Víkurfréttir - 25.06.2015, Qupperneq 12
12 fimmtudagur 25. júní 2015 • VÍKURFRÉTTIR
RAX stærsta fyrirmyndin
Spurður um hvenær áhugi á ljós-
myndun hófst segir Mási fyrirmynd
sína hafa verið hinn geðþekki og
frábæri ljósmyndari Ragnar Ax-
elsson, eða RAX. „Ég fylltist svo
mikilli lotningu eftir að hafa séð
myndir hans á forsíðum blaða hér
áður fyrr. Málið var að ég skildi
myndefnið og uppbyggingu mynda
hans. Ég hugsaði alltaf að ég gæti
þetta sjálfur.“ Frá því Mási var barn
hafi hann séð heiminn í mótívum,
línum og einhverskonar formum.
Honum finnst eins og að hann geti
búið til áhugavert myndefni úr
einföldustu hlutum. Þegar hann
var 25 ára gamall ákvað hann að
reyna fyrir sér í laumi. „Ég átti enga
myndavél og fékk lánaða gamla
Pentax myndavél sem faðir minn
heitinn átti og fór að leika mér
með hana. Ég missti fljótt móðinn
þar sem þetta var dýrt áhugamál
og framköllun og filmur kostuðu
handlegg, þ.e. ef þú vildir gera þetta
af einhverju viti.“
Mikil viðbrögð við
mynd á Facebook
Það var svo eftir aldamótin sem
stafræna tæknin hóf innreið sína
og þá breyttist heimur ljósmyndar-
ans til muna. Árið 2012 ákvað Mási
að reyna fyrir sér á ný og fjárfesti
í frekar ódýrri Canon myndavél
með ágætum linsum. „Ég birti eina
og eina mynd á Facebook og þá má
segja að hjólin hafi farið að snúast
því ég fékk vægast sagt frábærar
undirtektir. Fólk kom upp að mér
á ólíklegustu stöðum til að hrósa
mér fyrir fallegar myndir. Það varð
mér hvatning til að fjárfesta í betri
tegund af myndavél og skarpari
linsum.“ Mási segist alltaf hafa haft
gaman af að taka landslagsmynd-
ir en sérstaklega finnst honum
skemmtilegt að taka myndir af fólki
og þá aðallega af fólki við dagleg
störf. „Sérstaklega þegar fólk er ekki
að gefa myndavélinni gaum, þ.e. er
ekki uppsett myndefnið. Ef ég á að
taka hópmyndir af fólki finnst mér
skemmtilegustu myndirnar þegar
-ljósmyndun pósturu vf@vf.is
Margir hafa í tímans rás spurt Mása
hvaðan tónlistar- og aðrir list-
hæfileikar koma og segir hann ein-
falt að svara því. „Þeir koma frá for-
eldrum mínum. Faðir minn heit-
inn, Magnús Blöndal Jóhannsson,
var tónskáld og starfaði mikið við
leikhús og var virtur hljómsveit-
arstjórnandi. Móðir mín, Kristín
Sveinbjörnsdóttir, hafði fallega út-
varpsrödd og stjórnaði Óskalaga-
þætti sjúklinga á Ríkisútvarpinu
til fjölda ára. Einnig er hún öflug
myndlistarkona. Ætli ég hafi ekki
fengið sitthvað frá þeim báðum.“
Tvisvar keppt á
erlendum mótum
Mási hefur starfað sem lögreglu-
maður í 22 ár og segir það krefjandi
starf sem reyni gríðarlega á and-
lega. „Blessunarlega á ég yndislega
fjölskyldu og nýti mér ítrekað til að
kúpla mig frá starfinu. Ég hef reynt
eftir mesta mætti að skilja vinnuna
eftir þegar ég yfirgef vaktina og í
flestum tilfellum hefur það gengið
upp.“ Ein besta slökun sem Mási
segist fá eftir erfiðar vinnutarnir er
að fara einn á golfvöllinn og spila
nokkrar holur og þá í hvaða veðri
sem er. „Þar fæ ég snertingu við
náttúruna og tíma með sjálfum mér
og góða hreyfingu í bland. Það má
segja að golfið sé ástríða hjá mér og
hef ég stundað þá íþrótt frá því ég
var hnokki.“ Hann tók sér að vísu
frí frá golfinu frá 1997 til 2006 en þá
bjó hann í Reykjavík og hafði engan
tíma né aðstöðu til að stunda golf-
ið eins og hann hefði viljað. Enda
var hann líka að koma sér upp fjöl-
skyldu. „Ég hafði ekki áhuga á ein-
hverju gutli. Þegar ég tek mér eitt-
hvað fyrir hendur þá þarf ég að geta
lagt mig 100% fram. Ég hef gríðar-
legan metnað og vil ná árangri í öllu
sem ég tek mér fyrir hendur. Í dag
er ég með fjóra í forgjöf og tek þátt
í keppnum og mótum. Afar gaman
er að fá tækifæri til að keppa í golfi í
útlöndum en tvisvar sinnum hef ég
fengið tækifæri til þess með lands-
liði lögreglunnar í golfi,“ segir Mási
glaðbeittur.
Mási er listhneigð
lögregla sem lætur
drauma sína rætast:
Lögreglumaðurinn, kylfingurinn og
áhugaljósmyndarinn MARINÓ MÁR
MAGNÚSSON fæddist í Reykjavík
1971 en flutti í Grænásinn í Njarðvík
sex ára. Frá unga aldri hefur Marinó,
sem oftast er kallaður Mási, hrifist af
fallegum ljósmyndum og nú stendur
yfir sýning á nokkrum mynda hans í
golfskálanum í Leirunni. Víkurfréttir
ræddu við Marinó, sem oftast er kall-
aður Mási, um listina sem hann hefur
erft frá foreldrum sínum, áhuga-
málið golfið og hvernig hann nær að
núllstilla sig eftir erfiðar vaktir.
„Vil ná árangri í öllu sem ég geri“
Skemmtilegar myndir þegar
fráfarandi lögreglustjóri á
Suðurensjum var kvaddur.
Íslensk náttúra er alltaf fallegt myndefnin eins og sjá má hér.