Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.07.2016, Qupperneq 2

Víkurfréttir - 21.07.2016, Qupperneq 2
2 fimmtudagur 21. júlí 2016VÍKURFRÉTTIR n Einn hraðbanki er í Sandgerði og hefur hann verið bilaður síðan í lok apríl. Hraðbankinn er á vegum Landsbankans sem áður rak útibú í bæjarfélaginu í mörg ár en því var lokað haustið 2014. Sandgerðingar eru því margir hverjir orðnir lang- þreyttir á biðinni eftir að hrað- bankinn verði lagfærður og hafa Víkurfréttum borist ábendingar þess efnis. Að sögn Sigrúnar Árna- dóttur, bæjarstjóra í Sandgerði, hafa bæjaryfirvöld látið sig málið varða og þrýst á Landsbankann að hafa hraðbankann aðgengilegan. „Okkur hefur þótt taka allt of langan tíma að setja upp hér nýjan hraðbanka og íbúar hafa kvartað vegna þessa,“ segir hún. Samkvæmt upplýsingum frá Lands- bankanum eru margar ástæður fyrir því að ekki er búið að koma hraðbank- anum í Sandgerði í lag. Ekki er hægt að laga þann sem fyrir er og var því fjárfest í nýju tæki sem nýkomið er til landsins. Þá hefur verið ákveðið að færa hraðbankann í nýtt og hent- ugra húsnæði en þar þarf að gera breytingar svo að aðgengi verði að hraðbankanum allan sólarhringinn. Í svari bankans segir að töfin hafi komið sér illa fyrir alla íbúa Sandgerð- isbæjar og hefur bankinn fullan skiln- ing á óánægju viðskiptavina vegna málsins. „Því miður hefur ekki tekist að klára málið eins fljótt og væntingar stóðu til en nú hyllir undir lokin á verkefninu,“ segir jafnframt í svari bankans. Reykjanesbraut hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga en krafan um tvöfalda Reykjanesbraut alla leið frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar og í Hafnarfjörð verður háværari með hverjum deginum. Umferðin um Reykjanesbaut eykst stöðugt sem m.a. má rekja til aukinnar flugumferðar um Keflavíkurflugvöll. Myndina hér að ofan tók Einar Guðberg frá efstu hæð háhýsis við Pósthússtræti í Keflavík og sýnir hún langa röð flugvéla bíða eftir því að komast í flugtak frá Keflavíkurflugvelli á dögunum. Myndin er táknræn fyrir þá þéttu umferð sem er til og frá Keflavíkurflugvelli. Farþegafjöldi WOW air tvöfaldast n WOW air flutti 168.451 farþega til og frá landinu í júní eða um 103 pró- sent fleiri farþega en í júní í fyrra. Sætanýting WOW air í júní var 86 prósent en sætanýting í fyrra á sama tímabili var 83 prósent og er þetta aukning um þrjú prósentustig þrátt fyrir mikla framboðsaukningu. Sætanýting WOW air jókst milli ára þrátt fyrir 97 prósent aukningu á sætaframboði í júní en félagið hóf áætlunarflug í þessum mánuði til San Francisco, Los Angeles, Frankfurt og Nice. Framboðnum sætiskílómetrum fjölgaði um 125 prósent í júní frá því á sama tíma í fyrra. Það sem af er árinu hefur WOW air flutt um 548 þúsund farþega en það er 111 prósent aukning farþega á sama tímabili frá árinu áður. Íslenskir Aðalverktakar hættu framkvæmd- um við kísilver United Silicon í Helguvík á hádegi sl. fimmtudag. Að sögn Sigurðar R. Ragnarssonar, forstjóra ÍAV, var það vegna ógreiddra skulda sem slaga hátt í milljarð króna. Ekki er öll upphæðin þó gjaldfallin. Hins vegar segir Magnús Garðarsson, fram- kvæmdastjóri United Silicon, að fyrirtækið hafi rift samningi við ÍAV vegna ýmissa van- efnda, til að mynda við skil á verkinu sem hann segir hafa tafist. Þá hafi ÍAV innheimt hærri upphæð en samið var um. „Við fengum þau skilaboð að United Silicon ætli ekki að greiða neitt af þessari upphæð og því var þessi ákvörðun tekin,“ segir Sigurður. ÍAV hefur verið aðalverktaki við framkvæmdir kísilversins og var að leggja lokahönd á þær þegar framkvæmdum var hætt í gær. Enn á verktakafyrirtækið búnað á staðnum sem Sig- urður segir að þeim hafi verið varnað að sækja. „Við ætlum þó ekki að standa í handalögmálum við starfsfólk United Silicon til að sækja búnað- inn, heldur láta frekar reyna á dómstólaleiðina.“ Á framkvæmdatímanum hefur ÍAV verið með mikinn búnað á svæðinu en að sögn Sigurðar er það sem eftir er óverulegt í samanburði var það sem áður var þar, en þó nokkurra milljóna virði. Magnús segir hluta af búnaðinum hafa verið keyptan af ÍAV en að United Silicon hafi þegar greitt fyrir hann og því hafi lögregla verið kölluð til sl. fimmtudag þegar ÍAV var að fjar- lægja búnaðinn. Magnús kveðst fagna því að málið fari fyrir dóm og vonar að það leysist þar. Áfram verði haldið með framkvæmdir sem eru á lokametrunum og framleiðsla hafin í ágúst. l Íslenskir Aðalverktakar segja ógreidda skuld kísilversins vera um einn milljarð króna l Lögregla kölluð til sl. fimmtudag ÍAV og United Silicon deila um fram- kvæmdir við kísilverið í Helguvík Þétt umferð um Keflavíkurflugvöll Hraðbankinn í Sandgerði bilaður síðan í apríl Horft yfir byggðina í Keflavík og til Helguvíkur þar sem kísilver United Silicon hefur verið að rísa undanfarna mánuði. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson Hraðbanki þeirra Sandgerðinga hefur verið bilaður frá því í byrjun sumars. Isavia hefur afhent Kaffitári gögn er tengjast forvali um samkeppni til reksturs verslana og veitinga- staða í flugstöðinni á Keflavíkur- flugvelli. Á vef Isavia kemur fram að gögnin hafi verið boðsend í morgun á skrifstofu Kaffitárs þar sem tekið var við þeim. Þar segir jafnframt að Samkeppniseftirlitið hafi varað við því að afhending gagnanna, sem og viðtaka, gæti verið brot á samkeppnislögum og því hafi hendur Isavia eru bundnar í þessu máli þar sem Héraðsdómur Reykjavíkur hafi úrskurðað að af- henda bæri gögnin. Samkeppniseftirlitið hafði beint þeim tilmælum til Isavia og Kaffi- társ að leita allra mögulegra leiða til að veita Kaffitári aðgang að þeim upplýsingum sem gera félaginu kleift að gæta að réttarstöðu sinni án þess að sú upplýsingamiðlun gangi svo langt að samkeppni væri rask- að. Í því skyni bauð Isavia Kaffitári að lögmenn félaganna settust yfir gögnin og fyndu leið til að verða við tilmælum Samkeppniseftirlitsins. Því hafnaði Kaffitár, samkvæmt frétt á vef Isavia. Þá kemur þar fram að Isavia hafi alla tíð haldið því fram að óeðlilegt væri að afhenda þriðja aðila viðkvæm gögn um rekstur og áætlanir samkeppnisaðila og að Samkeppniseftirlitið taki undir það í bréfi sínu. Isavia hefur afhent Kaffitári gögnin

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.