Víkurfréttir - 07.04.2016, Blaðsíða 19
19fimmtudagur 7. apríl 2016 VÍKURFRÉTTIR
Helga Ragnarsdóttir, gjaldkeri minja-
félagsins, sagði í samtali við Víkur-
fréttir að hugmyndirnar með Norður-
kot væru að gera húsið að skólasafni
og gera merkilegri skólasögu Voga
myndarleg skil en sú saga er 144 ára
gömul.
Á safnahelgi á Suðurnesjum, sem
haldin var á dögunum, voru ýmsir
munir úr skólasögunni til sýnis í
Norðurkoti. Fjölmargir lögðu leið sína
í húsið til að skoða það og þá muni
sem það hefur að geyma.
Minjafélagið heldur ekki eingöngu
utan um Norðurkot. Ofan við húsið
stendur hlaðan Skjaldbreið sem reist
var um 1850 og stendur á hlaðinu
á Kálfatjörn. Skjaldbreið hefur um-
talsvert menningarsögulegt gildi um
aðstöðu og lifnaðarhætti bænda á
19. öld auk þess að vera ómissandi
hluti af umhverfinu við kirkjuna og
mikilvægur þáttur í sögu staðarins.
Samkvæmt aldursákvæði Þjóðminja-
varðar er hlaðan friðuð og vinnur
Minja- og sögufélag Vatnsleys-
ustrandar að endurbótum á henni.
Fyrir nokkrum árum varð mikið tjón
á hlöðunni í óveðri þegar þak hennar
fauk af í heilu lagi þannig að nú standa
bara eftir hlaðnir veggir hlöðunnar.
Til stendur að endurbyggja þakið á
næstu misserum en unnið er að fjár-
mögnun verksins.
Störf minjafélagsins snúast um að
varðveita minjar og sögu sveitarfélags-
ins, komandi kynslóðum til ánægju og
lærdóms. Frá stofnun hefur stjórn fé-
lagsins unnið hörðum höndum að því
að bjarga ýmsum gömlum munum frá
glötun ásamt því að miðla til almenn-
ings sögulegum staðreyndum og
halda á lofti gildi starfs af þessu tagi.
Einn af merkilegum munum sem
félagið varðveitir í dag er bátur sem
Ólafur Erlendsson frá Kálfatjörn og
fjölskylda gáfu minjafélaginu. Bátur-
inn er súðbyrðingur með engeysku
lagi. Hann var smíðaður um 1930 -
1940 og er einn fjölmargra báta sem
Ingimundur Guðmundsson, bóndi
á Litlabæ og nágranni Kálfatjarnar-
fólksins, smíðaði. Báturinn líkist mjög
þeim opnu mótorbátum sem ein-
kenndu bátaflotann á Íslandi frá 1925
til 1935. Í honum er vél áþekk þeim
sem knúðu þá báta, og hefur verið í frá
upphafi. Báturinn hefur nú að hluta til
verið gerður upp ásamt vél.
Þá hefur félagið unnið að ýmsum
verkefnum frá því starfsemi þess
hófst. Má þar meðal annars nefna
grjóthleðslunámskeið í samstarfi við
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum,
þátttöku í safnahelgi á Suðurnesjum,
verkefnið Sagan vaknar á vefnum sem
og söfnun á gömlum ljósmyndum
úr sveitarfélaginu, sem Sesselja Guð-
mundsdóttir hafði veg og vanda að.
Þá eru framtíðarverkefnin ótalmörg,
að sögn Helgu Ragnarsdóttur, gjald-
kera félagsins.
Hlaðan Skjaldbreið áður en óveður tók þakið af henni. Skólasögu Voga er gerð skil í Norðurkoti.
D 22
D 23
D 24
D 26
D 28
D 29
D 27
D 25
D 31
D 33
D
D 15
D 21 D 32
D 34
D 35
D 36
A 2
A 1
A 11
A 13
A 15
C 21 C 32
C 34
C 35
A 12
A 14
A 16
C 23
C 24
C 26
C 28
C 29
C 27
C 25
C 22
C 31
C 33
C 36
Skilta- og leiðbeiningarkerfi
Keflavíkurflugvallar hefur verið
endurskoðað með það að markmiði
að auðvelda farþegum að komast
leiðar sinnar.
Með breytingunni eru hlið aðgreind
með lit og bókstaf eftir því í hvaða
hluta flugstöðvarinnar þau eru og
hvort þau eru fyrir flug til áfanga-
staða innan eða utan Schengen
svæðisins. Leiðbeiningakerfið er
hugsað til framtíðar og mun falla
vel að framtíðaruppbyggingu
sam kvæmt þróunaráætlun
Keflavíkurflugvallar.
Við erum þess fullviss að breytingin
eigi eftir að gera ferðalagið
auðveldara og þægilegra.
— Góða ferð!
# W H E N I N K E F W W W. K E F A I R P O R T . I S
Ö N N U R
H Æ Ð
F Y R S T A
H Æ Ð
B R O T T F A R A R H L I Ð
Á K E F L A V Í K U R -
F L U G V E L L I
F Á N Ý N Ú M E R