Víkurfréttir - 30.12.2003, Blaðsíða 16
Gunnar Einarsson, fyrir-liði Íslands- og bikar-meistara Keflavíkur í
körfuknattleik valinn íþrótta-
maður Keflavíkur fyrir árið
2003 í hófi sl. laugardag. Valið
fór þannig fram að hver deild
innan Keflavíkur tilnefndi einn
íþróttamann sem hefur skarað
framúr á sínu sviði á árinu sem
er að líða og var valið á milli
þeirra.
Gunnar var tilnefndur fyrir hönd
körfuknattleiksdeildarinnar með
þeim orðum að hann væri fyrir-
myndaríþróttamaður, jafnt innan
vallar sem utan og sé afskaplega
fjölhæfur og baráttuglaður leik-
maður sem er annálaður fyrir
keppnishörku og einbeitingu.
Fyrir hönd fimleikadeildarinnar
var Eva Berglind Magnússdóttir
tilnefnd. Fyrir utan árangur sinn
á íþróttasviðinu er hanni hrósað
sérstaklega fyrir það hversu já-
kvæð og skemmtileg hún er. Hún
var í 3. sæti á stökki á Seniormóti
Íslands í fimleikum og er innan-
félagsmeistari í áhaldafimleik-
um.
Taekwondo-deildin tilnefnir
Normandy Del Rosario, en hann
náði þeim áfanga í mars síðast-
liðnum að vera fyrsti Keflavík-
ingurinn til að ná svörtu belti í
íþróttinni, og var einnig Íslands-
meistari í -68kg flokki svartbelt-
inga og var í öðru sæti á opna
skoska meistaramótinu.
Fáum kemur á óvart að Örn Arn-
arson hafi verið tilnefndur fyrir
hönd sunddeildarinnar enda eru
afrek hans einsdæmi í íslenskri
íþróttasögu. Árið 2003 var engin
undantekning og bætti hann sig
m.a.s. í mörgum greinum þannig
að hann er í stöðugri framför. Þá
varð Örn Íslandsmeistari í níu
einstaklingsgreinum á árinu og
sló ellefu íslandsmet á árinu í
hinum ýmsu sundgreinum og
setti tvö Norðurlandamet í bak-
sundi. Á Smáþjóðaleikunum
vann hann til þrennra gullverð-
launa og tvennra silfurverðlauna
ásamt því að vera í boðsundsveit-
um Íslands sem settu tvö Íslands-
met í boðsundum og unnu til gull
og silfurverðlauna. Hann hefur
þegar tryggt sér sæti á Ólympíu-
leikunum í Aþenu á næsta ári og
verður fróðlegt að fylgjast með
honum þar.
Knattspyrnudeildin tilnefndi Þór-
arinn Kristjánsson, en hann var
einn af lykilmönnum liðsins sem
endurheimti sæti sitt í úrvals-
deildinni. Hann var næst-marka-
hæstur í 1. deildinni þar sem
hann skoraði 14 mörk, en allt í
allt skoraði hann 24 mörk í öllum
keppnum og var vitaskuld
markahæstur Keflvíkinga. Þá var
Þórarinn kjörinn leikmaður árs-
ins á lokahófi knattspyrnudeild-
arinnar í haust
Stjórn skotdeildarinnar tilnefndi
Ásgeir Svan Vagnsson skotmann
ársins fyrir ötult starf að upp-
byggingu skammbyssuíþrótta á
Suðurnesjum.
Þorgerður Jóhannsdóttir var valin
badmintonmaður ársins. Hún
hefur stundað íþróttina frá 9 ára
aldri og hefur samkvæmt um-
sögn deildarinnar sýnt metnað og
áhuga allt frá byrjun. Hún hefur
verið í unglingalandsliðinu frá 13
ára aldri og vann það afrek á Ís-
landsmóti unglinga að verða Ís-
landsmeistari í tvíliðaleik U-17,
fyrst allra stúlkna úr Keflavík.
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Umsjón: Þorgils Jónsson • sími 868 7712sportið
Keflavík vann góðan sigurá KR, 73-52, í úrslitaleikHópbílabikars kvenna í
körfuknattleik þann 20 desem-
ber síðastliðinn. Keflavíkur-
stúlkur höfðu forystu allt frá
byrjun leiks, en náðu ekki að
ná afgerandi forystu fyrr en
seint var liðið á leikinn, og má
segja að KR liðið hafi verið
inni í leiknum þar til í síðasta
leikhluta þegar Keflavík sigldi
loks fram úr og tryggði sér ör-
uggan og verðskuldaðan sigur.
Keflavíkursóknin virkaði frekar
óörugg framan af leik þar sem
þær voru að missa boltann oftar
en gengur og gerist á þeim bæn-
um. Þá voru þær ekki að keyra
upp hraðann, sem er eitt af þeirra
sterkustu vopnum, en þökk sé
misjafnri frammistöðu KR-inga
kom það ekki að sök.
Niðurstaðan er þó að lokum sú
að Keflavík hampar Hópbílabik-
arnum og er fyrsta liðið til þess
að verja titilinn, en þær unnu
einnig í fyrra og hafa verið í úr-
slitaleiknum öll fjögur árin.
Erla Þorsteinsdóttir var stigahæst
Keflvíkinga með 23 stig og Anna
María Sveinsdóttir kom næst
með 15 stig.
Katie Wolfe var stigahæst KR-
inga og skoraði 23 stig og Tinna
Sigmundsdóttir skoraði 10.
Íþróttamaður og íþrótta-menn Reykjanesbæjarfyrir árið 2003 verða út-
nefndir í hófi á gamlársdag.
Útnefndur verður íþrótta-
maður hverrar íþróttagrein-
ar ásamt því að veitt verða
verðlaun fyrir þrjú efstu
sætin í kjöri til íþrótta-
manns Reykjanesbæjar
2003
Að auki verða allir Íslands-
meistarar Reykjanesbæjar á
árinu sem er að líða heiðraðir
og þeim afhentur verðlauna-
peningur með áletrun um
meistaratignina.
Verðlaun þessi hafa verið veitt
allt frá árinu 1996, þegar Ey-
dís Konráðsdóittir bar sigur úr
býtum, en í fyrra féll heiður-
inn í skaut Arnar Arnarssonar,
sundmanns.
Athöfnin fer fram í Íþrótta-
húsinu í Njarðvík og hefst kl.
13:00. Íþróttabandalag
Reykjanesbæjar býður alla
bæjarbúa velkomna.
BESTU
ÍÞRÓTTA-
MENN
REYKJA-
NESBÆJAR
HEIÐRAÐIR
Keflavík vann
Hópbílabikarinn
K V E N N A K A R F A N :
GUNNAR
BESTUR!
1. tbl. 2004 24p 29.12.2003 13:58 Page 16