Víkurfréttir - 11.11.2004, Síða 23
VÍKURFRÉTTIR I 46. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 11. NÓVEMBER 2004 I 23
St r á k a r n i r í 10 .f lok k i Njarðvíkur í körfuknatt-lei k ha lda en n á f ra m
ótrúlegri sigurgöngu sinni.
Þeir unnu alla leiki sína í ann-
ari umferð Íslandsmótsins
sem fór fram í Rimaskóla í
Grafarvogi um helgina.
Njarðvíkingar höfðu mikla yf-
irburði og sigruðu alla fjóra
leiki sína örugglega.
Fyrsti leikurinn, sem var gegn
Breiðablik, var þó óvenju jafn
en endaði 69-52. Næsti leik-
ur var gegn Grindavík og var
mun öruggari. Lokatölur voru
76-32 eftir svakalegan enda-
sprett Njarðvíkinga.
Á sunnudeginum léku þeir
fyrst gegn Fjölni og unnu góð-
an sigur gegn sterku liði heim-
amanna, 65-40.
Síðasti leikurinn var svo gegn
Kef lvíkingum og vannst, 80-
42.
Strákarnir hafa ekki tapað leik
síðan 11. nóvember 2001 og eru
síðan komnir 69 leikir í öllum
keppnum samkvæmt heima-
síðu Njarðvíkur.
Þar er einnig greint frá því að
ekkert lið hefur farið upp um
alla yngri f lokka og unnið alla
titla sem eru í boði, en nú hafa
Njarðvíkurdrengirnir færi á að
skrá sig í metabækurnar.
Sigurganga Njarðvíkinga
heldur áfram
Njarðvíkingar leika tvo leiki í Intersport-deild-inni í vikunni og eru
mótherjarnir Vesturlandsliðin
Skallagrímur og Snæfell.
Fyrri leikurinn er í kvöld á
heimavel l i Ska l lagr íms og
verður án efa strembinn því að
Valur Ingimundartson og læri-
sveinar hans hafa komið mjög
á óvart það sem af er tímabili.
Eftir að hafa komið upp í efstu
deild á ný hafa þeir unnið fjóra
af fyrstu fimm leikjunum, en
Njarðvíkingar eru enn taplaus-
ir eftir bestu byrjun liðs í sögu
úrvalsdeildarinnar.
„Ska l lagr ímur er hörkul ið
og með sterkan heimavöll,”
sagði Einar Árni Jóhannsson,
þjálfari Njarðvíkinga. „Þetta
verður hörkuleikur, en v ið
mætum grimmir til leiks og
ætlum okkur að sækja stigin
sem eru í boði.” Á þriðjudag-
inn er enn erfiðara verkefni
fyrir höndum þar sem Snæfell
mætir í Ljónagryfjuna. Einar
segir þá hafa beðið þessa leiks
lengi. „Það er mikil tilhlökkun
hjá okkur en þeir eru með vel
mannað lið. Liðin tvö verða ef-
laust bæði í efri hluta deildar-
innar og er því mjög mikilvægt
fyrir okkur að sigra.”
Njarðvíkingar fá tvo toppleiki
Keflvíkingar sækja KR heim
í Intersport-deildinni á
morgun. KR-ingar hafa ekki
farið vel af stað en Sigurður
Ingimundarson, þjálfari
Keflavíkur á von á þeim sterk-
um á heimavelli. „Það eru
yfirleitt skemmtilegir leikir
á milli þessara félaga. Og þó
að það sé álag á okkur ætlum
við ekki að fela okkur bak
við það. Þetta er bara áskor-
un að spila alla leiki vel.”
Keflavík er enn ósigrað á toppi
1. deildar kvenna eftir örugg-
an sigur á KR. Þær leika næst
gegn Njarðvík á heimavelli
næstkomandi miðvikudag, en
njarðvíkurstúlkur hafa komið
á óvart með góðri frammistöðu
á móti sterkum liðum undan-
farið. Meistararmir eru engu
að síður mun sigurstranglegri.
Sama kvöld mætir Grindavík
KR-ingum, en ekkert hefur
gengið hjá Vesturbæingum
sem sitja sem fastast á botni
deildarinnar án stiga.
Í kvöld mætast kvenna-
lið Njarðvíkur og Hauka í
Ljónagryfjunni. Leikurinn
er mikilvægur í botnbaráttu
deildarinnar og er errfitt að
spá fyrir um úrslit í leiknum.
Leikir
vikunnar
Keflvíkingar unnu glæsilegan sigur á franska liðinu Reims í
Bikarkeppni Evrópu í síðustu viku. Gunnar Einarsson átti stórleik
og fór fyrir sínum mönnum eins og herforingi í vörn og sókn.
Keflvíkingar léku annan leik sinn í keppninni í gær, eftir að
blaðið var farið í prentun og er áhugasömum bent á heimasíðu
Víkurfrétta, vf.is, þar sem má finna ítarlega umfjöllun og myndir.