Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.07.2016, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 21.07.2016, Qupperneq 1
n Sv e i t a r fé l a g i ð Garður hefur keypt sig inn í ferðaþjón- ustu á Garðskaga. Bæjarráð Garðs sam- þykkti á fundi sínum á dögunum að kaupa 8% hlut í ferðaþjón- ustufyrirtækinu Garðskaga ehf. sem rekur ferðaþjónustu í húsnæði byggðasafnsins og vitunum á Garð- skaga. Kaupin á 85 hlutnum eru að nafn- virði 800.000 krónur. Garðskagi ehf. hefur undanfarna mánuði unnið að breytingum á húsnnæði byggðasafns- ins á Garðskaga þar sem rými fyrir veitingaþjónustu hefur verið aukið. Þá hefur verið innréttað kaffihús í gamla vitanum á Garðskaga og unnið að uppsetningu sýninga í stærri vitanum. Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M • fimmtudagurinn 21. júlí 2016 • 29. tölublað • 37. árgangur Mótmæla skerðingu veiðiheimilda n Félag smábátaeigenda á Reykjanesi hefur sent þingmönnum Suðurkjör- dæmis opið bréf þar sem skerðingu á veiðiheimildum til strandveiða er harðlega mótmælt. Meðal þess sem kemur fram í bréfinu er að komin sé góð reynsla á veiðarnar og að þær hafi fest sig í sessi. Með reglugerð sem gef- in var út í vor, nokkru áður en strand- veiðar hófust, hafi afli á svæðinu frá Djúpavogshreppi að Arnarstapa verið skertur um 200 tonn, úr 1.500 tonn- um í 1.300 tonn, eða um 13,3 prósent. Félag smábátaeigenda á Reykjanesi skorar á þingmenn Suðurkjördæm- is að beita sér af alefli fyrir því að tonnunum 200 verði aftur bætt við veiðiheimildir. Í nýlegri könnun sem stuðnings- menn Elliða Vignissonar, bæj- arstjóra í Vestmannaeyjum, létu vinna sögðust 67,5% líklegri til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef Elliði leiddi listann í stað Ragnheiðar El- ínar Árnadóttur oddvita flokksins. Ragnheiður segir ekki missa svefn yfir könnunni en hún hyggst áfram bjóða sig fram í fyrsta sæti hjá Sjálf- stæðisflokknum í Suðurkjördæmi. „Er maður ekki alltaf í kosningabar- áttu,“ segir ráðherra létt í bragði þar sem blaðamaður nær af henni tali á ferðinni um suðurlandið. Þar er hún að tala við sveitastjórn- arfólk og taka stöðuna á ferðaþjón- ustunni. „Auðvitað berast kosningar til tals, annað væri óeðlilegt,“ bætir Ragnheiður við. „Ég ætla að fara fram aftur og þetta er sú aðferð sem við höfum til að velja okkar forystu með því að hleypa al- mennum flokksmönnum að. Ég er ákveðin í bjóða mig fram aftur. Ég er keik og legg mín verk í dóm kjósenda, hvort sem er í prófkjöri eða þegar við Sjálfstæðismenn göngum saman til kosninga. Þeir málaflokkar sem ég hef borið ábyrgð á, við höfum náð miklum árangri þar,“ segir iðnaðar- og viðskiptaráðherrann. Ragnheiður segist finna fyrir miklum stuðningi og meðbyr hjá Sjálfstæðis- mönnum. „Ég fæ mikla hvatningu og þá sérstaklega eftir að þessi umræða hefur farið hærra. Þetta kveikir í mín- um stuðningsmönnum og þeir eru all- ir komnir á fullt. Ég er mjög bjartsýn á þetta allt saman.“ Aðspurð um tölur úr könnun sem stuðningsmenn Elliða létu gera á dögunum þá segir ráðherra. „Veistu það að ég ætla bara að taka mark á stóru könnunni sem prófkjörið er.“ Ragnheiður hefur sjálf aldrei látið framkvæma slíka könnun fyrir próf- kjör og hyggst ekki gera það heldur núna. Henni finnst vænlegri aðferð að fara og tala við kjósendur augnliti til augnlits. „Ég gef ekki mikið fyrir þessa könnun fyrr en ég fæ að vita um aðferðafræðina. Þannig að ég missi nú engan svefn yfir þessari könnun og held mínu striki.“ Ragnheiður hefur einnig heyrt af gagnrýni þar sem hún ferðast um kjördæmið. „Þetta er ekki eintóm hal- elúja umræða. Það eru málaflokkar sem heyra kannski ekki beint undir mig sem ráðherra. Það eru helst inn- viðamál, samgöngur, heilbrigðismál, mér finnst fólk vera þeirrar skoðunar að þessi mál séu næst á dagskrá og að við þurfum að gera betur þar. Það er í takt við það sem við höfum sagt að við ætlum að gera. Nú er hugsanlega komið meira svigrúm en var í þröngri stöðu þegar við tókum við.