Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.09.2006, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 14.09.2006, Blaðsíða 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 37. TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR Ráðstefna um tóbaksvarnir í Reykjanesbæ í dag og á morgun: Ráðstefnan Loft 2006 hefst í Kirkjulundi í Reykja nes bæ í dag. Ráðstefnan er fyrst og fremst fyrir heilbrigðisstarfsmenn og áhugafólk um tóbaksvarnir en þetta er í fjórða sinn sem slík ráðstefna er haldin hér á landi. Sigrún Ólafsdóttir, hjúkrunar- framkvæmdastjóri heilsugæslu HSS, er í undirbúningsnefnd fyrir ráðstefnuna. Hún segir að á hverri ráðstefnu sé aðalá- herslan lögð á það sem sé efst á baugi hverju sinni og kynnt það nýjasta í meðferðarúrræðum fyrir tóbaksfíkn. Reiknað er með að 90 manns sæki ráðstefnuna allsstaðar að af landinu. Flestir þátttakendur eru heilbrigðisstarfsmenn en Sig- rún á einnig von á því að áhuga- fólk um tóbaksvarnir taki þátt í ráðstefnunni. Um uppbyggingu ráðstefnunnar sagði Sig rún að henni væri skipt í fjóra hluta. Í fyrsta hluta verður fjallað um klínískar tó- baksvarnir. Í öðrum hlutanum verða flutt erindi um reykleys- ismeðferð á Íslandi og í þeim þriðja er fjallað um óbeinar reykingar. Þá verður að lokum fjallað um reyklausa vinnustaði. Sigrún sagði tilganginn með ráðstefnunni m.a. vera að vekja fólk til umhugsunar um tóbaks- varnir og skaðsemi reykinga. Þá er einnig markmiðið að fá heilbrigðisstarfsfólk til að stilla saman strengi sína og vinna í sameiginlegu átaki, því heilsu- gæslan á lögum samkvæmt að sinna tóbaksforvörnum. Mörg áhugaverð erindi verða í boði á ráðstefnunni í Kirkju- lundi. „Eitt af því sem ég tel líklegt til að vekja athygli eru lög um breyt ingar á lögum um tóbaksvarnir. Lögin varða reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum og þar sem menningar- og félagsstarfsemi fer fram. Lögin voru samþykkt 2. júní í sumar og koma til fram- kvæmda 1. júní 2007,“ segir Sigrún og furðar sig á því að umræðan um þessi lög hafi ekki verið meiri í þjóðfélaginu og á allt eins von á því að við- brögðin verði þeim mun harð- ari nokkrum dögum áður en kemur til gildistöku þeirra. Tveir erlendir fyrirlesarar verða á ráðstefnunni og munu koma inn á þennan þátt. Karl E. Lund kemur frá Noregi og mun segja frá áhrifum reykbanns þar í landi og sennilega einnig frá nýútkominni skýrslu þar sem hann tekur saman áhrif banns- ins á veitingastaðina og viðhorf til lagasetningar, hlýðni við lögin og fleira. Annar fyrirlesari, Göran Pers- hagen, kemur frá Svíþjóð en hann er mikill sérfræðingur í áhrifum óbeinna reykinga á heilsu fólks. Til að fjalla enn betur um ís- lensku lögin kemur Sólveig Guð- mundsdóttir lögfræðingur frá heilbrigðisráðuneytinu og mun ræða um hver verði næstu skref fram að innleiðingu þeirra. Þá mun Erna Hauksdóttir, fulltrúi veitingamanna, verða með er- indi og verður án efa fróðlegt að heyra afstöðu veitingamanna til nýju laganna. Á seinni degi ráðstefnunnar á eflaust eftir að vekja athygli er- indi Jakobínu Árnadóttur um breytingar á afstöðu og hegðun íslenskra smábarnaforeldra. Þar kynnir hún nýja rannsókn á reykingum í umhverfi þriggja ára barna. „Í rannsókninni er borið saman viðhorf, þekking og reykingar í umhverfi þriggja ára barna árið 1955 og núna árið 2006“. Segir Sigrún að fram komi töluverðar breytingar á þessu tímabili og fróðlegt verði að sjá niðurstöður rannsóknarinnar. En hvernig er tekið á tóbaks- vörnum á meðal heilbrigðis- starfsmanna? „Fyrir ráðstefnuna var gerð óformleg könnun á því hvað væri verið að gera í tóbaks- vörn um al mennt á heilsu- gæslum í landinu. Það kom í ljós að þessi málaflokkur er alls ekki ofarlega á vinsældalist- anum hjá heilbrigðisstarfsfólki. Markviss vinna er einnig lítil í þessari mikilvægu forvörn og þarf virkilega að verða breyting þar á,“ segir Sigrún Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá HSS í samtali við Víkurfréttir. Meðferðarúrræði fyrir tóbaksfíkla og nýjustu rannsóknir ræddar Sigrún Ólafsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri heilsugæslu HSS. - reykingar bannaðar á veitinga- og skemmtistöðum næsta sumar 29.700.000 Stórglæsileg 6 herb. 185,3 fm endaraðhús þar af 22,6 fm innbyggður bílskúr. Mjög fallegur og vel frágengin garður með stórum sólpalli. Góð eign á góðum stað í Keflavík. Bóas sölumaður tekur á móti gestum s: 699 6165 Fr u m Heiðarbraut 7a - 230 Rbæ Opið hús í dag kl. 17:30 - 18:30 Aðalflutningar hafa opnað starfsstöð hjá Flutningsþjónustu Suðurnesja. Boðið er upp á daglega flutninga á leiðinni Suðurnes-Reykjavík-Suður- nes. Að sögn þeirra Rúnars Ingva Eiríkssonar og Einars Árnasonar eru Aðalflutn- ingar nýr valkostur fyrir þá sem þurfa að flytja vörur til eða frá Suðurnesjum. Þeir fé- lagar reka Flutningsþjónustu Suðurnesja og eru með þrjá bíla í daglegum ferðum til höfuðborgarinnar. Með því að tengjast Aðalflutningum er fyrirtækið komið í tengsl við flutninganet sem nær víða um land og er vaxandi. „Við byrjum með eina ferð á dag og gerum ráð fyrir að leggja af stað frá Aðalflutn- ingum í Reykjavík kl. 13 alla virka daga. Við höfum hins vegar ráð til að koma vörum til Suðurnesja fyrr á daginn eða síðar, sé þess óskað“. Flutningsþjónusta Suðurnesja er með marga stóra viðskipta- vini á Suðurnesjum eins og t.d. BYKO, Fram Foods, Sam- herja og Icelandair. Flutn- ingsgeta fyrirtækisins er hins vegar meiri og því séu Aðal- flutningar góð viðbót við rekst- urinn. Þeir sem vilja koma sendingu frá Suðurnesjum til Reykjavíkur eða út á land hafa samband í síma 421 8383 en þeir sem ætla að koma vörum til Suðurnesja mæta með þær til Aðalflutninga í Skútuvogi 8 í Reykjavík. Þeir félagar Einar og Rúnar sögðust myndu flytja vörur samkvæmt gjaldskrá en tilboð séu gerð í stærri flutninga og vörum sé komið til skila sam- dægurs. Aðalflutningar með daglegar ferðir milli Suðurnesja og Reykjavíkur Að sögn þeirra Rúnars Ingva Eiríkssonar (t.h.) og Einars Árnasonar eru Aðalflutningar nýr valkostur fyrir þá sem þurfa að flytja vörur til eða frá Suðurnesjum.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.