Víkurfréttir - 07.04.2016, Side 14
14 fimmtudagur 7. apríl 2016VÍKURFRÉTTIR
GRILLAÐUR KJÚKLINGUR
899
KR/STK
www.samkaupstrax.is | Tilboðin gilda alla virka daga
Hringbraut Keflavík | Opið virka daga: 9 til 22 og helgar: 10 til 22
Suðurnesjamennirnir Sigurður
Markús Grétarsson og Jóhann Líndal
Jóhannsson hófu störf hjá HS Orku í
mars mánuði síðastliðnum.
Sigurður er menntaður tölvunar-
fræðingur frá Háskólanum í Reykja-
vík og starfar sem deildarstjóri upp-
lýsingatækni HS Orku. Áður starfaði
Sigurður sem deildarstjóri reikninga-
gerðar hjá Vodafone.
Jóhann er löggiltur endurskoðandi
með meistaragráðu í reikningshaldi
og endurskoðun frá Háskólanum í
Reykjavík. Jóhann starfar sem sér-
fræðingur á fjármálasviði HS Orku
með umsjón með íslenska djúpbor-
unarverkefninu. Jóhann starfaði áður
sem verkefnisstjóri á endurskoðunar-
sviði Deloitte.
HS Orka fagnar því að fá til starfa tvo
öfluga Suðurnesjamenn í stækkandi
hóp starfsmanna fyrirtækisins, segir í
tilkynningu.
Siggi Markús og Jói Líndal
ráðnir til HS Orku
Vilja leita að gulli á
vatnsverndarsvæði
■ Orkustofnun hefur sent bæjaryfirvöldum í Grindavík beiðni um
umsögn vegna umsóknar frá Iceland Resources ehf. í Reykjanesbæ um
rannsóknarleyfi á nokkrum svæðum á Íslandi, þ.a.m svæði „EL 01“ á
Reykjanesi til leitar að gulli. Umrætt svæði er innan Grindavíkur.
Skipulagsnefnd Grindavíkur telur ekki líklegt að bætt verði inn nýjum
námum í aðalskipulagi Grindavíkur. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að
sækja beri um framkvæmdaleyfi fyrir öllum framkvæmdaleyfisskyldum
framkvæmdum tengdum verkinu sbr. reglugerð um framkvæmdaleyfi.
Innan svæðisins „EL 01“ er mikið af viðkvæmum svæðum m.a. svæði á
náttúruminjaskrá, vatnsverndarsvæði, nútímahraun ofl.
Skipulagsnefnd Grindavcíkur ítrekar að utanvegaakstur er með öllu
óheimill og leggur til við Orkustofnun að erindi Iceland Resources ehf.
verði sent Reykjanes Geopark til umsagnar á öllum stigum málsins. Mál-
inu var einnig vísað til umhverfisnefndar Grindavíkurbæjar.
N1 notar
lífdíselolíu frá
Íslensku eldsneyti
■ Fyrirtækið Íslenskt eldsneyti í Reykja-
nesbæ hefur samið við N1 um viðskipti
með vistvæna lífdíselolíu. Íslenskt elds-
neyti var stofnað árið 2013 og framleiðir
árlega um 1,2 milljón lítra af vistvænu
eldsneyti. Á næsta ári er stefnt að því að
framleiða 2,5 milljónir lítra.
Lífdíselolían verður notuð hjá N1 til íblönd-
unar í hefðbundna díselolíu. Hingað til
hefur N1 nær eingöngu notast við innflutta
lífdíselolíu. Framleiðsla Islensks eldsneytis
mun þó ekki duga N1 sem mun áfram not-
ast við innflutt íblöndunarefni að hluta.
Sigurður Markús Grétarsson Jóhann Líndal Jóhannsson
Íbúð verður tekin undir
félagsstarf aldraðra í Grindavík
■ Miðgarður, sem er aðstaða fyrir félagsstarf aldraðra í Grindavík, hefur
óskað eftir því að ein stór íbúð á neðri hæð við Austurveg nr. 5 í Grindavík
verði tekin undir starfsemi dagvistar aldraðra.
Félagsmálanefnd styður tillöguna. Á fundi bæjarráðs Grindavíkur á dögunum
fylgdu þau Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og
Stefanía Sigríður Jónsdóttir málinu úr hlaði. Bæjarráð Grindavíkur styður að
tillögunni verði komið til framkvæmda þegar íbúð losnar á jarðhæð Víðihlíðar.