“ Óásættanlegt að tvöföldun sé ekki á samgönguáætlun Ragnheiður segir að fundur með innanríkisráðherra og fulltrúum frá Stopp-hópnum hafi verið ánægju- legur. Þar hafi komið skýrt fram að innanríkisráðuneytið hafi augun á þessum bolta. „Það er vilji ráðherra að þessi hluti, Fitjar-Flugstöð, fari inn á 12 ára samgönguáætlunina fram að 2022. Ég verð svo að láta þakklæti mitt í ljós til hópsins sem hefur sett málið fram á málefnalegan hátt þannig að það sé tryggt að það verði hlustað. Menn gera sér líka grein fyrir því að það er ekki bara þarna sem úrbóta er þörf. Nú er verið að koma þessu í þannig farveg að við sjáum til lands. Í millitíðinni getum við sinnt þeim úrbótum sem eru nauðsynlegar en meira hugsaðar til bráðabirgða til þess að tryggja öryggi okkar sem þurfum að ferðast þarna um að hverjum degi.“ Ragnheiður segir að langtímamark- miðið sé að ljúka tvöföldun og eygir von um að það verk komist inn á sam- gönguáætlun. „Það er óásættanlegt að þetta sé ekki þar vegna mikilvægis þessarar framkvæmdar,“ segir hún að endingu. l Ragnheiður Elín leggur verk sín í dóm kjósenda l Vilji til að Reykjanesbraut fari á samgönguáætlu „Tek mark á stóru könnunni“ n Hulda Sveins- dóttir hlaut áverka á háls árið 2005 og átti eftir það erfitt með svefn. Í fram- haldinu þróaði hún heilsukodd- ann Keili fyrir fólk með hálsáverka. Hann hefur verið seldur í litlu upplagi hér á landi síðan 2009 en á dögunum gerði Hulda samning við heilsufyrir- tækið Careware Kompagniet í Danmörku um dreifingu á Norð- urlöndunum til að byrja með og víðar í framtíðinni. Nánar er fjallað um koddann og rætt við Huldu í miðopnu VF í dag. Heilsukoddinn Keilir á markað erlendis Kaupa hlut í ferðaþjónustu á Garðskaga Fulltrúar hópsins áttu fund með innanríkisráðherra og Iðnaðar-, við- skipta- og ferðamálaráðherra til að koma á framfæri kröfum sínum. Ísak Ernir Kristinsson íbúi Reykjanes- bæjar og talsmaður hópsins segir að hópurinn muni standa fyrir ýmsum uppákomum á samfélagsmiðlunum á næstunni. „Þetta er okkar samfé- lagslega verkefni og við verðum að standa saman í því. Sögurnar eru svo margar, þær eru svo erfiðar og sár- ar margar hverjar og við verðum að nýta þær til þess að segja að við vilj- um ekki meira af þessu.“ Ekki fékkst sérstakt leyfi til þess að staðsetja skiltin við Reykjanesbraut- ina við Fitjar og við Rósaselstorg. „Við sem íbúar þessa samfélags höfum ekki verið spurð leyfis um hvort við viljum hafa slæmt umferðaröryggi. Við búum við slæmt umferðaröryggi og það er ekkert almennilegt verið að gera til þess að fara í bráðabirgðaað- gerðir er varða þessi þrjú hættulegu gatnamót. við Hafnarafleggjara, Að- algötu og Þjóðbraut. Þannig að við verðum að gera eitthvað. Ég veit að vegagerðin er öll að vilja gerð en það er pólitíkin sem verður að koma með fjármuni í þetta verkefni. Við erum ekki með leyfi en við höfum ekki ver- ið spurð leyfis hvort við viljum búa við sæmt umferðaröryggi,“ sagði Ísak í samtali við VF. „VARÚÐ - BANASLYS HAFA ORÐIÐ Á NÆSTU FJÓRUM KÍLÓMETRUM“ Félagar í samfélagshóp sem hefur það að markmiði að þrýsta á stjórnvöld um að tvöfalda Reykjanesbrautina frá Keflavíkurflugvelli til Hafnarfjarðar, létu til sín taka á táknrænan hátt með því að setja upp skilti á tveimur stöðum við Reykjanesbrautina í vikunni. Þau fengu að standa í rúman sólarhring þangað til að starfsmenn Vegagerðarinnar fjarlægðu þau. Á skiltinu eru stutt en skýr skilaboð: „Varúð - banaslys hafa orðið á næstu fjórum kílómetrum - akið varlega!“ Textinn er einnig á ensku enda eru fjölmargir erlendir ferðamenn í umferðinnni árið um kring. l Skilti stopp-hópsins tekin niður jafnharðan af Vegagerðinni l „Búum við slæmt umferðaröryggi“

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.