Víkurfréttir - 11.11.2004, Side 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Fjarskipti á flugslysa-
æfingu gengnu upp!
8 Umfangsmikil flugslysaæfing sviðsett á Keflavíkurflugvelli
Fjölmenn flugslysaæf-ing sem haldin var á Keflavíkurflugvelli
á laugardag tókst mjög
vel að mati aðstandenda.
Sérstaklega náðist góður ár-
angur á sviði fjarskipta sem
oft er veiki hlekkurinn í slík-
um æfingum.
Æfð voru viðbrögð við því
þegar farþegaþota með 180
farþegum brotlenti á f lug-
vellinum og fór æfingin
fram samkvæmt nýjum
drögum að flugslysaáætlun
fyrir Keflavíkurflugvöll.
Æfingin var mjög umfangs-
mikil og tóku rúmlega
700 manns þátt í henni.
Að sögn Jóhanns R. Bene-
diktssonar, sýslumanns á
Keflavíkurflugvelli, var al-
mennt mjög jákvæð niðurstaða
af æfingunni þrátt fyrir marga
hnökra sem alltaf fylgja um-
fangsmiklum æfingum.
„En grundvallar-
þættir á borð við
boðun, greiningu
og flutning
slasaðra inn á
söfnunarsvæði
slasaðra og síðan
inn á sjúkra-
hús gekk mjög
vel,” segir hann. „Þá
gengu öll fjarskipti upp
sem var mikill sigur fyrir alla
þá sem komu að æfingunni.”
Nýtt skipulag prófað
Á æfingunni var prófað nýtt
fjarskiptaskipulag og ýmis
ný tækni í skipulagi auk
margra annarra þátta. s.s.
sameiginleg aðgerðastjórn.
Æfingin átti sér átta mánaða
aðdraganda og var haldin
af f lugmálastjórn á
Keflavíkurflugvelli,
sýslumanns-
embættinu í
Keflavík og á
Keflavíkur-
flugvelli ásamt
almannavarna-
deild ríkislög-
reglustjóra. Meðal
þeirra fjölmörgu
sem tóku þátt voru
Brunavarnir Suðurnesja,
Rauði kross Íslands, heilbrigð-
isstofnanir, Landhelgisgæslan,
björgunarsveitir, varnarliðið,
lögregla, tollgæsla og almanna-
varnanefndir auk presta og
fjölda annarra sjálfboðaliða.
„Það hefur sjaldan verið
eins góð aðsókn að
Fjörheimum og akkúrat
þessa dagana,“ segir Anna
Albertsdóttir nýr starfs-
maður Fjörheima þegar
hún er spurð um aðsókn að
félgasmiðstöðinni. Að sögn
Önnu var aðsóknin farin
að aukast áður en verkfall
grunnskólakennara hófst.
Dagskrá Fjörheima er fjöl-
breytt og í hverjum mán-
uði er boðið upp á ýmsa
viðburði fyrir unglinga.
Nýlega var haldið Para- og
vinaball í Stapanum og þar
mættu um 300 unglingar.
Anna segir að aðsóknin sé
stöðug. „Á hverjum degi
eru að koma um 50 til 60
unglingar
og á kvöld-
skemmtanir
er algengur
fjöldi um
150 krakk-
ar,“ segir
Anna.
Á daginn
geta ungl-
ingar farið
í billjarð,
þythokkí,
spilað á tölvur eða farið
á netið. „Við erum líka
með danssal hérna og það
kemur fyrir að krakkarnir
æfi sig í dansi í salnum.
En annars er bara mikið
um að krakkarnir komi
hingað til að spjalla og
hittast. Sjónvarpsherbergið
er líka rosalega mikið
notað þar sem við erum
með Stöð 2, Sýn og fleiri
stöðvar,“ segir Anna.
Anna segir að hún hafi
verið dálítið stressuð þeg-
ar hún tók við starfinu.
„Ég vissi ekkert hvernig
krakkarnir myndu taka
mér en það kom fljótt í
ljóst að mér var tekið mjög
v el. Og þetta er ekkert
smá skemmtilegt starf,“
segir Anna og bendir á
heimasíðu Fjörheima þar
sem fréttir og upplýsingar
um starfið eru til staðar
- www.fjorheimar.is
Fjörheimar
blómstra
í verkfalli
Það gekk mikið á í anddyri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja á meðan æfingunni stóð.
Þar á bæ var ánægja með hvernig til tókst.
Vettvangsstjórnin á Keflavíkurflugvelli.
Mikill tækjabúnaður var notaður á æfingunni.
Slökkviliðsmenn á Keflavíkurflugvelli að störfum við björgun.