Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.11.2004, Qupperneq 20

Víkurfréttir - 11.11.2004, Qupperneq 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Sorpeyðingarstöð Suð-urnesja hrinti í síðustu viku af stað herferð sem miðar að því að vekja almenn- ing og fyrirtæki á svæðinu til vitundar um sorpflokkun og þann mikla ávinning sem af slíku fæst. Sorpeyðingarstöðin flutti starfsemi sína fyrr á árinu í Kölku, stærstu sorpbrennslu- stöð landsins, í Helguvík. Þar er móttökustöð fyrir úrgang frá heimilum a svæðinu og ein- nig gámastöð þar sem almenn- ingi gefst færi á að koma með forflokkaðan úrgang til endur- vinnslu og/eða eyðingar end- urgjaldslaust. Auk Kölku rekur SS tvær aðrar gámastöðvar, í Vogum og Grindavík. Vinna með almenningi og fyrirtækjum Víkurfréttir tóku Guðjón Guð- mundsson, framkvæmdastjóra Sorpeyðingar Suðurnesja, tali á dögunum og forvitnuðust um verkefnið. Guðjón sagði að með því væri verið að vekja fólk til vitundar um endurvinnslu og sorpmál. „Við erum komnir með nýja stöð og höfum verið að að- laga okkur að nýju og breyttu umhverfi. Við erum að snúa okkur að því að vinna með almenningi og fyrirtækjum í að minnka sorp og f lokka og draga þannig úr þeim kostnaði sem fyrirtæki og sveitarfélögin hafa af þessu.” Aukin endurvinnsla Áhersla er lögð á að auka end- urvinnslu á pappír og pappa því afar erf itt er að brenna sl íkt í ofni Kölku og hefur aukinn kostnað í för með sér. Í brennsluofninum er hitinn á bilinu 850 til 1100 gráður, en ef hitinn fer undir þau mörk er olíu sjálfkrafa sprautað yfir eldinn. Tímasetning verkefnisins er valin af þeirri ástæðu að á þess- um árstíma, þ.e. þegar jólin fara að nálgast, er jafnan mikil aukning á heimilissorpi og sér- staklega pappír. „Okkur langar að fara í herferð með almenningi og fyrirtækj- um þannig að við hjálpumst að við að ráða við þessa törn sem er oft í desember og janúar. Það er hvatning til að f lokka betur og koma inn á gáma- svæðið með úrganginn vel f lokkaðan í timbur, málma, pappír, dagblöð og þar fram ef tir götunum. Eins vi ljum við líka hvetja fyrirtæki til að koma með sorpið betur flokk- að, enda lækka líka hjá þeim gjöldin með því.” Eins og við er að búast var aðlögunin yf ir í Kölku ekki hnökralaus og að sögn Guðjóns er enn verið að vinna að því að koma öllu til betri vegar. „Það hafa komið upp ýmsir örðug- leikar eins og oft vill verða í svo flóknum verkefnum, en nú sér fyrir lokin á því og verður gerð lokaúttekt á verkinu um miðjan mánuðinn. Árið hef- ur verið erfitt og mikið álag á starfsmenn. Við keyrðum gömlu stöðina fram í apríl og það má segja að það sé enn- þá verið að vinna að ýmsum frágangi og endurbótum hér á nýju stöðinni þrátt fyrir að við höfum getað verið að brenna mestallan tímann. Nú getum við snúið okkur að næsta kafla sem er að kynna okkur og fá fólk til að vinna með okkur í f lokkun og öðru þvíumlíku.” Lengri opnunartími gámastöðva Opnu na r t í m i gá ma stöð v- anna hefur ekki verið öllum að skapi, en í haust var tíminn rýmkaður nokkuð til að koma til móts við óskir viðskipta- vina. „Við vorum með mjög rúman opnunartíma uppi í gömlu stöð sem helgaðist af því að þar var hent meira eftirlitslaust,” seg- ir Guðjón. „Núna viljum við hins vegar hafa allar móttöku- stöðvar mannaðar þannig að við getum farið í gegnum þessi mál með fólkinu sem kemur á stöðvarnar og sagt þeim til. Þessvegna er móttaka fyrir al- menning í Kölku nú opin frá 13-19 alla daga og 13-19 um helgar. Í Grindavík er opið frá 15-19 virka daga og 13-18 laug- ardögum, í Vogum 15-19 þriðj- udag/fimmtudag/föstudag og 13-18 á sunnudögum. Tökum þátt í verkefninu Að lokum vil l Guðjón sko- ra á sem f lesta að taka þátt í þessu verkefni. „Við viljum hvetja alla til að skoða sín mál. Annars vegar hvernig er geng- ið frá í ruslatunnurnar sjálfar, þ.e. að fólk brjóti saman kassa og fernur þannig að það rúm- ist betur og hins vegar að þau komi á móttökustöðvarnar með hlutina f lokkaða þannig að afgreiðsla geti verið hröð og góð. Þá geta þau nýtt sér okk- ar starfsmenn til að aðstoða sig og veita sér upplýsingar um þessi mál.” 8 Aukin endurvinnsla hjá Sorpeyðingarstöð Suðurnesja, Kölku: Kalka með herferð í endurvinnslu

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.