Víkurfréttir - 19.10.2006, Blaðsíða 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR
VF-sport
molar
Hörður skoraði í tapleik
Sil ke borg sit ur á botni
dönsku úrvalsdeildarinnar í
knattspyrnu eftir 5-1 ósigur
gegn Nordsjælland á sunnu-
dag. Keflvíkingurinn Hörður
Sveinsson gerði mark Silke-
borg og Hólmar Örn Rúnars-
son lék einnig í leiknum.
Ása og Hákon
Allt hreint meistarar
Allt hreint mótið í pútti fór
fram sl. fimmtudag þar sem
Ása Lúðvíksdóttir hafði sigur
í kvennaflokki en í karlaflokki
var það Hákon Þorvaldsson
sem varð hlutskarpastur. Ása
lék á 63 höggum og fékk alls
13 bingó, eða holu í höggi.
Hákon lék á 58 höggum og
var í banastuði og setti niður
15 bingó. Næsta mót á vegum
Púttklúbbs Suðurnesja er
Happasælsmótið og fer það
fram fimmtudaginn 26. októ-
ber.
Adolf í Þrótt
Adolf Sveinsson hefur gert
þriggja ára samning við Þrótt
Reykjavík og mun leika með
liðinu í 1. deild karla í knatt-
spyrnu á næstu leiktíð. Adolf
var markahæsti leikmaður 2.
deildar í sumar þegar hann
gerði 13 mörk í 17 leikjum
f yr ir Reyni Sand gerði .
Gunnar Oddsson, fyrrum
þjálfari Reynis, söðlaði einnig
um á dögunum og gekk í
raðir Þróttara og er Adolf því
annar aðilinn frá Sandgerði
til þess að ganga til liðs við
Þrótt.
Stefán í liði vikunnar
Stefán Gíslason var valinn í
lið vikunnar í Noregi af sjón-
varpsstöðinni TV 2 en hann
fór á kostum í viðureign
Lyn og Brann þar sem Lyn
hafði 2-0 sigur sl. sunnudag.
Stefán er fyrirliði Lyn og að
sögn fotbolti.net mun Stefán
hafa verið í sérflokki á vell-
inum, svo góð var hans spila-
mennska. Lyn er í 7. sæti
norsku úrvalsdeildarinnar
með 32 stig.
Leikir kvöldsins:
Iceland Express deild karla
19:15
Keflavík-Skallagrímur
Fjölnir-Grindavík
ÍR-Njarðvík
Á laugardag hefst keppni í
IE deild kvenna og fer fyrsta
umferðin fram í Grindavík
og hefst kl. 13:00.
UMFG-Hamar/Selfoss
ÍS-Haukar
Keflavík-Breiðablik
Mete samdi til
þriggja ára
Varnarmaðurinn Guðmundur Viðar Mete hefur gert nýjan þriggja ára samning við knattspyrnulið Kefla-víkur. Guðmundur átti gott sumar með Keflvíkingum
en hann og Kenneth Gustafsson stóðu vaktina í miðvarða-
stöðu Keflavíkur. Kenneth samdi einnig í sumar til þriggja ára
hjá Keflavík svo þeir tveir munu skipa og stjórna varnarlínu
Keflavíkur á næstu árum.
Guðmundur gekk í raðir Keflavíkur í fyrra og með tilkomu
hans styrktist Keflavíkurvörnin til muna. Þess má geta að
á leiktíðinni 2005 fengu Keflvíkingar alls 31 mark á sig í
Landsbankadeildinni en í sumar voru þau ekki nema 20
talsins og fækkaði mörkunum því um 11 milli leiktíða.
SPÁÐ Í SPILIN
Á þriðjudag var sett fram spá á blaðamannafundi Körfuknattleiksdeildar
Íslands þar sem Njarðvík-
ingum var enn eina ferðina
spáð Íslandsmeistaratitlinum í
karlaflokki. Í kvennaflokki var
Haukum spáð titlinum.
Keflavíkurkonum og körlum
var spáð öðru sæti í deildunum
en Grindavík var spáð sjötta
sæti í karlaflokki en í kvenna-
flokki var Grindavík spáð þriðja
sætinu. Flestir þjálfarar liðanna
tóku spánni með fyrirvara en
biðu spenntir eftir að leiktíðin
hæfist. Víkurfréttir tóku púlsinn
á þjálfurum Suðurnesjaliðanna
en rétt eins og fyrri ár má
fastlega gera ráð fyrir því að
eitthvert Suðurnesjaliðanna, ef
ekki öll, verði í baráttunni um
alla þá titla sem í boði eru.
Jónas og Nína
í liðum ársins
Keflvíkingurinn Jónas Guðni Sævarsson hlaut á laugardagskvöld hátt-
vísiverðlaun Mastercard fyrir
leik sinn í Landsbankadeild-
inni í sumar en viðurkenn-
ingin var veitt á lokahófi KSÍ.
Þá var Jónas einnig valinn í lið
ársins í Landsbankadeildinni.
Jónas lék alla 18 leikina í
sumar með Keflavík en lék
spjaldalaust. Einnig varð Jónas
bikarmeistari með Keflavík
fyrir skemmstu og þá var hann
boðaður í íslenska landsliðið
fyrir leikinn gegn Svíum en
kom ekki við sögu í þeim leik.
Viktor Bjarki Arnarson, Víkingi,
var valinn leikmaður sumarsins
og þá voru stuðningsmenn ÍA
valdir bestu stuðningsmenn-
irnir í Landsbankadeild karla.
Teitur Þórðarson, KR, var
valinn besti þjálfarinn í deild-
inni. Knattspyrnukonan Nína
Ósk Kristinsdóttir, leikmaður
Keflavíkur, var valin í lið árs-
ins í Landsbankadeild kvenna
en hún var næst markahæst í
sumar á eftir Margréti Láru Við-
arsdóttur. Nína gerði 24 mörk
í 14 leikjum fyrir Keflavík.
Jónas og
Guðjón Árni á
lokahófi KSÍ
VF
-M
yn
di
r/
J
ón
Ö
rv
ar
Nína með
silfurskóinn
Mikið mun mæða á
Hildi í vetur rétt eins
og í fyrra.
Keflavík er spáð 2.
sæti í mótinu.
Þessir kappar verða í eldlínunni í vetur og þá munu
nágrannarimmur þessara liða ekki svíkja neinn.
KESHA TIL KEFLAVÍKUR
Keflavíkurkonur hafa ráðið til sín bandaríska leikstjórnandann Kesha
Watson fyrir komandi
átök í Iceland Express
deildinni. Á dögunum
létu Keflvíkingar An-
töshu Jefferson fara frá
félaginu en hún þótti
engan veginn standa
undir þeim vænt-
ingum sem til hennar
voru gerðar.
Kesha er 24 ára gömul og mun
skila stöðu leikstjórnanda hjá
Keflavík. Síðast lék Kesha í
Þýskalandi með Oberhausen
þar sem hún gerði 15 stig
að meðaltali í leik og tók 4,1
frákast. Þykir Kesha sterkur
varnarmaður og var m.a. valin
leikmaður ársins í
WBCA kvennadeild-
inni í Bandaríkjunum
leiktíðina 2003-2004.
Kesha kemur úr Okla-
homa City háskólanum
og er 173 sm að hæð.
Einnig hefur Watson
leikið í NWBL deild-
inni í Bandaríkjunum
með Lubbock Hawks en það er
næsta deild fyrir neðan WNBA
deildina. Í NWBL deildinni
gerði Kesha 9,7 stig í leik.