreglan í Keflavík stöðv-
aði ökumann á 160 km hraða á
Strandarheiði á Reykjanesbraut
aðfararnótt mánudagsins. Átta
ökumenn voru stöðvaðir fyrir
hraðakstur á brautinni frá klukk-
an 00:55 til rúmlega tvö sun-
nudagsnóttina.
Sjö hávaðaútköll
um helgina
■ Lögreglan í Keflavík hafði
afskipti af nokkrum krökkum í
Reykjanesbæ á föstudagskvöld
vegna brota á útivistarreglum.
Aðfararnætur laugardags og
sunnudags fékk lögreglan í
Keflavík sjö útköll þar sem
kvartað var undan hávaða í
heimahúsum. Að öðru leyti var
helgin róleg, enda um næst-
stærstu ferðahelgi landsins að
ræða.
Mannlaus bíll fór
á Hafnargöturúntinn
■ Mannlaus bíll rann úr bíla-
stæði við Hafnargötuna og fór
þvert yfir götuna og hafnaði þar
á öðrum bíl í bílastæði framan
við tryggingafélagið Sjóvá Al-
mennar. Að sögn lögreglu varð
tjónið ekki mikið. Annars hefur
verið lítill erill hjá lögreglu-
mönnum, að sögn varðstjóra.
Ók ölvaður á
stöðvunarskilti
■ Ekið var á stöðvunarskilti á
gatnamótum í Grindavík um
klukkan fjögur aðfararnótt föstu-
dagsins. Ökumaður sem grunað-
ur er um ölvun við akstur missti
stjórn á bifreið sinni með þeim
afleiðingum að hún fór á skiltið
sem brotnaði við áreksturinn.
Olía lak úr bifreiðinni eftir
áreksturinn og dreifðist um göt-
una. Ökumaður bifreiðarinnar
hélt af vettvangi fótgangandi en
náðist skömmu síðar.
Bæjarráð Garðs tekur und-
ir áskorun um flýtingu
framkvæmda við Reykja-
nesbraut
■ Á fundi bæjarráðs Garðs
30.júní s.l. lá fyrir bréf frá 3.flok-
ki karla og kvenna í Víði og
Reyni varðandi áskorun um flýt-
ingu framkvæmda við tvöföldun
Reykjanesbrautar. Bæjarráð
fagnar frumkvæði Víðis og
Reynis í þessu máli og tekur
heilshugar undir áskorunina.
Á fundi bæjarráðs Garðsvar eftirfarandi fært tilbókar: Gerð var grein
fyrir fundi bæjarstjóra og
varaforseta bæjarstjórnar með
heilbrigðisráðherra og emb-
ættismönnum ráðuneytisins
um stöðu og uppbyggingu
öldrunarmála á Suðurnesjum.
Einnig lá fyrir útskrift úr fundar-
gerð Bæjarráðs Reykjanesbæjar
frá 24.06.04(18.mál) „Tilkynning
heilbrigðisráðuneytisins v/hjúkr-
unarheimilis.Upplýst var að við-
ræðuhópi hefur verið komið á
með bæjarstjóra Reykjanesbæj-
ar,framkvæmdastjóra DS og full-
trúum ráðuneytisins.“
Miðað við yfirlýsingar heilbrigð-
isráðherra að litið yrði á Suður-
nesin sem heild þegar ákvörðun
yrði tekin um uppbyggingu öldr-
unarheimila og með tilliti til þess
að núverandi hjúkrunarheimili
DS,Garðvangur, er staðsett í
Garði óskar bæjarráð eindregið
eftir því við ráðherra að fulltrúi
bæjaryfirvalda verði tilnefndur í
viðræðuhópinn.
Garðmenn skora á
heilbrigðisráðherra
Eins og
birst hefur í
ne tú tgá fu
Víkurfrétta
hefur verið
s to fnaður
undirbún-
ingshópur
vegna bygg-
ingar hjúkr-
unarheimilis í Reykjanesbæ.
