Víkurfréttir - 23.06.2005, Blaðsíða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
���������
�����������
Auk allrar almennrar garðvinnu, eyðingar á túnfíflum í
grasflötum, bíð ég uppá
���������
svo og úðun gegn hinum hvimleiða roðamaur.
Nánari upplýsingar í síma 893 0705
���������������������������� F
ríhöfnin ehf. hefur tekið
í notkun nýja verslun í
komusal flugstöðvar-
innar. Verslunin hefur verið
stækkuð um 460 m2 frá því
sem áður var og er nú orðin
1.000 m2 að stærð.
„Stækkun verslunarinnar er al-
gjör bylting frá því sem var. Nú
er hægt að gefa hverjum vöru-
flokki fyrir sig nægilegt rými og
bæta útstillingar á vörum. Við
höfum meðal annars aukið úr-
val snyrtivara, sem eru nú sér
deild í versluninni. Við erum
mjög ánægð með hvernig til
hefur tekist og vonum að við-
skiptavinir taki breytingunni
vel“, segir Sturla Eðvarðsson,
framkvæmdastjóri Fríhafnar-
innar ehf. á heimasíðu flughafn-
arinnar.
Kostnaður við nýja verslun
er um 24 millj ón ir króna.
Innréttingar voru keyptar frá
austurríska framleiðandanum
Umdasch, Arkís ehf. arkitektar
og ráðgjöf sáu um innanhúss-
hönnun og Ístak um uppsetn-
ingu innréttinga.
Við tilfærslu komuverslunar
myndaðist aukið rými í mót-
tökusal flugstöðvarinnar fyrir
farþega og stækkun farang-
ursfæribanda. „Salurinn var
hættur að anna álagstoppum
þegar margar vélar komu inn
í einu. Við tilfærslu komuversl-
unar gátum við stækkað tvö af
þremur færiböndum um leið og
meira gólfpláss myndaðist fyrir
farþega. Einnig gaf það okkur
svigrúm til að bæta aðstöðu
fyrir tollafgreiðslu í salnum,“
segir Höskuldur Ásgeirsson,
framkvæmdastjóri Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar hf.á heimasíð-
unni.
Stækkun komuverslunarinnar
og tilfærsla er fyrsti hluti af
stækkun flugstöðvarbyggingar-
innar til suðurs, en byggingin
verður stækkuð alls um 6.000
fermetra á tveimur hæðum.
Áætlað er að framkvæmdum
ljúki árið 2006.
Verslun Fríhafnar í komusal tvöfölduð
Breytingar í Fríhöfninni
Bæjaryf irvöld í Sand-gerði áætla að koma sér upp hópferðabíl til að
sjá um samgöngur á milli Sand-
gerðis og Reykjanesbæjar með
viðkomu í Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar. Mun rekstur hefjast
í upphafi nýs skólaárs. Bærinn
var á tímabili í viðræðum við
bæjarstjórn Garðs um þátttöku
þeirra í verkefninu, en upp úr
þeim hefur slitnað á meðan
Garður leitar nú samninga við
SBK um samgöngur til Reykja-
nesbæjar.
Sigurður Valur Ásbjörnsson,
bæjarstjóri í Sandgerði segir í
samtali við Víkurfréttir að nú sé
stefnt að útboði þar sem verður
leitað að hentugri bifreið til
að sjá um fólksflutninga. „Við
höfum verið í samstarfi vegna
rútuferða í FS sem er ekki af-
greitt fyrir næsta ár og svo erum
við líka með þjónustu fyr ir
fatlaða auk þess sem við erum
með rútu fyrir skólabörn inn-
anbæjar. Þannig sameinum við
þessa þætti og bætum þjónustu
við bæjarbúa fyrir svipað verð.”
Sigurður segir að þeim hafi ekki
hugnast að hafa Garð inni í
hringferðinni en hafi hins vegar
boðið Garðbúum að vera með
í fyrirtæki sem ræki í staðinn
tvo bíla.
Garðbúar ákváðu hins vegar
að ræða fyrst við SBK um sam-
starf í samgöngum til Reykja-
nesbæjar. „Við höfum gert SBK
tilboð og þeir eru að fara yfir
þau mál í augnablikinu,” sagði
Sigurður Jónsson, bæjarstjóri í
Garði, en hann býst við því að
málin skýrist á næstu dögum.
„Við finnum fyrir miklum þrýst-
ingi innan bæjarins og stefnum
að því að koma samgöngum í
gang sem allra fyrst og þá með
3-4 ferðum til Reykjanesbæjar
á dag.”
Sveitarfélagið Garður og Sandgerðisbær:
Ráðgera umbætur á samgöngum
Óskum eftir samstarfi við förðunar- og hárgreiðslufólk vegna
tískumyndatökuverkefna í allt sumar. Einnig viljum við komast
í samband við áhugasama stílista. Vinsamlegast sendið
okkur póst á:Qmen@vf.is eða hringið í síma 421 0014
Einnig vantar fyrirsætur, 18 ára og eldri.