Víkurfréttir - 10.12.2015, Side 6
6 fimmtudagur 10. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
„Þið eruð sætasta stelpan á ball-
inu, þegar kemur að þessari
ferðamannasprengju. Tækifærin
á Suðurnesjum eru gríðarleg, af
öllum toga í ferðamannaiðnað-
inum,“ segir Skúli Mogensen,
eigandi Wow air flugfélagsins í
viðtali við VF en hann var meðal
frummælenda á ráðstefnu At-
vinnurþróunarfélagsins Heklu-
nnar í Hljómahöll í síðustu viku.
Umræðuefnið var framtíð og
möguleikar Suðurnesja.
Skúli hefur byggt upp flugfélagið á
stuttum tíma og náð mjög góðum
árangri en hann segir að menn séu
einhvern veginn ekki að viður-
kenna þá öru þróun sem er í ferða-
þjónustunni og ekki nógu hröð
viðbrögð við stækkun og breytingu
Keflavíkurflugvallar hafi meðal
annars komið niður á stækkun
Wow félagsins fyrstu tvö árin.
„Ég hef sagt að þetta sé okkar
stærsta tækfæri. Við höfum bara
ekki þorað að trúa þessari öru
þróun. Þess vegna hefur fjárfest-
ingin og uppbyggingin ekki verið
í réttum takti. Þá finnst mér þessi
umræða um tilveru og framtíð
Keflavíkurflugvallar á villigötum.
Keflavíkurflugvöllur er framtíðar-
völlur landsins og verður það. Það
er enginn tími til að efast um það.
Framtíðaruppbygging liggur fyrir
í masterplani og það þarf að byrja
strax á framkvæmdum, hefði þurft
í raun að vera í gær. Það virðist ekki
vera einhugur um málið og því
óttast ég að tímaáætlun muni ekki
standast.“
Skúli segir mjög mikilvægt að
hagsmunir í þessu máli séu allt að
200 milljarðar króna og því mjög
brýnt að settur sé saman samstarfs-
hópur sem tækli þetta mál svo það
gangi eins og þarf. Aðalmarkmiðið
á að vera að stækka kökuna og þrátt
fyrir að það sé samkeppni milli að-
ila er mikilvægt að allir sameinist
undir einu flaggi um að styrkja inn-
viðina og byggja upp. Það munu
allir græða á því.
80% tengifarþegar
sem þarf að ná betur til
Skúli segir að uppbygging flug-
félagsins byggist að mestu á far-
þegum sem noti Ísland sem stoppi-
eða tengistöð en um 80% farþega
séu slíkir. Heimamenn þurfa að
nýta sér tækifærin í kringum það,
m.a. með því að fá þessa farþega til
að stoppa lengur. Fjölgun áfanga-
staða Wow snúist um að ná betur
til 80% hópsins en ferðamanna-
aukningin til og frá Íslandi muni
samfara þessu aukast en hún
nemur um 20% af heildarkökunni
í dag.
Skúli fæddist í Keflavík og móður-
fjölskyldan hans er þaðan. Föður-
fjölskyldan frá Selfossi. „Þetta er
svaka kokteill,“ sagði hann og hló
en varðandi framtíðina sagði hann
Suðurnesin í algerri sérstöðu.
„Starfsþörfin verður gríðarlega
mikil á Suðurnesjum á næstu
árum, svo nemur þúsundum.
