Víkurfréttir - 12.03.2015, Side 10
10 fimmtudagurinn 12. mars 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-viðtal pósturu olgabjort@vf.is
SAFNAHELGI Á
SUÐURNESJUM
DAGANA 14. -15. MARS
ÓKEYPIS Á ÖLL SÖFN
Garður
Sandgerði
Hafnir
Reykjanesbær
Vogar
Grindavík
Sjá dagskrá á safnahelgi.is
Reykjanestá
Suðurstrandarvegur
Reykjanesbraut
Keflavíkur-
flugvöllur
PANTONE 3135
PANTONE 4505
C 100
M 0
Y 16
K 11
C 0
M 15
Y 70
K 50
Leturgerð: Letter Gothic STD Bold
Við erum að reyna að segja sögu slökkviliða á landinu
frá upphafi. Sýna þann búnað
sem menn þurftu að notast við
þegar slökkviliðin voru stofnuð
og til svona 1980. Allt frá því að
menn voru bara með handdælur
og strigafötur,“ segir Ingvar Ge-
org Georgsson, slökkviliðsmaður
og annar umsjónarmanna safns-
ins.
Hann og Sigurður Lárus Fossberg
eiga heiðurinn að Slökkviliðs-
minjasafninu í Ramma-húsinu í
Reykjanesbæ. Hugmyndin varð til
þegar Sigurði var falið það verkefni
að skrásetja alla ameríska slökkvi-
bíla af árgerðum 1940 til 1980
vegna sögu þessara slökkvibíla á
Norðurlöndum. Í þeirri vinnu, sem
var víða um landið, sá hann að
margir bílar og búnaður lágu undir
skemmdum hér og þar.
„Sigurður bað mig um að koma
með sér í að opna safn og við réð-
umst bara í það og það er búið að
vera hér í tvö ár.“
Þeir félagar tóku inn slökkviliðsbíl,
árgerð 1978, fyrir tveimur árum
sem fór úr þjónustu það sama ár.
„Það er enn verið að nota bíla úti á
landi sem eru eldri en bílarnir hér á
safninu. Hér eru elstu bílar frá 1929
og handdælur frá 1880. „Í gamla
daga tók Erlendur Halldórsson
nokkur að sér að búa til slökkvibíla,
þegar menn voru með lausar dælur
hér og þar. Hann breytti bílum og
bjó til íslenska slökkvibíla. Svo er
áhugaverð sýning um miðbæjar-
brunann mikla 1915 í Reykjavík,
þegar Hótel Reykjavík brann,“
segir Ingvar. Safnið var vígt á 100
ára afmæli Slökkviliðs Keflavíkur í
apríl 2013. Þar er saga slökkviliðs-
ins sögð í tímalínu uppi á vegg og
notast við myndir og ýmsan búnað.
„Fólk heldur kannski fyrirfram að
það sé að koma í einhverja geymslu
en svo tekur annað við inni og ég
veit ekki um neinn sem hefur farið
óánægður héðan út.“ Safnið er
alltaf opið á sunnudögum milli kl.
13 og 15 en einnig á laugardag um
safnahelgi.
Með verkefninu er ætlunin að efla kennara í tengslum
við gerð námskrár og þróa hana
í náttúrufræðum, listum og verk-
greinum. Unnið er með efnið
þvert á námsgreinar þannig að
sá efniviður sem nemendur læra
um í náttúrufræði er nýttur við
hönnun og sköpun skarts-, hand-
verks- og skrautmuna. Auk þess
er unnið með hráefni í heim-
ilisfræði í beinum tengslum
við verkefnið. Þannig nýtist sú
þekking sem nemendur öðlast á
fjölbreyttan hátt og sá efniviður
sem unnið er með hverju sinni
verður merkingabærari fyrir
nemendur,“ segir Elín Yngva-
dóttir, kennari við Grunnskólann
í Sandgerði.
Ásamt samkennara sínum, Bylgju
Baldursdóttur, og fleirum hefur
Elín staðið að undirbúningi kynn-
ingar á Comeniusar-verkefni sem
stofnanir innan Sandgerðisbæjar
taka þátt í með félögum sínum í
Mättä Vilppula í Finnlandi. Verk-
efnið kallast Comenius Regio
Development og Curricula and
Teacher Training.
Sandgerðisbær, Grunnskólinn í
Sandgerði, Leikskólinn Sólborg,
Listatorg- lista og menningafé-
lag, Þekkingarsetur Suðurnesja,
Náttúrustofa Suðvesturlands og
Rannsóknasetur Háskóla Íslands á
Suðurnesjum taka þátt í verkefninu
fyrir Íslands hönd.
