Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.09.2006, Side 23

Víkurfréttir - 14.09.2006, Side 23
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 14. SEPTEMBER 2006 23STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Reykjanesbær mun frá og me ð 1. októ b er 2006 hefja umönnun- argreiðslur til foreldra á íbúa- vefnum mittreykjanes.is. Þetta kemur fram í frétt frá Reykja- nesbæ. Tilgangurinn með umönnun- argreiðslunum er að styðja við foreldra sem leggja áherslu á að vera með börnum sínum eftir að fæðingarorlofi lýkur. Á sama hátt er stutt við gott starf dagfor- eldra í bæjarfélaginu. Greiddar verða kr. 30.000 mán- aðarlega til foreldra sem lokið hafa töku fæðingarorlofs og sækja þeir greiðslurnar rafrænt á Mitt Reykjanes. Velji foreldrar að setja barn í vistun hjá dag- foreldri er hægt að velja að láta styrkinn renna til niðurgreiðslu á gjaldi hans. Greiðsl urn ar falla niður um leið og barnið fær úthlutað leikskólaplássi en kjósi foreldrar að sinna barninu lengur á eigin vegum er sótt um það sérstaklega. Til þess að virkja þennan rétt þurfa foreldrar að sækja kynn- ingu á vegum Reykjanesbæjar þar sem fjallað verður um grund- vallaratriði í uppeldi barna. Markmið kynninganna, sem gert er ráð fyrir að taki tvær kvöldstundir, er að foreldrar þekki skyldur sínar í uppeldis- hlutverkinu, grundvallaratriði í þroska barna sinna og þá þjón- ustu sem býðst foreldrum í Reykjanesbæ. Reykjanesbær tók Mitt Reykja- nes sem er rafrænn íbúavefur í notkun 10. maí sl. og eru um- önnunargreiðslurnar liður í frekari rafrænni þjónustu bæj- arfélagsins. Á næsta ári hefjast jafnframt greiðslur svokallaðra hvatapeninga fyrir 6 - 18 ára á Mitt Reykjanes en þar geta for- eldrar ráðstafað 7.000 króna styrk frá bænum til íþrótta- og tómstundastarfs að eigin vali. Foreldrar fá umönnunargreiðslur FRAMTÍÐARSTÖRF Í LAGNADEILD BYKO Á SUÐURNESJUM Má bjóða þér að ganga til liðs við okkur Við óskum eftir starfskrafti í lagnadeild BYKO Suðurnesjum: Starfssvið • Dagleg umsjón með lagnadeild • Innkaup og sala á lagnaefni • Þróun lagnadeildar Hæfniskröfur • Menntun eða reynsla af pípulögnum æskileg • Jákvætt viðmót og þjónustulipurð • Reglusemi og skipulagshæfni Nánari upplýsingar veita Atli Ólafsson, rekstrarstjóri, í síma 821-4024 og Elfa B. Hreinsdóttir, starfsþróunarstjóri, í síma 5154161 og með tölvupósti, elfa@byko.is Umsóknir berist til Elfu B. Hreinsdóttur, Skemmuvegi 2, 200 Kópavogi eða með tölvupósti elfa@byko.is Einnig er hægt að sækja um starfið á vef BYKO, www.byko.is GÆÐI Á LÆGRA VERÐI F jar skipta stöð banda-ríska flotans í Grindavík verður áfram í rekstri og hefur verið samið við Kögun hf þar að lútandi. Í fréttatilkynn- ingu frá Kögun segir að með rekstrinum takist að skapa áframhaldandi störf fyrir hluta þeirra starfsmanna Kögunar er sinnt hafa þjónustu við Varn- arliðið. Fjarskiptastöðin hefur verið rekin af flotanum í áratugi og að mestu leiti verið mönnuð banda- rískum hermönnum. Frá því að bandaríski herinn tilkynnti um brotthvarf sitt frá Íslandi hefur það legið nokkuð ljóst fyrir að hann ætlaði sér að reka stöðina áfram og var rekstur hennar því boðinn út. Samningurinn er gerður til eins árs í senn innan rammaútboðs sem nær yfir fimm ára tímabil. Fjarskipta- stöðin í Grindavík starfrækt áfram

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.