Þið eruð eins og ég segi: Sætasta
stelpan á ballinu, í þessum ferða-
mannaiðnaði. Svo er einnig fleira
í pípunum á Reykjanesi í öðrum
greinum.“
Skúli sagði að efla þyrfti sam-
göngur um allt land en ekki síst
á milli Keflavíkur og Reykjavíkur
og dæmið um hraðlestina ætti að
skoða betur. Það myndi styrkja
svæðið til framtíðar sem þyrfti á
miklu starfsfólki að halda í náninni
framtíð. Það gæti komið frá höfuð-
borgarsvæðinu og nágrenni og þá
skiptu góðar samgöngur miklu
máli. Hraðlest myndi vera góður
þáttur í flæði til og frá svæðinu
bæði fyrir ferðamenn og vinnu-
markaðinn. Þá myndi það hafa góð
áhrif á húsnæðismál. „Ég held að
það þróunin á vinnumarkaði verði
meiri á þann veg á næstunni að
fólk muni sækja til Suðurnesja en
öfugt og þannig verði enn meiri
fólksfjölgun. Það verði eftirsóknar-
vert að sækja vinnu þangað vegna
þessara miklu tækifæra sem eru á
svæðinu.“
Stóriðja ekki í framtíð Íslands
Skúli hefur ekki leynt þeirri skoðun
sinni að hann er ósáttur við stefn-
una í stóriðjumálum. Hún eigi
ekki heima í framtíð Íslands, bæði
hvað varðar tengingu við ferða-
þjónustuna og einnig viðskiptalegs
eðlis. Uppbygging hafi gengið vel á
undanförnu árum án hennar. Hann
sagði að það væri mikilvægara að
efla nýsköpun og verðmætaaukn-
ingu og nefndi sem dæmi um það
í ferðaþjónustunni eigið fyrirtæki,
Wow, hefði ekki verið til fyrir
fimm árum og Bláa Lónið fyrir
tuttugu árum. Samtals verði þessi
tvö fyrirtæki með um eitt þúsund
starfsmenn á næsta ári. Wow hefði
byrjað með tvær flugvélar árið
2012 en á næsta ári, 2016 verði þær
orðnar tíu, þar af þrjár breiðþotur
og árið 2017 verði vélarnar orðnar
fimmtán, farþegafjöldinn með
Wow orðinn 2,5 milljón og veltan
55 milljarðar króna.
PÁLL KETILSSON
RITSTJÓRNARPISTILL
Skúli ekki að skafa utan af því!
Hann var ekki að skafa utan
af hlutunum hann Skúli
Mogensen, eigandi Wow
flugfélagsins á fundi um
stöðuna á Suðurnesjum í
Hljómahöllinni í síðustu
viku. Skúli fór mikinn og
sagði að Suðurnesin væru sætasta stelpan
á ballinu þegar kæmi að ferðaþjónustunni.
Suðurnesin væru mest spennandi svæðið á
Íslandi á næstu árum. Þá yrðu Íslendingar
að fara að viðurkenna og þora að meðtaka
þá svakalega hröðu þróun sem á sér stað í
ferðaþjónustunni. Nú þegar væri tregða í
því búin að koma niður á vexti Wow.
Það er óhætt að segja að það hafi komið
meðvindur með kappanum á fundinum
fyrir heimamenn sem núna eru í allt ann-
arri stöðu en fyrir tveimur árum síðan.
Skúli benti til dæmis á það að Wow hefði
ekki verið til fyrir fimm árum en yrði
komið með 800 starfsmenn árið 2017 og
að Bláa lónið væri heldur ekki mjög gamalt
fyrirtæki og væri með um 400 starfsmenn.
Þessi fyrirtæki hafi orðið til án nokkurrar
aðkomu opinberra aðila sem hefðu hins
vegar hjálpað mikið til í uppbyggingu stór-
iðju sem hann sagði á villigötum og algera
tímaskekkju.
Talandi um stóriðju þá er óhætt að segja
að það hafi verið mikil vonbrigði hvað
þátttaka var lítil í íbúakosningu um mál-
efni kísilvers Thorsils í Helguvík. Um 900
manns tóku þátt en 2800 skrifuðu á undir-
skriftalista um að fram færi kosning. Þetta
er ráðgáta og er óhætt að segja að það sé
frekar fátt um svör frá þeim sem létu hæst
í þessu máli. Þá eru þetta líka vonbrigði
þegar horft er til íbúalýðræðis að þátttaka í
rafrænni kosningu hafi ekki verið meiri en
raun ber vitni. Það þarf virkilega að skoða
hvað hafi komið í veg fyrir þátttöku. Var
þetta of flókið eða var áhugi fólks bara ekki
meiri? Vonbrigði á alla kanta. Ofan í þetta
koma svo tíðindi úr splunkunýrri skoðana-
könnun í Reykjanesbæ um viðhorf fólks til
iðnaðaruppbyggingar í Helguvík. Yfir 70%
sögðust hlynnt uppbyggingunni.
