Víkurfréttir - 11.11.2004, Side 15
VÍKURFRÉTTIR I 46. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 11. NÓVEMBER 2004 I 15
HAFNARGÖTU 45 • SÍMI 421 3811
GLERAUGNAVERSLUN KEFLAVÍKUR
Optical Studio
Fyrstir með
þægindin!
Fyrstir með
litina!
Upplifðu
fyrstu lituðu einnota daglinsurnar á markaðnum
Kannaðu málið hjá okkur
Fitnum við af mat?
Þú fitnar ef þú borðar fleiri
hitaeiningar en þú brennir
með hreyfingu og grunnefn-
askiptum. Þetta eru sann-
leiksorð sem allir ættu að vita.
Engu skiptir hvert hlutfall
prótíns, kolvetna, fitu eða al-
kóhóls er í orkupottinum. Ef
samtala hitaeininga er hærri
en brennslan er, þá fitnarðu.
Hægt er að velja um fjöldann
allan af matarkúrum, en eng-
inn matarkúr er þess megn-
ugur að þú getir borðað eins
mikið af hitaeiningum og þú
vilt en samt losnað við auk-
akílóin. Ef einhver heldur öðru
fram er hann á villigötum!
Það geta allir lést sem ske-
ra niður hitaeiningarnar
og auka við sig hreyfingu
eða æfingar. Mælt er með
klukkustundar æfingum
eða hreifingu á dag fyrir al-
menning ef þeir vilja léttast.
Jafnvægi hitaeininga
Að finna jafnvægi á milli
hitaeiniga sem þú neytir og
þeirra sem þú brennir er
öruggast og heilbrigðasta
leiðin til að léttast. Það eru
u.þ.b. 7000 h.e í einu kílói af
líkamsfitu og því þarftu að
brenna 7000 h.e aukalega til
að missa 1 KG af fitu . Ef þú
eykur hreyfinguna um 500
h.e á dag og minnkar neyslu
um 500 h.e. á dag getur þú
misst 1 KG af fitu á viku á heil-
brigðan og skynsaman máta.
Hvað er eðlilegt að
léttast hratt?
Í öllum venjulegum tilfell-
um er það um hálft til eitt
kíló á viku. Allt umfram það
vekur upp spurningar um
það hvort léttingin sé í öðru
formi en fitu, þ.e.a.s voðar-
ýrnun og vatni. Hugmyndin
um að léttast um 3-4 kg á
viku er út í hött. Til þess að
það gerist þarf að brenna um
30,000 auka hitaeiningum !
Hve mikið af vatni á dag?
Öll efnaskipti eiga sér stað í
vatni og líkaminn þarf á því að
halda til þess að viðhalda heil-
brigði. Þess vegna hefur vatns-
drykkja áhrif á fitubrennslu
og með því að drekka nóg af
vatni minnkar álag á nýrun
og líkaminn á auðveldara með
að losa sig við ýmis úrgangs-
efni. Hæfilegt vatnsmagn yfir
daginn eru 8 glös eða 2,5 lítri.
Hvað skiptir mestu máli í
því að ná góðum árangri?
Mestu máli skiptir mataræðið
í samblandi við æfingarnar
og þolfimi. Einhver sagði að
þegar menn stundi æfingar
og ætli sér að léttast, þá skipti
mataræðið 60% máli en æfin-
garnar 40% máli. Fitulítið
mataræði í bland við brennsl-
uríkar æfingar þar sem saman
fara margar endurtekningar
á stóra vöðvahópa og ein-
hverskonar þolæfingar. Ef
æft er í tækjasal þrisvar í viku
væri gott að stunda þolfimi
eða hjóla t.d tvisvar í viku.
Perlu Gullmolar
8Sigríður Kristjánsdóttir tók saman
Víkur f rét t i r á Net inu - 9 . s tærst i ve fur lands ins