Víkurfréttir - 22.09.2005, Blaðsíða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Útgefandi:
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamenn:
Auglýsingadeild:
Útlit, umbrot og prentvistun:
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Prentvinnsla:
Dagleg stafræn útgáfa:
Skrifstofa Víkurfrétta:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is, postur@vf.is
Þorgils Jónsson, sími 421 0003, gilsi@vf.is, sport@vf.is
Atli Már Gylfason, sími 421 0014, atli@vf.is
Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is
Jón Björn Ólafsson, sími 421 0001, jbo@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Kolbrún Jóna Pétursdóttir, s: 421 0005, kolla@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, s: 421 0006, steini@vf.is
Prentsmiðjan Oddi hf.
www.vf.is og www.vikurfrettir.is
Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 421 0009, gudrun@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is
Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga er opið til kl. 15
Með því að hringja í síma 421 0000 er hægt að velja beint samband
við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild.
Fréttavakt allan sólarhringinn er í síma 898 2222
RITSTJÓRN VÍKURFRÉTTA
Axel Jónsson skrifar um skólamatinn
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Samhæfni.ai 9/21/05 1:42:24 PM
FRÉTTASÍMINN
SÓLARHRINGSVAKT 898 2222
Nú er liðnar rúmar þrjár vikur síðan við hófum að framreiða hádegismat í grunn-skólum Reykjanesbæjar, Grindavíkur og
í Garðinum. Byrjað er að selja mataráskrift fyrir
október og hafa nemendur fengið með sér heim
áskriftablað til að fylla út og geta þeir greitt það
í útibúum Sparisjóðsins og á skrifstofum Matar-
lystar að Iðavöllum 1 Reykjanesbæ.
Ég verð að segja að ég er tiltölulega ánægður með
byrjunina, vissulega hafa komið upp vandamál, en
okkur og samstarfsaðilum okkar í skólunum er að
takast að vinna bug á þeim í sameiningu.
Matseðillinn hefur verið í þróun í nokkur ár og
er alltaf í endurskoðun, ég heyri ekki annað en
að flestir nemendur séu ánægðir en auðvita er
mömmumatinn alltaf bestur og þannig á það líka
að vera. Vinsælasti maturinn á matseðlinum eru
skindibitamatur sem boðið er upp á annað slagið,
grjónagrautur og slátur er einnig mjög vinnslælt,
fleiri rétti mætti telja upp, en endilega skoðið mat-
seðilinn á heimasíðu okkar skolamatur.is og gefið
okkur hugmyndir ef þið hafið þær.
En eins og Ólafur Sæmundsson næringarfræð-
ingur og ráðgjafi Matarlyst Atlanta segir:
Hafa skal hugfast að við gerð matseðla er stuðst
við manneldisráðleggingar og legg ég mikla
áherslu á að þeim ráðleggingum sé fullnægt. Alltaf
má að sjálfsögðu betur gera og allar tilögur vel
þegnar en auðvitað er ekki hægt að sérsníða mat-
seðla fyrir hvern og einn skóla í því kerfi sem við
hjá Matarlyst/Atlanta vinnum eftir. Ég vil hvetja
þá sem hafa einhverjar athugasemdir, ráðlegg-
ingar eða spurningar að senda mér “póst“ á net-
fangið oli@hreyfing.is .
Ég hef bent á að einsaklingur er stóran hluta ævi
sinnar í mötuneyti og þarf þvi að leggja sig allan
fram við að vanda matseldina og hugsa um nær-
ingarinnihald hans.
Hefur þú hugleitt það að þegar barn er rúmlega
einsárs ferð það til dagmömmu eða á leikskóla og
þar fær barnið hádegismat, frá leikskóla um 5 ára
aldur fer barnið í grunnskóla og þar fær barnið
hádegismat, áfram heldur þetta í fjölbrautaskóla
og þar fær einstaklingurinn sjaldnast venjulegan
heimilismat en eflaust næringarríkan mat,
Úr fjölbraut fara flestir í framhaldsskóla og þar
tekur mötuneytið líka við, þegar öllu skólahaldi
er lokið og viðkomandi einstaklingur fer út á
vinnumarkaðinn borðar hann að öllum líkindum
í mötuneyti fyrirtækisins þar sem hann vinnur og
þegar allri vinnu er lokið og við förum á elliheim-
ili þá tekur stærra mötuneyti við okkur þar sem
við fáum morgunverð, hádegisverð, eftirmidags-
kaffi, kvöldverð og kannski sumstaðar kvöldkaffi,
svo af öllu þessu má sjá að það verður að vanda sig
við matargerðina og kannski ekki síður hvernig
maturinn er borinn fram og talað með honum,
viðmót okkar og góð framkoma við hvort annað
skiptir miklu máli, og getur meiri segja misjafn
góður matur orðið betri ef sá sem er að gefa hann
gerir það með gleði og ánægju.
Kæru nemendur, starfsmenn skóla, foreldrar og
forráðamenn nemenda hjálpumst að, að gera
betur, því matur og næring er undirstaða allra til
að ná betri árangri í námi og starfi.
Virðingarfyllst
Axel Jónsson
Skolamatur.is
- matur og næring er undirstaða allra til að ná betri árangri í námi og starfi.
Allir hafa gaman af að dansa og nú er tæki-færið! Félag eldri borg-
ara á Suðurnesjum stendur
fyrir dansnámskeiði og dansi
þann 27. september nk. í Stapa
fyrir 60 ára og eldri. Leiðbein-
andi og stjórnandi verður Jó-
hann Larsen frá Danshöllinni.
Ekki er nauðsynlegt að hafa
dansfélaga því sífellt er skipt um
oh aðeins dansað í stutta stund
við hvern og einn. Eins og allir
vita þá er dansinn skemmtleg
og góð líkamsrækt fyrir líkama
og sál.
Missið ekki af þessu - komið og
dansið. Sjá auglýsingu á öðrum
stað í blaðinu.
Komið og dansið!
Kisan okkar hún Tinna
er týnd. Hún er grá, með
hvítar hosur og hvítt undir
höku. Hún er merkt með
rauðri ól og hvarf frá Máva-
brautinni aðfaranótt þriðju-
dagsins 20.sept. Ef þið sjáið
hana vinsamlegast hringið
í 421 1229 eða 690-2416.
Tinna er týnd!