„Verkefninu er ætlað að tengja
skólana við stofnanir og félög í
nærumhverfinu, styrkja og bæta
tengsl á milli stofnana og stækka
sjóndeildarhring allra sem að því
koma. Skipulagðar voru vinnu-
stofur í báðum löndunum þar sem
skipst var á hugmyndum og efni-
viði. Kennsluaðferðir og námskrár
landanna voru bornar saman og
þær þróaðar samhliða verkefninu“.
Í gegnum samstarf ið, heim-
sóknirnar og vinnu við verkefnið
í hvoru landi fyrir sig hefur heil-
mikið safnast af efni sem verður til
sýnis á Bókasafninu í Sandgerði í
tengslum við safnahelgi á Suður-
nesjum helgina 13.-15. mars.
Við erum með samstarfs-samning við sveitarfélagið
Voga þar sem við tökum þátt í
viðburðum á vegum sveitarfélags-
ins. Vogar eru eina sveitarfélagið
á Suðurnesjum þar sem ekki er
rekið safn, nema bókasafn. Vogar
hafa alltaf tekið þátt og þá hefur
verið leyst með viðburðum á bóka-
safninu,“ segir Marta Guðrún Jó-
hannesdóttir, formaður norrænu
deildarinnar í Vogum. Einnig er
minjafélag sem Marta segir að hafi
staðið sig vel í viðburðum og einnig
gert upp gamalt skólahús á Vatns-
leysuströnd. „Í tengslum við safna-
helgina í ár stungum við í stjórn
norræna félagsins upp á að bjóða
upp á tónlistaratriði. Þorgerður Ása
Aðalsteinsdóttir, dóttir Aðalsteins
Ásberg Sigurðsson og Önnu Pá-
línu Árnadóttur heitinnar, hefur
stundað nám í vísnasöng í Svíþjóð
og er að stíga sín fyrstu spor í að
koma fram og syngur hún bæði á
ýmsum Norðurlandamálum. Hún
stundaði nám við Tónskóla Sigur-
sveins og Norræna vísnasöngs-
kólann í Kungälv í Svíþjóð og í
fyrravor hlaut hún árlega viður-
kenningu Vísnavina í Uddevalla
í Svíþjóð. „Vegna þess að það er
safnahelgi þá var einnig tilvalið að
setja upp smá sýningu. Við vildum
reyna að fá íbúa á Suðurnesjum til
að lána okkur gripi sem tengjast
Norðurlöndunum, minjagripi af
hinu og þessu. Viljum endilega að
sem flestir taki þátt og láni okkur.
Einnig getur fólk komið með með
sér á sýningardeginum ef það vill
ekki lána og hefur kannski tilfinn-
ingalegt eða verðmætt gildi,“ segir
Marta.
Landslagið suður með sjó er helsta fyrirmynd mín, skýin
og náttúran. Ég geymi myndir í
huganum og mála út frá þeim.
Er svona frekar spontant impers-
sionisti. Þetta er dálítið drama-
tískt hjá mér, segja sumir. Þetta
hefur gengið mjög vel og ég
stoppa ekkert því mér finnst
svo gaman að mála. Þetta er svo
mikil útrás,“ segir myndlistar-
konan Guðrún Helga Kristjáns-
dóttir, sem verður með sýningu
á verkum sínum í húsnæði gamla
bókasafnsins í Grindavík.
„Ég var alltaf að teikna sem krakki
og fór síðan á námskeið í Mynd-
listarskólanum í Reykjavík og síðar
í Myndlistarskóla Kópavogs þar
sem ég lagði stund á olíumálun
hjá ýmsum myndlistarmönnum.“
Árið 2002 flutti Guðrún Helga til
Barcelona og stundaði þar nám í
listháskóla og einnig hefur hún sótt
einkatíma hjá Cynthiu Packard í
Boston og Serhiy Savchenko frá
Úkraínu. „Sl. fimm ár hef ég unnið
sjálfstætt og kynnst mörgu fólki
um allan heim. Ég nota olíuliti og
er einnig að þreifa mig áfram með
vatnsliti. Ég heillaðist snemma af
abstract list og hef einbeitt mér að
kraftmiklum og litaglöðum olíu-
málverkum, með innblástur úr
náttúrunni suður með sjó. Flest
verk mín eru unnin með olíu á
striga og einnig hef ég notað bland-
aða tækni.“
Verður einni með opna vinnustofu
Guðrún Helga hefur haldið bæði
einkasýningar og tekið þátt í
nokkrum samsýningum. Hún segir
marga byrja í myndlist en hætta
svo því þeir hafi ekki trú á sér.