Þessi hópur er skipaður fulltrúum
heilbrigðisráðuneytis, bæjarstjóra
Reykjanesbæjar ásamt fram-
kvæmdastjóra DS, sem rekur
Garðvang í Garði og Hlévang í
Reykjanesbæ. Ég vænti þess að
fulltrúi DS sé skipaður í stjórn
DS sem fagaðili þ.e.a.s til þess
að veita upplýsingar um þörf fyr-
ir hjúkrunarrými og slíkt. Nú
bregður svo við að Garðmenn
hafa óskað eftir því að fá skipað-
an fulltrúa í þessa nefnd á grund-
velli þeirra meintu skoðunar heil-
brigðisráðuneytisins að litið sé á
Suðurnes sem eitt svæði þegar
kemur að öldrunarmálum. Bæj-
arstjóri Garðs ásamt varaforseta
hafa átt fund með heilbrigðis-
ráðuneytinu vegna öldrunarmála
og ég hef það fyrir víst að þar
hafi þeir lagt mikla áherslu á
áframhald uppbyggingar öldrun-
arþjónustu í Garði í stað þess að
hefja nýbyggingu í Reykjanesbæ.
Slíkt væri hagkvæmara.
Félagsmálaráðuneytið hefur lagt
áherslu á sameiningu sveitarfé-
laga á sama atvinnusvæði, en á
það hefur bæjarstjórn Garðs ekki
viljað hlusta. Hins vegar leyfa
þeir sér að óska eftir setu í nefnd
sem stofnuð er til þess eins að
skoða möguleika á byggingu
hjúkrunarheimilis í Reykjanes-
bæ, og nota til þess sams konar
rök og félagsmálaráðuneytið um
að Suðurnesin séu eitt svæði.
Hvað vakir fyrir Garðmönnum?
Ætla þeir að reyna að koma í veg
fyrir að byggt verði hjúkrunar-
heimili fyrir aldraða í Reykjanes-
bæ?
Guðbrandur Einarsson
bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ
Hvað vakir fyrir
Garðmönnum?
➤ Guðbrandur Einarsson skrifar:
➤ Málefni aldraðra á Suðurnesjum:
Það voru skrautlegir krakkar sem skriðu út úr Fjörheimum í vikunni en þau
voru öll klædd í sannkölluð furðuföt. Krakkarnir voru á leikjanámskeiði Fjör-
heima. Krökkunum líkuðu fötin vel og þarna mátti sjá sjóræningja, Batman
sást bregða fyrir; þarna voru prinsessur og prinsar; kúrekar og hefðarmeyjar
svo eitthvað sé upp talið. Krakkarnir stilltu sér að sjálfsögðu upp fyrir mynda-
töku og eins og sjá má á myndinni var hópurinn litríkur.
24 TÍMA FRÉTTAVAKT
898 2222
Skrautlegir krakkar
➤ Fjölbrautaskóli Suðurnesja:
S kapast hefur vandræða-ástand í FjölbrautaskólaSuðurnesja en aldrei
hafa fleiri sótt um skólavist þar
áður. 960 nemendur sóttu um í
dagsskóla og 160 í öldunga-
deildina. Ekki er vitað hvort
allir komast að vegna þess að
enn er óvíst um fjárveitingar til
framhaldsskólanna.
Ólafur Jón Arnbjörnsson, skóla-
meistari Fjölbrautaskóla Suður-
nesja, sagði í samtali við Víkur-
fréttir að óvíst væri um inntöku
allra þeirra sem sóttu um skóla-
vist eftir 11. júní en þá rann um-
sóknarfrestur í skólann út.Nem-
endum í 10. bekk grunnskólanna
hafa boðist að taka svokalla
„flýtiáfanga“ undanfarin ár en
þá taka þeir til að mynda stærð-
fræði 103 eða ensku 103 með
grunnskólanum. Ekki er víst
hvort það verður boðið upp á
þessa áfanga í haust. Að sögn
Ólafs skýrast þessi mál í ágúst
þegar fjárveitingar verða ákveðn-
ar.
Óvíst um fjárveitingar
28. tbl. 2004 - 24Stefan7 7.7.2004 12:45 Page 6