Víkurfréttir - 22.09.2005, Side 9
VÍKURFRÉTTIR I 38. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 22. SEPTEMBER 2005 I 9
Hj á l m a r Á r n a s o n , þingflokks-
formaður Framsókn-
arflokksins, telur öll
rök vera fyrir því að
höfuðstöðvar Land-
helg is gæzl unn ar
v e rð i f l u tt a r t i l
Keflavíkur. Forstjóri
gæslunnar segir hug-
myndirnar vel þess
virði að skoða vand-
lega. Þess ar hug-
myndir gætu jafnvel falið í sér
aukið hlutverk á sviði varnar-
mála dragi Bandaríkjaher enn
saman seglin hér á landi.
Hjálmar Árnason, þingflokksfor-
maður Framsóknarflokksins, er
einn þeirra sem talar fyrir því að
innanlandsflugið verði flutt til
Keflavíkur. Eins telur Hjálmar
að höfuðstöðvar Landhelgisgæzl-
unnar eigi að flytjast til Kefla-
víkur og taka við varnar- og
öryggisþáttum ef Bandaríkja-
menn ákveða að minnka eða
hætta starfsemi sinni þar. Þetta
kom fram á opnum fundi sem
Hjálmar boðaði til á veitingahús-
inu Ránni í síðustu viku.
Hjálmar segist telja að öll rök
séu fyrir því að höfuðstöðvar
Landhelgisgæzlunnar verði í
Keflavík, bæði vegna þess að
þar sé flugvöllur og þá séu skip
Landhelgisgæzlunnar nær vett-
vangi í Keflavík, yst í Faxaflóa
frekar en að vera innst. Þar að
auki sé þyrlusveit varnarliðsins
staðsett í Keflavík.
Hjálmar telur lag að nálgast
þetta núna þegar viðræður við
Bandaríkjamenn um framtíð
varnarstöðvarinnar standa yfir.
Hann segir að það liggi fyrir
pólitískur vilji af hálfu Banda-
ríkjamanna að hér á landi verði
varnarstöð og nú eigi að nálgast
það með þeim hætti að Land-
helgisgæzlan með sínu öfluga
starfsliði taki að sér reksturinn
á varnarstöðinni á grundvelli
samnings við Bandaríkin.
Öll rök fyrir flutningi
Gæslunnar til Keflavíkur
Landhelgisgæzlan til Keflavíkur?
Í tilefni 12 ára afmælis Domino's á Íslandi var
ákveðið að auglýsa eftir umsóknum frá félaga-
samtökum og einstaklingum um styrki að fjár-
hæð alls 1,2m.
12 umsóknir voru valdar úr hópnum og af þeim
eru 3 aðilar frá Suðurnesjum. Þeir fengu styrkina
afhenta við hátíðlega athöfn í verslun Domino's á
Hafnargötu 86.
Þeir sem hlutu styrki frá Suðurnesjum voru Egill Jónas-
son, efnilegur íþróttamaður úr UMFN, Grunnskólinn
í Sandgerði og Þroskahjálp á Suðurnesjum.
Fengu styrk frá Domino's