Víkurfréttir - 11.11.2004, Síða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Ne m e n d u m h e f u r f j ö l g a ð t a l s v e r t í Grunnskóla Grinda-
víkur á yfirstandandi skól-
aári og nú þegar verkfalli var
af lýst kom í ljós að 9 nýjir
nemendur höfðu verið innrit-
aðir í skólann. Er Grunnskóli
Grindavíkur þar með orðinn
næstfjölmennasti grunnskól-
inn á Suðurnesjum.
„Við erum mjög ánægð að fá
þessa nýju nemendur í skól-
ann,” sagði Gunnlaugur Dan
Ólafsson skólast jór i þegar
Víkurfréttir kíktu í heimsókn
á dögunum.
„Fjöldinn varð mestur 455
nemendur nú fyrr í haust og er
það mesti fjöldi í sögu skólans
en fólk virðist vera mikið á far-
aldsfæti því fjölskyldur f lytja
líka í úr bænum og er fjöldi
nemenda núna 449. Það hefði
verið gaman að halda okkur
yfir 450 nemendum en við sjá-
um líka fram á að nemendum
muni fjölga enn meira miðað
við þær innritanir sem komnar
eru fram. Gert er ráð fyrir að 1.
bekkur í haust verði þrískipt-
ur, þ.e. ef fólk tekur ekki upp
á því f lytja í burtu umfram þá
sem flytja til bæjarins,” sagði
Gunn laug ur í sa mta l i v ið
Víkurfréttir.
Fjölgun nemenda í
Grunnskóla Grindavíkur
Bj ör n I n g i K nút s s on F l u g v a l l a r s t j ó r i á Keflavíkurflugvelli er á
leiðinni í frí frá og með næstu
áramótum. Jón Böðvarsson
mun taka við af Birni Inga á
meðan hann heldur til starfa
í Kanada fyrir Alþjóðaflugm
álastofnunina. „Að mínu mati
er þetta gott tækifæri til að
auka þekkinguna og endur-
nýja mig. Að sjálfsögðu er ég
spenntur,” segir Björn Ingi en
hann hann mun snúa aftur til
starfa þann 1. Júlí 2006.
„Ég hef mikla ánægju af starfi
mínu hér á Keflavíkurflugvelli
og tek við því aftur þegar leyf-
inu lýkur.”
Jón Böðvarsson er núverandi
forst jór i Ratsjá rstof nunar
e n h a n n mu n ge g n a e m -
b æ t t i f l u g v a l l a r s t j ó r a á
Kef lavíkurf lugvelli fram til
júní loka 2006, Ólafur Örn
Haraldsson hefur verið ráð-
inn forstjóri Ratsjárstofnunar
í stað Jóns.
Björn Ingi fer semf ul lt rúi
Íslands í Norðurlandasam-
starfinu til starfa hjá Alþjóða-
flugmálastofnuninni í Kanada.
„Nú er komið að okkur að
sinna þeim störfum sem við
höfum samþykkt að taka að
okkur og ég lít á þetta sem
mikið sóknarfæri fyrir mig
sem einstakling og einnig fyr-
ir Kef lavíkurf lugvöll t i l að
styrkja skilning okkar og þekk-
ingu á alþjóðaf lugvallarrekst-
ri sem og lögum og reglum er
lúta að f lugmálum í víðasta
skilningi,” sagði Björn Ingi en
Íslendingar eiga með reglulega
millibili stöðu á skrifstofu nor-
rænu sendinefndarinnar hjá
Alþjóðaf lugmálastofnuninni.
Það var Flugmálastjórn Íslands
og samgönuráðuneytið sem
ákváðu að skipa Björn í stöð-
una.
Björn hefur gegnt starfi f lug-
vallarstjóra á Kef lavíkurf lug-
vel li í sex ár og hann segir
að sú reynsla sem hann fái
hjá a lþjóðaf lugmá lastof n-
uninni komi til með að nýt-
ast vel f y r ir star fsemina á
Kef lavíkurf lugvelli. „Ég mun
kynnast betur alþjóðlegu regl-
unum og grundvel l i þeirra
með starfinu hjá Alþjóðaf lug
málastofnuninni og það mun
nýtast þegar ég sný aftur. Auk
þess sem ég tel að þetta sé tæk-
ifæri fyrir mig til að þróa mína
persónulegu færni og þroskast
í starfi,” segir Björn Ingi.
Alþjóðaf lugmálastofnunin er
stofnun á vegum Sameinuðu
Þjóðanna og starfar samkvæmt
Chicago sáttmálanum að setn-
ingu reglna og leiðbeininga um
alþjóðaflug. Í starfi sínu mun
Björn starfa sem staðgeng-
ill formanns norrænu sendi-
nefndarinnar sem er Finni og
fer meðal annars í nefndir og
ráð Alþjóðaflugmálastofnunar
innar á hans vegum.
Björn Ingi til Alþjóða-
flugmálastofnunarinnar
Nefnd sem mun fjalla um kosti og galla þess fyrir Sandgerðisbæ að
sameinast öðrum sveitarfé-
lögum á Suðurnesjum hefur
verið sett á laggirnar.
Á fundi bæjarstjórnar Sand-
gerðisbæjar í síðustu v iku
voru Rey nir Sveinsson og
Ingþór Karlsson t i lnefndir
fyrir meirihluta bæjarstjórnar
og frá minnihluta sitja Heiðar
Á sgei rs son og Óla f u r Þór
Ólafsson. Sigurður Valur Ás-
bjarnarson bæjarstjóri verður
starfsmaður nefndarinnar.
Me i r i h lut i b æ j a r s t jór n a r
Sandgerðisbæjar f lut t i t i l-
lögu um stofnun nefndarinn-
ar í kjölfar skýringa Róberts
Ragnarssonar star fsmanns
Fé l a g s m á l a r á ð u ne y t i s i n s
sem fram komu á aðalfundi
Sa mba nd s s ve i t a r fé laga á
Suðurnesjum fyrir stuttu.
Nefnd skoðar sameiningarmál
Stór kerra losnaði aftur úr pallbíl á Njarðarbraut skömmu fyrir hádegi á fimmtudag og lenti á öryggisgirðingu sem er á milli akreina.
Engar skemmdir urðu á bílum og enginn slasaðist sem má þakka
girðingunni. Ekki þarf að hafa mörg orð um hvað hefði getað
gerst ef kerran hefði lent á fullum hraða framan á bifreiðum sem
komu úr gagnstæðri átt.
Kerra hafnaði á öryggisgirðingu
8 Nær 500 grunnskólanemendur í Grindavík:
8 Flugvallarstjóri í starfsleyfi til Kanada:
8 Sandgerðisbær: