Víkurfréttir - 11.11.2004, Page 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Hafnargötu 49 • 230 Keflavik • Sími 421 5757 • Fax 421 5657
Þökkum samstar f ið !
s tú lkan 2004
Dæmi eru um það að fólk fái læknisvott-orð í gegnum síma
sem síðan er framvísað
hjá Svæðisvinnumiðlun
Suðurnesja. Þessi vottorð eru
notuð til að komast hjá vinnu
og til að halda atvinnuleysis-
bótum. Atvinnuleysi var
rætt á aðalfundi Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum
í Sandgerði á dögunum.
Ketill Jósepsson, forstöðu-
maður Svæðisvinnumiðlunar
Suðurnesja ræddi þar um
ástandið á atvinnuleysis-
skránni og hvort atvinnuleys-
ið væri dulbúið.
Um fjórðungur atvinnulausra
á Suðurnesjum er ungt fólk
sem hefur hætt í námi, fólk
sem flækist á milli vinnustaða
og ber enga ábyrgð á sér né
öðrum, eins og það var orðað
í fyrirlestri Ketils Jósepssonar
á aðalfundi SSS. Hann sagði
þetta fólk ekki vera að standa
sig á vinnumarkaði. Það virtist
hins vegar vita allt um rétt-
indi sín en minna um skyldur
og ábyrgð, sagði Ketill.
Nú eru um 250 manns án
atvinnu á Suðurnesjum og
í fyrsta skipti í langan tíma
er ekki mest atvinnuleysi á
Suðurnesjum - Suðurnesin
eru í 3. sæti þessa stundina.
Svæðisvinnumiðlun Suður-
nesja er með ýmis úrræði
fyrir atvinnulausa. Á síðasta
ári fengu 44 aðilar inni í sér-
stökum verkefnum, 63 fengu
starfsþjálfunarsamninga, tveir
námssamningar voru gerð-
ir, 141 aðili sótti námskeið,
tveir vinnustaðanámssamn-
ingar voru gerðir og 11 styrkir
voru veittir vegna námskeiða.
Í umræðum um atvinnuleysið
spurði Jón Gunnarsson, al-
þingismaður, af því hvort það
væri raunin að margir þeirra
sem væru á atvinnuleysis-
skrá væru þar af því að það
væri hagstæðara en að stunda
vinnu. „Getur verið að stór
hluti þeirra sem nú eru á skrá
eigi heima annars staðar en
á atvinnuleysiskrá? Er þetta
raunatvinnuleysi?“ Spurði Jón.
Ketill Jósepsson sagði að alltaf
væri ákveðinn hluti þeirra
sem væru á atvinnuleysisskrá
aðilar sem ættu heima annars
staðar. „En hvar á þetta fólk
að vera? Það er fátt um svör.
Hins vegar höfum við brugðið
á það ráð að vísa fólki til fél-
agsþjónustu sveitarfélaganna,
þegar það á ekki lengur innan-
gengt hjá okkur“, sagði Ketill.
Margrét Frímannsdóttir, al-
þingismaður, sagði það hafa
stungið sig að heyra um
þennan hóp sem vill ekki
vinna, en veit allt um rétt-
indi sín. Brottfalli úr skóla
og agaleysi þurfi að taka á.
Guðbrandur Einarsson, bæjar-
fulltrúi og verkalýðs-
foringi, sagði það hættulegan
samanburð að tala um háar
atvinnuleysisbætur eða lág
laun. Atvinnuleysisbætur
væru trygging hins vinnandi
manns þegar hann missir
vinnuna. Guðbrandur sagði að
hann vildi sjá atvinnuleysisb-
ætur miklu hærri. Hann sagði
fyrirtæki vera að stækka og
mun hreyfanlegri. Þess vegna
geti fólk misst vinnuna með
litlum fyrirvara. Hann sagði
það verk verkalýðshreyfingar-
innar á næstu árum að tekju-
tengja atvinnuleysisbætur.
Jóhann Geirdal, bæjarfulltrúi,
sagði að flokka mætti atvinnu-
lausa í þrjá hópa. Þarna væri
fólk á vinnumarkaði sem hefur
ekki starf. Fólk í árstíðar-
bundnum eða hlutastörfum
og í þriðja lagi væri þarna fólk
sem í raun er ekki á vinnu-
markaði en er að ná sér í fram-
færslu. Jóhann sagði að fólk
ætti ekki að þurfa að lifa á lyg-
inni og setja sig á atvinnuleys-
isskrá til að fá framfærslu sem
ætti að koma annars staðar frá.
Ketill Jósepsson hjá Svæðis-
vinnumiðlun Suðurnesja
sagði stærstan hluta þess
fólk sem er á atvinnuleysis-
skrá vera ófaglært fólk. Yfir
60.000 manns á vinnumarkaði
í dag er fólk með grunn-
skólamenntun eða minna.
Fólk fær læknisvottorð
í gegnum síma
8 Atvinnuleysi rætt á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum:
Hö
nn
un
: G
RÁ
GÁ
S e
hf
.
Ketill Jósepsson á fundi SSS
á dögunum. Í máli hans kom
fram að dæmi eru um það að
fólk fái læknisvottorð í gegnum
síma sem síðan er framvísað hjá
Svæðisvinnumiðlun Suðurnesja.
Þessi vottorð eru notuð til að
komast hjá vinnu og til að halda
atvinnuleysisbótum.
Skráning í
sönvakeppni
Fjörheima
Verið er að skrá kepp-
endur í söngvakeppni
Fjörheima sem fer fram
18. nóvember. Áhugasamir
geta haft samband við
Önnu Albertsdóttur
starfsmann Fjörheima.