Víkurfréttir - 12.11.2015, Page 22
22 fimmtudagur 1. október 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Ég lenti í smá
meiðslum
í baki sem ekki
margir vita af. Svo
þyngdist ég og
missti eiginlega
áhugann á körfu-
bolta í smá tíma,
mér leið bara ekk-
ert vel
Keflvíkingar eru taplausir eftir fimm umferðir þrátt
fyrir að þeim hafi ekki verið spáð
góðu gengi af svokölluðum sér-
fræðingum. Í Keflavík hafa slíkar
spár litla þýðingu og eflaust eru
þær bensín á bálið frekar en hitt.
Ein af helstu ástæðunum fyrir vel-
gengni Keflvíkinga þetta tíma-
bilið er hinn 21 árs leikstjórnandi
Valur Orri Valsson. Hann er að
spila betur en nokkru sinni fyrr
og virkar léttari á fæti sem og í
lundu. Valur kom til Keflavíkur
árið 2011 en hann var aðeins 14
ára árið 2009 þegar hann steig
sín fyrstu skref í úrvalsdeild með
Njarðvíkingum. Hann spilar nú
eins og reynslubolti þrátt fyrir
að vera rétt kominn með aldur til
þess að fara í Ríkið.
Leið ekki vel
„Ég ákvað að koma að mér í al-
mennilegt form. Maður verður
bara sjálfkrafa betri við það. Ég
lenti í smá meiðslum í baki sem
ekki margir vita af. Svo þyngdist
ég og missti eiginlega áhugann á
körfubolta í smá tíma, mér leið
bara ekkert vel,“ segir Valur ein-
lægur en sú var staðan síðustu tvö
tímabil hjá leikstjórnandanum.
„Þetta var mikill pirringur í mér
sem ég fór að átta mig á að væri
bara kjaftæði og að ég þyrfti að rífa
mig í gang.“
Valur mætti samviskusamlega í
ræktina í sumar eftir erfiða tíma
innan og utan körfuboltavallarins.
„Áhuginn var bara ekki til staðar.
Mér fannst bara allt ömurlegt og
leiðinlegt einhvern veginn þann-
ig að ég var ekkert að láta sjá mig
í ræktinni eða hugsa um mat-
aræðið.“ Hann fór ekki á neinn sér-
stakan matarkúr. Heldur fór hann
að hugsa um hvað hann var að láta
ofan í sig og minnka skammtana.
Valur telur að hann sé líklega 7-8
kílóum léttari en á tímabilinu 2013-
14 þegar hann var sem þyngstur.
„Fyrst og fremst þarf maður að
vilja þetta sjálfur. Þetta var nefni-
lega alltaf í boði. Maður þarf bara
að gera þetta. Þetta er allt annað og
það er helvíti gaman að vera kom-
inn í fínt stand. Maður heldur alltaf
að þetta geti ekki gerst.“
Þroskast með aukinni ábyrgð
Valur var gerður af varafyrirliða hjá
Keflavík fyrir tímabilið og hefur
fengið stærra hlutverk hjá liðinu.
„Bæði Siggi (Ingimundar) og Einar
(Einars) eru að segja mér að ég sé
aðalmaðurinn inn á vellinum og
eigi að sjá um hlutina þar. Þegar við
erum að spila svona vel saman þá
þarf maður þess ekkert. Bara að sjá
til þess að við séum að gera þetta
saman sem lið.“
Valur lítur á nafnbótina sem mikið
hrós og segist finna aukna ábyrgð
sem henni fylgir þrátt fyrir að hann
sé ekki að velta því of mikið fyrir
sér. Valur hefur verið að breyta leik
sínum undanfarin ár úr því að vera
mikill skorari yfir í að vera sá sem
leitar félagana uppi og stjórnar spil-
inu „Mér finnst ég hafa þroskast
sem leikmaður og vera betri núna
en ég var fyrir nokkrum árum,“
segir hann. Skotin eru þó að rata
rétta leið og Valur hefur aldrei
skorað meira en í ár þar sem hann
er með tæp 15 stig að meðaltali.
Valur skorar að jafnaði 2,6 þrista í
leik og hefur þriggja stiga nýtingin
aldrei verið betri hjá pilti, eða rúm-
lega 56%.
„Þetta hefur verið að falla hjá mér.
Ég held að það hafi komið eftir að
ég fór að skjóta mikið í sumar. Ég er
búinn að finna betri takt í skotinu
mínu. Ætli það sé ekki formið líka.“
Næstu leikir Keflvíkinga eru gegn
Grindavík, KR og Tindastóli.
Grannaslagurinn gegn Grindavík
er á morgun föstudag í Grinda-
vík. „Ég held að næstu leikir séu
áskorun fyrir okkur um hvort við
getum verið að berjast um titilinn.
Ég veit að við getum verið í topp
fjórum því við erum með það gott
lið. Þannig að þetta er ákveðin
prófraun fyrir okkur og það verður
gaman að sjá hvar við stöndum í
samanburði við þessi lið,“ segir
Valur að lokum.
-íþróttir
MISSTI ÁHUGANN
Á KÖRFUBOLTA
Valur Orri sneri við blaðinu og hefur aldrei spilað betur
Keflvíkingar fara af stað með látum í Domino´s deild karla í körfubolta og hafa enn ekki tapað leik. Leik-
stjórnandinn Valur Orri Valsson hefur stjórnað leik liðsins eins og herforingi. Valur var orðinn leiður á
körfubolta fyrir ekki svo löngu síðan. Hann var þungur og pirraður á vellinum. Nú er allt annað að sjá til þessa
efnilega leikmanns sem hefur aldrei spilað betur og er í sínu besta formi.
PANTANIR HAFNAR Í JÓLASEÐIL
KEF RESTAURANT SEM BYRJAR
3. DESEMBER.
JÓLAMATSEÐILL
Vatnsnesvegi 12 // 230 Reykjanesbæ // 420 7011
GUNNI PALLI VERÐUR GESTAKOKKUR
21. - 26. NÓVEMBER
EKKI MISSA AF ÞESSU!
MUNIÐ BORÐAPANTANIR
AÐALFUNDUR
MÁNA
Aðalfundur Hestamannafélagsins Mána verður haldinn
fimmtudaginn 26. nóvember í félagsheimili Mána
og hefst hann kl.20:00.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar og nefnda
2. Viðurkenningar
3. Kosning stjórnar og nefnda
4. Önnur mál
Stjórn Mána
Mynd: Skúli Sig. // karfan.is