Víkurfréttir - 30.12.2003, Blaðsíða 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Þórdís Herbertsdóttir,Unnur Þorsteinsdóttirog Sólveig Sigfúsdóttir
starfsmenn Lyf og heilsu fögn-
uðu 122 ára samanlögðum
starfsaldri á dögunum. Þær
hafa allar starfað hjá fyrirtæk-
inu (áður Apóteki Keflavíkur) í
rúm 40 ár og bauð Sigurður
Gestsson, apótekari upp á
köku í kaffitíma rétt fyrir jólin,
ásamt því að gefa þeim skart-
grip frá Fjólu gullsmið fyrir vel
unnin störf hjá fyrirtækinu.
Það var glatt á hjalla þegar Vík-
urfréttir litu við á kaffistofunni
og voru stelpurnar hressar og
ánægðar.
„Það hefur náttúrulega verið
mjög gott að vinna hér og það
hefur alla tíð verið góður andi í
fyrirtækinu,“ sögðu þær um leið
og blaðamanni var boðið upp á
köku og kaffi. „Við erum líka
mjög góðar vinkonur og þegar
við förum á elliheimili þá ætlum
við að vera þar saman, drekka
sérrý og hafa það gott,“ sögðu
þessar hressu stelpur í apótekinu
Lyf og heilsu.
Fögnuðu 122 ára starfs-
aldri í Lyf og heilsu
Efri mynd: „Stelpurnar“ í Lyf
og heilsu með apótekaranum:
f.v. Þórdís Herbertsdóttir,
Sólveig Sigfúsdóttir, Sigurður
Gestsson og Unnur
Þorsteinsdóttir. Myndin til
hliðar er tekin fyrir
„áratugum“ í Apóteki
Keflavíkur.
Flugeldasalan hafin hjá Björgunarsveitinni Suðurnes. F.v. Gunnlaugur Haf-
steinsson, Haraldur Haraldsson og Kristinn Magnússon.
L iðsmenn Björgunarsveit-arinnar Suðurnes voru íóðaönn að undirbúa
flugeldasölu fyrir áramótin
þegar Víkurfréttir litu við í
heimsókn hjá sveitinni. Har-
aldur Haraldsson hjá björgun-
arsveitinni segir að terturnar
séu vinsælastar og að úrvalið sé
mikið. „Við seljum tertur af
öllum stærðum og gerðum. Það
er hægt að fá litlar tertur og
síðan 1500 skota bombur, en
með þeim getur fólk sett á svið
sína eigin flugeldasýningu,“
segir Haraldur. Björgunar-
sveitin er einnig með mikið úr-
val af flugeldum, blysum og
margvíslegu smáu sprengju-
dóti. Flugeldasala Björgunar-
sveitarinnar Suðurnes er í að-
alstöðvum sveitarinnar að
Holtsgötu í Njarðvík.
H líðargata 26 var valiðJólahús Sandgerðis-bæjar en þar búa
hjónin Arnar Óskarsson og
Fanney D. Pálsdóttir ásamt
3 börnum sínum. Að sögn
Arnars eru um 3000 perur í
skreytingunni á húsinu.
Ennfremur fékk húsið að Vall-
argötu 5 viðurkenningu en þar
búa Ómar Svavarsson og
Gyða Guðjónsdóttir ásamt 3
börnum sínum.
Flugeldasala Björgunarsveitarinnar Suðurnes:
Settu á svið þína
eigin flugeldasýningu
Næsta blað kemur út
fimmtudaginn 8. janúar 2004
O P N U M A F T U R Á F Ö S T U D A G I N N K L . 0 9
Jólahúsið í Sandgerði
Ljósmyndir: Reynir Sveinsson
„Við erum líka mjög góðar vinkonur og þegar við
förum á elliheimili þá ætlum við að vera þar
saman, drekka sérrý og hafa það gott.“
1. tbl. 2004 24p 29.12.2003 14:06 Page 22