Víkurfréttir - 30.12.2003, Blaðsíða 23
VÍKURFRÉTTIR I 1. TÖLUBLAÐ 2004 I ÞRIÐJUDAGURINN 30. DESEMBER 2003 I 23
Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur opnaðsína árlegu flugeldasölu að Iðavöllum 7.Grétar Ólafsson hjá Keflavík sagði þeg-
ar Víkurfréttir litu við á flugeldasölunni að
fjölskyldupakkarnir væru vinsælastir og tert-
urnar einnig. „Við erum með mikið af nýjum
tertum sem bera landfræðileg heiti og það er
mikill kraftur í þeim. Það er einnig mikið úr-
val af flugeldum hjá okkur, en Keflavíkur-
pakkarnir svokölluðu er vinsælir hjá okkur en
þeir innihalda tertu, flugelda og blys. Þetta eru
ekta pabbapakkar,“ sagði Grétar.
F L U G E L D A S A L A K E F L A V Í K U R
Kraftmiklar tertur
Hressir sölumenn hjá Keflavík. F.v. Sigurður Markús Grétarsson, Grétar Ólafsson og Þorsteinn Magnússon.
- Keflavíkurpakkarnir vinsælir
K E T T L I N G U R F A N N S T
Laugardaginn fyrir jól fannst ca. 6-8 mán. gamall skógarköttur
(líklegast fress) við smábátahöfnina í Keflavík. Kisi er hvítur á kviðnum og
svartur á baki og rófu. Hann var orðinn þrekaður og virðist hafa verið týndur
lengi. Kisa, sem er mjög blíður og góður, er eflaust sárt saknað. Ef einhver
kannast við þessa lýsingu er hægt að hafa samband í síma 869 0771.
1. tbl. 2004 24p 29.12.2003 14:25 Page 23