„Það þýðir ekkert að hugsa þannig.
Frekar að ná sér í meiri þekkingu,
skoða gömul listaverk.“ Þá hefur
hún sjálf verið að kenna í vinnu-
stofu sinni í Vörðusundi og einnig
flutt inn kennara. Á sýningunni um
safnahelgina verða einnig verk eftir
þrjá vini hennar sem komu hingað
til lands og skildu eftir verkin sín.
„Þær myndir eru mjög skemmti-
legar og gaman fyrir almenning
að sjá þær. Sýningin verður opin
í viku, tengd safnahelginni og
menningarvikunni, einnig verð ég
með opna vinnustofu þessa helgi
frá kl. 13 til 18.“
Innblástur frá náttúrunni á Suðurnesjum
■■ Málverkasýning Guðrúnar Helgu í gamla bóka-
safninu í Grindavík:
■■ Kynning á Comeniusar-verkefni í Grunnskólanum í
Sandgerði:
Styrkja tengsl skólans við nærumhverfið
■■ Slökkviliðsminjasafnið í Reykjanesbæ:
Bílar frá 1929 og handdælur frá 1880
Vísnasöngur og
norrænir gripir
■■ Vogar eru eina „safn-
lausa“ sveitarfélagið:
Í ævintýragarði Helga Valdimars-
sonar í Garði eru ýmsar kynjaverur
í styttuformi sem hann hefur steypt
um árabil. Hann lýsir fyrstu stytt-
unni: „Í álögum heitir eitt verk,
18 andlit í kletti stórum og kona
sem reynir að frelsa úr álögum. Svo
kemur stór og mikil hafmeyja með
börnin sín sem kíkir yfir girðing-
una þegar maður kemur að. Hún
er sýna börnunum hvernig mann-
fólkið lifir.“ Síðan er ferðalangur
sem skírskotar til allra ferðamann-
anna sem koma í Garðinn. Hann er
með farangur, m.a. tösku þar sem
merktar hafa verið á gamla mátann
borgirnar sem hann hefur heimsótt.
Ýmsar aðra smáar og stórar styttur
eru í garðinum eftir Helga, s.s. kon-
ur þrjár; Eva sem heldur á epli sem
hún er að gefa til Adams, nútíma-
konan - ólétt og með bert á milli
og svo gömul kona sem markar
endalokin; er að fara á elliheimili
með aleiguna með sér. Svo er Helgi
■■ Ævintýragarður Helga með alls kyns kynjaverum í Garði:
Verk sem segja sögu og vísa veginn
með 20 styttur í kring í garðinum,
þ.á.m. Gunnar á Hlíðarenda með
öxina Rimmugýgi og fjórar konur
sem hann kallar Djúpið. „Þær eru
settar niður eftir áttavita og syngja
til sjómannanna. Í fjörunni á klöpp
neðan við Unuhús er svo Mangi
frá Mel, en hann reri héðan lengst
allra af Suðurnesjum á opnum bát.
Í hæstu flóðum nær sjórinn upp
undir haus hjá honum.“
Ljón í fullri stærð í vinnslu
Ýmsar aðrar verur, fólk og dýr, má
finna víðar eftir Helga á Suður-
nesjum, t.d. í Kaffitári, hjá Grími
grallara og við bæjarstjórnarskrif-
stofuna í Garði eru aðrar fjórar
konur sem vísa fólki í réttar áttir.
Margir hafa nýtt sér það. „Á vinstri
hönd þegar heyrt er inn í Garð er
jagúar í fullri stærð sem jagúareig-
andi keypti af Helga. Úti á Garð-
skaga er einnig kona sjómannsins
sem bærinn á. Svo er Helgi að gera
karlljón í fullri stærð sem verður
hægt að fylgjast með á vinnustofu
hans í ævintýragarðinum. „Það
gæti verið skemtilegt fyrir gesti
að skoða eitthvað af þessu öllu því
það er mikil fjölbreytni í því,“ segir
Helgi. Þess má geta að Þorsteinn
Jónsson kvikmyndagerðarmaður er
að gera heimildarmynd um Helga
og verk hans.
Safnahelgar-nefndin sem hefur komið
að undirbúningi verkefnisins.
Hin margvís-
legu söfn á
Suðurnesjum
verða opin og
margvíslegar
uppákomur og
tónleikar verða
í boði alla
helgina.
Mynd af Helga eftir Guð-
mund Magnússon.