Víkurfréttir - 11.11.2004, Síða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Kona skarst á
hnakka er hún datt
Aðfararnótt laugar-dagsins var lög-reglu og sjúkrabíls
óskað að skemmtistað í
Reykjanesbæ. Kona hafði
skorist á hnakka er hún féll
aftur fyrir sig og var hún
flutt á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja þar sem læknir
gerði að sárum hennar.
Ölvaður maður
féll af reiðhjóli
Lögreglumenn við eftirlit í Grindavík veittu því athygli á
laugardagsnótt er maður á
reiðhjóli féll í götuna. Við
nánari athugun kom í ljós
að maðurinn var töluvert
ölvaður og var hann látinn
gefa öndunarsýni og kæru-
skýrsla gerð um málið.
Par handtekið með
hass og amfetamín
í fórum sínum
Lögreglan í Keflavík stöðvaði bifreið vegna gruns um fíkn-
iefnamisferli. Við leit á pari
sem var í bílnum fundust 2
grömm af meintu hassi og
1 gramm af amfetamíni.
Leitað var af fíkniefnum
á dvalarstað parsins en
þar fundust 2 grömm af
meintu hassi og ein meint
hassblanda, lagt var hald á
efnin og telst málið upp-
lýst. Parinu var sleppt að
skýrslutöku lokinni.
Ölvunaraksturinn
kostaði 130.000
krónur
Maður á fertugs-aldri var dæmdur til þess að greiða
130.000 króna sekt í rík-
issjóð eftir að hafa ekið
undir áhrifum áfengis frá
Sandgerði til Keflavíkur
í sumar. Við rannsókn
reyndist alkahólmagn í
blóði mannsins vera 2,15
prómill. Af þeim sökum
var maðurinn sviptur öku-
réttindum í eitt ár og greiði
hann ekki sektina innan
fjögurra vikna bíður hans
24 daga fangelsisvist í stað-
inn. Manninum var gert að
greiða allan sakarkostnað
og þar með talin 70.000
króna málsvarnarlaun
verjanda síns.
stuttar
F R É T T I R
Icelandair hefur tek ið í notkun nýja og glæsilega setustofu í Leifsstöð. Nýju
setustofunni er ætlað að auka
og bæta þjónustu við ört vax-
andi hóp Saga Business Class
farþega félagsins. Setustofan
er um 570 fermetrar búin full-
komnum tæknibúnaði ásamt
fjölbreyttri aðstöðu til vinnu,
slökunar og afþreyingar.
„Með verulegri lækkun við-
skiptafargjalda okkar hefur far-
þegum fjölgað stórlega á Saga
Business Class og með þessari
setustofu sem án vafa er ein
sú glæsilegasta í Evrópu erum
við að mæta þeirri fjölgun og
auka þjónustu við farþegana“,
segir María Rún Hafliðadóttir,
forstöðumaður viðskiptavina-
þjónustu Icelandair.
Nýja setustofan er norðan-
megin í suðurbyggingunni í
Leifsstöð en það var arkitekta-
stofan Form og Rými sem ann-
aðist hönnunina.
Í tilefni af opnun setustofunn-
ar mun myndlistamaðurinn
Tolli opna þar sýningu á nýjum
verkum. Sýningin er sölusýn-
ing og mun 10% af andvirði
verkanna renna til Vildarbarna,
ferðasjóðs Icelandair og við-
skiptavina félagsins fyrir lang-
veik börn og börn sem búa við
sérstakar aðstæður.
8 Ný setustofa í Leifsstöð:
Stórbætt aðstaða fyrir Saga
Business Class farþega
Sigurður Helgason forstjóri Icelandair og Ellert Eiríksson stjórnar-
formaður Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar við opnun setustofunnar.
Bæja rst jór a r f r á nor-r æ n u m v i n a b æ j u m Reykjanesbæjar voru
gestir bæjarins í síðustu viku
en sveitarfélögin hafa átt með
sér samstarf um aukna gæði
stjórnsýslu. Bæjarstjórarnir
eru Poul Erik Graversen frá
Hjörring í Danmörku, Sig
Frederikson frá Trollhattan
í Svíþjóð, Solveig Löhaugen
frá Kristiansand í Noregi og
Rolf Pag valín frá Kerava í
Finnlandi. Þeir eru ekki pó-
litískt kjörnir heldur eru þeir
ráðnir framkvæmdastjórar
(Municipal Chief Executive)
sem starfa með kjörnum bæj-
arstjóra.
Hópurinn fundaði með bæj-
aryfirvöldum og fór yfir ýmis
samstarfsverkefni auk þess
sem þeir fóru í skoðunarferð
um Reykjanesið með viðkomu
í Svartengi þar sem Albert
Albertsson fræddi gestina um
orkumál og ný justu f ram-
kvæmdir á Reykjanesinu. Að
lokum var svo slakað á í Bláa
lóninu.
Bæjarfélögin f imm starfa á
sameiginlegum vettvangi en
markmið samstarfsins er að
bæta stjórnsýsluna og auka
gæði þjónustu við íbúa með því
að deila reynslu og læra þannig
af hver öðrum. Meðal annars
hafa þau tekið þátt í saman-
burði á gæðum stjórnsýslu í
gegnum Bertelsmannsprófið
sem fyrst var lagt fyrir sveitar-
félögin árið 2000.
Bæjarstjórar norrænna
vinabæja í heimsókn
8 Norrænt samstarf á Suðurnesjum:
Íþróttafélagið NES heldur myndakvöld
með myndum frá Olympíuför Jóhanns
Rúnars Kristjánssonar til Aþenu í
Njarðvíkurskóla á föstudag kl. 19-21.
Allir félagar í NES og stuðnings-
menn hvattir til að mæta.
Minnum á að sölufólk frá NES verður
á ferðinni um helgia að selja jólakort.
Takið vel á móti sölufólkinu!
Myndakvöld hjá NES