AUGLÝSINGASÍMINN
ER 421 0001
vf.is
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is
Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is,
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006
Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is og kylfingur.is
ÚTGEFANDI:
AFGREIÐSLA OG RITSTJÓRN:
RITSTJÓRI OG ÁBM.:
FRÉTTASTJÓRI:
BLAÐAMENN:
AUGLÝSINGASTJÓRI:
UMBROT OG HÖNNUN:
AFGREIÐSLA:
PRENTVINNSLA:
UPPLAG:
DREIFING:
DAGLEG STAFRÆN ÚTGÁFA:
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl.
17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáaug-
lýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðju-
dögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist
skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á
vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri
útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það
birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Fjölmenn ráðstefna Heklunnar
um framtíðarmöguleika
Reykjanessins og stöðuna í dag:
Gríðarleg tækifæri
á Suðurnesjum
XXÞað búa gríðarlega mörg tæki-
færi á Suðurnesjum og þau þarf
að virkja. Þetta er meðal þess
sem fram kom á fjölmennri
ráðstefnu Heklunnar, atvinnu-
þróunarfélags Suðurnesja sem
haldin var í Hljómahöll sl.
fimmtudag. Þar var fjallað um
stöðuna á Suðurnesjum í dag,
tækifærin og þær hindranir
sem þarf að hafa í huga en yfir-
skrift ráðstefnunnar var: Hver
er staðan?
Á ráðstefnunni voru kynntar
niðurstöður skoðunarkönnunar
sem HN markaðssamskipti hafa
unnið fyrir Samband sveitarfélaga
á Suðurnesjum á ímynd Reykja-
ness og vinna sem framundan er
í bættri ímynd svæðisins í sam-
starfi við sveitarfélög og fyrirtæki
með stuðningi frá Sóknaráætlun
Suðurnesja.
Þeir sem fluttu erindi voru Skúli
Mogenssen framkvæmdastjóri
Vow air sem lagði áherslu á upp-
byggingu á Keflavíkurflugvelli til
framtíðar, Tómas Þór Eiríksson
framkvæmdastjóri Codland sagði
frá nýsköpun í sjávarútvegi þar
sem stefnt er að 100% nýtingu
þorksins, Kristján Ásmundsson
skólameistari FS sagði frá áskor-
unum í tengslum við starfs- og
iðnám á Suðurnesjum og Magnea
Guðmundsdóttir upplýsingafull-
trúi Bláa Lónsins sagði frá mikil-
vægi mannauðs hjá fyrirtækinu
sem er einn af stærri vinnuveit-
endum á Suðurnesjum.
Fundarsjtóri var Berglind Krist-
insdóttir framkvæmdastjóri
Heklunnar og Sambands sveitar-
félaga á Suðurnesjum. Sagði hún
eftirtektarvert hversu mörg verk-
efni væru í farvatninu á Suður-
nesjum og mikilvægt að rétt væri
að málum staði svo nýta megi
þau tækifæri sem vissulega búi á
svæðinu.
Magnea Guðmundsdóttir sagði
frá magnaðri uppbyggingu Bláa
Lónssins á undanförnum árum.
Ímynd Suðurnesja er lægsta allra
landssvæða á Íslandi en mörg
tækifæri eru í stöðunni til að snúa
því við, sagði Kristján Hjálmars-
son hjá HN markaðssamskiptum.
Skúli Mogensen eigandi Wow flugfélagsins segir að tækifærin séu gríðarleg
á Suðurnesjum í tenglsum við ferðaþjónustuna og starfsþröfin mikil á næstu árum:
Þið eruð sætasta stelpan á ballinu
Skúli Mogensen
fór mikinn í erindi
sínu um mögu-
leika Suðurnesja,
á gömlum heima-
slóðum en hann
fæddist í Keflavík
og bjó fyrstu árin
sín í bítlabænum.
VF-myndir/pket.