Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.04.2014, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 23.04.2014, Blaðsíða 16
miðvikudagurinn 23. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR16 „Margar af þessum konum hafa búið við kröpp kjör, ófrið og mikla erfiðleika. Okkur langaði að koma skilaboðum þeirra á framfæri. Við erum búin að vera að hugsa um umbúðir í þrjú ár og þetta var pínu flókið því umbúðirnar eru í raun miklu meira vörumerki en vörumerkið sjálft,“ segir Aðalheiður Héðinsdóttir, eigandi Kaffitárs. Nýjar umbúðir frá fyrirtækinu líta dagsins ljós í vikunni í verslunum og samhliða því verður óvenjuleg auglýsingaherferð. Hver mynd með mikla þýðingu Hópur sem heitir Söguhringur kvenna var upphaflega stofnaður til þess að tengja konur af erlendum uppruna við íslenskar konur. Þær hittast á Borgarbókasafninu í Reykjavík einu sinni í mánuði og gera ýmislegt skapandi saman og styrkja hver aðra. „Ein í hópnum er myndlistarkennari og hún hafði stungið upp á því að gera kort af Reykjavíkurborg sem þær gáfu borginni. Þegar þau hjá auglýsinga- stofunni Hvíta húsinu sáu það verk lögðu þau til að þessi hópur færi í samstarf við okkur hjá Kaffitári,“ segir Aðalheiður. Ákveðið var að gera Íslandskort og hver og ein kona teiknaði mynd sem hafði ein- hverja þýðingu fyrir hana sjálfa. Svo segja konurnar hvers vegna þær völdu að teikna hverja mynd og textana verður hægt að lesa með hverri mynd á sýningu sem sett verður upp í öllum kaffihúsum Kaffitárs. Einnig verða gerð póst- kort með sömu myndum með sögu verkanna á bakhliðinni á íslensku og móðurmáli hverrar konu. Aðferðin frá frumbyggjum Ástralíu Myndin af Íslandi er máluð með svokallaðri punktaaðferð sem er upprunin frá frumbyggjum Ástr- alíu. 34 konur og voru sex vikur að mála verkið í fyrrasumar. Þær hittumst um helgar og svo ein- hver kvöld. Þetta er mjög sein- legt því fyrst þurfti fyrst að mála mynd af Íslandskortinu, mála svo hverja mynd fyrir sig og máta hana með heildinni. Þetta er algjörlega þeirra verk,“ segir Aðalheiður og bætir við að tengingin við Ísland sé svo frábær því konurnar séu al lar fæddar er- lendis en búi núna á Íslandi. Flestar séu frá Evrópu en einn- ig frá Ameríku og Rússlandi. „Eitt af gildum Kaffitárs er fjölmenning og hún endurspeglast svo vel í þessu. Þessi vinna hefur verið okkur mikil vakning um það hversu gott við höfum það og hversu gagn- rýnin við getum verið á land og þjóð.“ Samfélagsleg ábyrgð mikilvæg Haldin var athöfn í Þjóðminja- safninu í nóvember þar sem Vígdís Finnbogadóttir, verndari hópsins, afhjúpaði verkið. Konurnar voru þar viðstaddar og hafa fylgst spenntar með ferlinu síðan. Svo var tekin mynd af verkinu sem notuð var á umbúðirnar. Einn- ig var gerð sjónvarpsauglýsing sem þær leika sjálfar í. „Ég held að samfélagsleg ábyrgð fyritækja skipti okkur neytendur æ meira máli. Þess vegna ákváðum við að segja sögu kvennanna,“ segir Aðal- heiður að lokum. Quote: „Eitt af gildum Kaffitárs er fjölmenning og hún endurspeglast svo vel í þessu“ 34 konur í sex vikur að klára verkið ■■ Mikil saga að baki nýjum umbúðum hjá Kaffitári: Póstkort sem sýna hluta verksins. Eitt af gildum Kaffi- társ er fjöl- menning og hún endur- speglast svo vel í þessu Aðalheiður Héðinsdóttir í höfuðstöðvum Kaffitárs. Íslandsmyndin sem h ópur- inn gerði á sex vikum . ■■ Annríki hjá eldri borgurum í Vogum: Heimsóttu forsetann og kepptu í boccia Frístunda- og menningar-nefnd Voga bauð nýlega eldri borgurum til boccia-keppni í íþróttamiðstöðinni. Keppt var um forláta bikar, þó að keppnin hafi aðallega verið til gamans. Lið frístunda- og menningarnefndar hafði sigur eftir skemmtilega og spennandi keppni. Að lokinni keppni var haldið í Álfagerði þar sem nefndarfólk bauð eldri borg- urum til kjötsúpuveislu. Hafði nefndarfólk lagt mikla vinnu og alúð í eldamennskuna og skilaði það sér á diskana. Allir nutu matarins og mæltist þetta uppá- tæki afar vel fyrir. Líklegt má telja að þessi viðburður sé kominn til að vera. Þá heimsóttu einnig nýverið eldri borgarar í Vogum félaga sína á Álftanesi. Heimsóknin hófst með móttöku hjá forseta Íslands á Bessastöðum og tóku forsetahjónin ásamt starfsliði á móti gestunum. Að því loknu gafst fólki kostur á að skoða Bessastaði og þiggja veitingar. Var heimsóknin afar vel heppnuð og mikil ánægja var meðal gestanna með gestrisni og móttöku forsetahjónanna. Frá Bessastöðum var síðan haldið í Álftaneslaug þar sem fólk fékk kynnisferð um mannvirkið. Að endingu var haldið í Litlakot sem er félagsaðstaða eldri borgara á Álftanesi. Þar þáðu gestir kræsingar, spjölluðu og skemmtu sér. Mikil ánægja var með ferðina í heild sinni og höfðinglegar mót- tökur Álftnesinga. -mannlíf pósturu vf@vf.is

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.