Víkurfréttir - 11.11.2004, Síða 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Sorpeyðingarstöð Suð-urnesja hrinti í síðustu viku af stað herferð sem
miðar að því að vekja almenn-
ing og fyrirtæki á svæðinu til
vitundar um sorpflokkun og
þann mikla ávinning sem af
slíku fæst. Sorpeyðingarstöðin
flutti starfsemi sína fyrr á árinu
í Kölku, stærstu sorpbrennslu-
stöð landsins, í Helguvík. Þar
er móttökustöð fyrir úrgang
frá heimilum a svæðinu og ein-
nig gámastöð þar sem almenn-
ingi gefst færi á að koma með
forflokkaðan úrgang til endur-
vinnslu og/eða eyðingar end-
urgjaldslaust. Auk Kölku rekur
SS tvær aðrar gámastöðvar, í
Vogum og Grindavík.
Vinna með almenningi
og fyrirtækjum
Víkurfréttir tóku Guðjón Guð-
mundsson, framkvæmdastjóra
Sorpeyðingar Suðurnesja, tali á
dögunum og forvitnuðust um
verkefnið.
Guðjón sagði að með því væri
verið að vekja fólk til vitundar
um endurvinnslu og sorpmál.
„Við erum komnir með nýja
stöð og höfum verið að að-
laga okkur að nýju og breyttu
umhverfi. Við erum að snúa
okkur að því að vinna með
almenningi og fyrirtækjum í
að minnka sorp og f lokka og
draga þannig úr þeim kostnaði
sem fyrirtæki og sveitarfélögin
hafa af þessu.”
Aukin endurvinnsla
Áhersla er lögð á að auka end-
urvinnslu á pappír og pappa
því afar erf itt er að brenna
sl íkt í ofni Kölku og hefur
aukinn kostnað í för með sér.
Í brennsluofninum er hitinn á
bilinu 850 til 1100 gráður, en
ef hitinn fer undir þau mörk
er olíu sjálfkrafa sprautað yfir
eldinn.
Tímasetning verkefnisins er
valin af þeirri ástæðu að á þess-
um árstíma, þ.e. þegar jólin
fara að nálgast, er jafnan mikil
aukning á heimilissorpi og sér-
staklega pappír.
„Okkur langar að fara í herferð
með almenningi og fyrirtækj-
um þannig að við hjálpumst að
við að ráða við þessa törn sem
er oft í desember og janúar.
Það er hvatning til að f lokka
betur og koma inn á gáma-
svæðið með úrganginn vel
f lokkaðan í timbur, málma,
pappír, dagblöð og þar fram
ef tir götunum. Eins vi ljum
við líka hvetja fyrirtæki til að
koma með sorpið betur flokk-
að, enda lækka líka hjá þeim
gjöldin með því.”
Eins og við er að búast var
aðlögunin yf ir í Kölku ekki
hnökralaus og að sögn Guðjóns
er enn verið að vinna að því að
koma öllu til betri vegar. „Það
hafa komið upp ýmsir örðug-
leikar eins og oft vill verða í
svo flóknum verkefnum, en nú
sér fyrir lokin á því og verður
gerð lokaúttekt á verkinu um
miðjan mánuðinn. Árið hef-
ur verið erfitt og mikið álag
á starfsmenn. Við keyrðum
gömlu stöðina fram í apríl og
það má segja að það sé enn-
þá verið að vinna að ýmsum
frágangi og endurbótum hér á
nýju stöðinni þrátt fyrir að við
höfum getað verið að brenna
mestallan tímann. Nú getum
við snúið okkur að næsta kafla
sem er að kynna okkur og fá
fólk til að vinna með okkur í
f lokkun og öðru þvíumlíku.”
Lengri opnunartími
gámastöðva
Opnu na r t í m i gá ma stöð v-
anna hefur ekki verið öllum
að skapi, en í haust var tíminn
rýmkaður nokkuð til að koma
til móts við óskir viðskipta-
vina.
„Við vorum með mjög rúman
opnunartíma uppi í gömlu stöð
sem helgaðist af því að þar var
hent meira eftirlitslaust,” seg-
ir Guðjón. „Núna viljum við
hins vegar hafa allar móttöku-
stöðvar mannaðar þannig að
við getum farið í gegnum þessi
mál með fólkinu sem kemur
á stöðvarnar og sagt þeim til.
Þessvegna er móttaka fyrir al-
menning í Kölku nú opin frá
13-19 alla daga og 13-19 um
helgar. Í Grindavík er opið frá
15-19 virka daga og 13-18 laug-
ardögum, í Vogum 15-19 þriðj-
udag/fimmtudag/föstudag og
13-18 á sunnudögum.
Tökum þátt í verkefninu
Að lokum vil l Guðjón sko-
ra á sem f lesta að taka þátt í
þessu verkefni. „Við viljum
hvetja alla til að skoða sín mál.
Annars vegar hvernig er geng-
ið frá í ruslatunnurnar sjálfar,
þ.e. að fólk brjóti saman kassa
og fernur þannig að það rúm-
ist betur og hins vegar að þau
komi á móttökustöðvarnar
með hlutina f lokkaða þannig
að afgreiðsla geti verið hröð og
góð. Þá geta þau nýtt sér okk-
ar starfsmenn til að aðstoða
sig og veita sér upplýsingar um
þessi mál.”
8 Aukin endurvinnsla hjá Sorpeyðingarstöð Suðurnesja, Kölku:
Kalka með herferð
í endurvinnslu