Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.06.2015, Page 12

Víkurfréttir - 25.06.2015, Page 12
12 fimmtudagur 25. júní 2015 • VÍKURFRÉTTIR RAX stærsta fyrirmyndin Spurður um hvenær áhugi á ljós- myndun hófst segir Mási fyrirmynd sína hafa verið hinn geðþekki og frábæri ljósmyndari Ragnar Ax- elsson, eða RAX. „Ég fylltist svo mikilli lotningu eftir að hafa séð myndir hans á forsíðum blaða hér áður fyrr. Málið var að ég skildi myndefnið og uppbyggingu mynda hans. Ég hugsaði alltaf að ég gæti þetta sjálfur.“ Frá því Mási var barn hafi hann séð heiminn í mótívum, línum og einhverskonar formum. Honum finnst eins og að hann geti búið til áhugavert myndefni úr einföldustu hlutum. Þegar hann var 25 ára gamall ákvað hann að reyna fyrir sér í laumi. „Ég átti enga myndavél og fékk lánaða gamla Pentax myndavél sem faðir minn heitinn átti og fór að leika mér með hana. Ég missti fljótt móðinn þar sem þetta var dýrt áhugamál og framköllun og filmur kostuðu handlegg, þ.e. ef þú vildir gera þetta af einhverju viti.“ Mikil viðbrögð við mynd á Facebook Það var svo eftir aldamótin sem stafræna tæknin hóf innreið sína og þá breyttist heimur ljósmyndar- ans til muna. Árið 2012 ákvað Mási að reyna fyrir sér á ný og fjárfesti í frekar ódýrri Canon myndavél með ágætum linsum. „Ég birti eina og eina mynd á Facebook og þá má segja að hjólin hafi farið að snúast því ég fékk vægast sagt frábærar undirtektir. Fólk kom upp að mér á ólíklegustu stöðum til að hrósa mér fyrir fallegar myndir. Það varð mér hvatning til að fjárfesta í betri tegund af myndavél og skarpari linsum.“ Mási segist alltaf hafa haft gaman af að taka landslagsmynd- ir en sérstaklega finnst honum skemmtilegt að taka myndir af fólki og þá aðallega af fólki við dagleg störf. „Sérstaklega þegar fólk er ekki að gefa myndavélinni gaum, þ.e. er ekki uppsett myndefnið. Ef ég á að taka hópmyndir af fólki finnst mér skemmtilegustu myndirnar þegar -ljósmyndun pósturu vf@vf.is Margir hafa í tímans rás spurt Mása hvaðan tónlistar- og aðrir list- hæfileikar koma og segir hann ein- falt að svara því. „Þeir koma frá for- eldrum mínum. Faðir minn heit- inn, Magnús Blöndal Jóhannsson, var tónskáld og starfaði mikið við leikhús og var virtur hljómsveit- arstjórnandi. Móðir mín, Kristín Sveinbjörnsdóttir, hafði fallega út- varpsrödd og stjórnaði Óskalaga- þætti sjúklinga á Ríkisútvarpinu til fjölda ára. Einnig er hún öflug myndlistarkona. Ætli ég hafi ekki fengið sitthvað frá þeim báðum.“ Tvisvar keppt á erlendum mótum Mási hefur starfað sem lögreglu- maður í 22 ár og segir það krefjandi starf sem reyni gríðarlega á and- lega. „Blessunarlega á ég yndislega fjölskyldu og nýti mér ítrekað til að kúpla mig frá starfinu. Ég hef reynt eftir mesta mætti að skilja vinnuna eftir þegar ég yfirgef vaktina og í flestum tilfellum hefur það gengið upp.“ Ein besta slökun sem Mási segist fá eftir erfiðar vinnutarnir er að fara einn á golfvöllinn og spila nokkrar holur og þá í hvaða veðri sem er. „Þar fæ ég snertingu við náttúruna og tíma með sjálfum mér og góða hreyfingu í bland. Það má segja að golfið sé ástríða hjá mér og hef ég stundað þá íþrótt frá því ég var hnokki.“ Hann tók sér að vísu frí frá golfinu frá 1997 til 2006 en þá bjó hann í Reykjavík og hafði engan tíma né aðstöðu til að stunda golf- ið eins og hann hefði viljað. Enda var hann líka að koma sér upp fjöl- skyldu. „Ég hafði ekki áhuga á ein- hverju gutli. Þegar ég tek mér eitt- hvað fyrir hendur þá þarf ég að geta lagt mig 100% fram. Ég hef gríðar- legan metnað og vil ná árangri í öllu sem ég tek mér fyrir hendur. Í dag er ég með fjóra í forgjöf og tek þátt í keppnum og mótum. Afar gaman er að fá tækifæri til að keppa í golfi í útlöndum en tvisvar sinnum hef ég fengið tækifæri til þess með lands- liði lögreglunnar í golfi,“ segir Mási glaðbeittur. Mási er listhneigð lögregla sem lætur drauma sína rætast: Lögreglumaðurinn, kylfingurinn og áhugaljósmyndarinn MARINÓ MÁR MAGNÚSSON fæddist í Reykjavík 1971 en flutti í Grænásinn í Njarðvík sex ára. Frá unga aldri hefur Marinó, sem oftast er kallaður Mási, hrifist af fallegum ljósmyndum og nú stendur yfir sýning á nokkrum mynda hans í golfskálanum í Leirunni. Víkurfréttir ræddu við Marinó, sem oftast er kall- aður Mási, um listina sem hann hefur erft frá foreldrum sínum, áhuga- málið golfið og hvernig hann nær að núllstilla sig eftir erfiðar vaktir. „Vil ná árangri í öllu sem ég geri“ Skemmtilegar myndir þegar fráfarandi lögreglustjóri á Suðurensjum var kvaddur. Íslensk náttúra er alltaf fallegt myndefnin eins og sjá má hér.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.