Víkurfréttir - 11.11.2004, Blaðsíða 24
24 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Dr
ek
kið
Skandinavískt
Fitnessdrottningin Freyja Sigurðardóttir stendur í ströngu þessa dagana
enda er Íslandsmótið í Galaxy
Fitness haldið um helgina.
Freyja er í góðu formi þessa
dagana sem sést best á því
að hún sló Íslandsmetið í ar-
mbeygjum á móti um síðustu
helgi. Hún náði 77 slíkum og
sló gamla metið, sem var 70,
með tilþrifum.
„Ég er í mjög góðu formi og er
að koma sterk til baka. Ég set
stefnuna á að gera enn betur
um helgina,” sagði Freyja sem
er fimmfaldur Íslandsmeistari
og þrefaldur bikarmeistari í
Fitness. Hún var ekki með á
síðasta móti þar sem hún var
enn á fæðingardeildinni eftir
að hafa eignast son sinn Jökul
Mána.
„Ég hef verið í ströngu prógr-
ammi með mataræði og æf-
ingar síðustu 3 mánuði og það
er búið að vera mjög erfitt, en
þetta verður gaman þegar upp
er staðið.”
Frey ja hef ur ver ið önnum
kaf in í ár og stefnir hærra.
„Ef mér gengur vel fer ég á
Heimsmeistaramótið. Það er
alltaf takmarkið.”
Hefur þú áhuga á að selja vörur,
handverk eða eigin framleiðslu -
harðfisk, kökur eða þess háttar?
Þarftu að losna við gamlar bækur,
vídeóspólur, borðbúnað, áhöld eða
annað sem fólk er hætt að nota og
nýtist öðrum fyrir lágt verð?
Hafið samband við Ásmund
í síma 894 3900.
Verði næg þátttaka verður
KOLAPORTIÐ Í 88 húsinu opið í
að minnsta kosti 5 frídaga í
desember.
Knattspyrnudeild Keflavíkur
Kolaport í Reykjanesbæ
Sló Íslandsmet í armbeygjum
8 Freyja Sigurðardóttir í góðu formi:
Herma nn Ja kobsson, formaður Lyftinga og Lí ka msrækta rdei ld
M a s s a U . M . F. N . v í s a r á
b u g k v ö r t u n u m u m a ð
R e y k j a n e s b æ r s t a n d i a ð
ó e ð l i l e g u m s a m k e p p n i -
rekstri á sviði líkamsræktar.
Samkeppnisstofnun hefur bo-
rist kæra vegna málsins, en
það er ekki í fyrsta sinn.
„Þetta er ekki sambærilegt við
stöðvarnar úti í bæ þar sem við
erum ekki að bjóða upp á ne-
ina þjónustu eða leikfimitíma.
Massi á öll lyftingartækin í sal
íþróttamiðstöðvarinnar.”
Hermann bendir á að þessi sal-
ur hóf starfssemi 1974 og var
þá eini lyftingasalurinn hér í
bæ og hafa allar deildir inn-
an U.M.F.N. nýtt sér salinn
og gera enn. Hefur ætíð ríkt
góður andi meðal félagsmanna
og starfsfólks íþróttarmið-
stöðvarinnar. „Lyftingar og
líkamsræktardeild U.M.F.N.
var síðan stofnuð í febrúar árið
1995 og þar með urðum við
gjaldgengir eins og önnur fé-
lög innan ÍSÍ og lútum þeirra
lögum og reglum. Þá viljum
við benda á að Massi hefur átt
íþróttamann Reykjanesbæjar,
Lúðvík Björnsson, sem einnig
hefur hlotið titilinn Íslands-
og heimsmeistar i Öldunga
o g á M a s s i e i n n i g f l e i r i
Íslandsmeistaratit la. Einnig
vil ég benda á að nú á laugar-
daginn 13. nóvember verður
haldið Reykjanesmótið í kraft-
lyftingum í Íþróttahúsinu í
Njarðvík og hefst það kl. 14 í
stóra sal, og hvet ég fólk til að
mæta þar sem allur ágóði af
keppnisgjöldum og aðgangsey-
ri rennur til Allýar litlu.”
Að lokum hvetur Hermann
bæjarbúa til að stunda lyfting-
ar og líkamsrækt hvort sem
það er hjá þeim eða á öðrum
líkamsræktarstöðvum bæjar-
ins.
Ásökunum um brot á samkeppnislögum vísað á bug
8 Samkeppnisstofnun hefur borist kæra vegna lyftingasals Massa í íþróttahúsinu í Njarðvík: