Víkurfréttir - 21.07.2016, Qupperneq 4
4 fimmtudagur 21. júlí 2016VÍKURFRÉTTIR
Þegar atvinnuleysi var sem verst á
árunum eftir hrun var sett af stað
virkniverkefni hjá sameiginlegri
félagsþjónustu Sandgerðisbæjar,
Sveitarfélagsins Garðs og Sveitar-
félagsins Voga. Þó svo að flestir
sem eru vinnufærir hafi fengið
vinnu með batnandi atvinnuá-
standi heldur virkniverkefnið
áfram enda alltaf einhverjir
sem af ýmsum ástæðum fara af
vinnumarkaði. Una Björk Krist-
ófersdóttir félagsráðgjafi segir
markmiðið með virkniverkefninu
að allir hafi hlutverk. „Það er
aldrei of oft sagt hversu mikilvæg
virkni er. Að fólk fari á fætur á
morgnana, að lífið sé í rútínu og
að fólk hafi hlutverk. Það skiptir
svo miklu máli að eiga að mæta
eitthvert og að fólk finni að það
skipti máli fyrir sig sjálfa, fyrir aðra
og fyrir samfélagið,“ segir hún.
Árið 2014 var samanlagður fjöldi þeirra sem þáði
fjárhagsaðstoð til framfærslu frá félagsþjónustu
sveitarfélaganna þriggja rúmlega fimmtíu. Í dag
hefur fjöldinn fækkað um meira en helming. „Það
er mikill munur á aðeins tveimur árum. Ég tel að
fjöldinn hafi náð hámarki í flestum sveitarfélögum
í kringum árið 2014. Núna eru breyttir tímar og
atvinnuhorfur á Suðurnesjum aðrar og störfum
hefur fjölgað. Eftirspurn eftir vinnuafli hefur auk-
ist.“ Á árunum eftir hrun voru flestir sem leituðu
til félagsþjónustunnar eftir fjárhagsaðstoð til fram-
færslu vinnufærir en án atvinnu og án atvinnu-
leysisbóta. Í dag er meirihlutinn aftur á móti fólk
sem ekki er vinnufært. Una segir ekki alltaf liggja
ljóst fyrir hvers vegna fólk er óvinnufært og ekki á
vinnumarkaði. „Stundum vantar fólk aðeins aðstoð
við atvinnuleit en svo geta líka legið aðrar og dýpri
ástæður að baki því að fólk fór af vinnumarkaði
og þá þarf að vinna með það. Ástæðurnar geta
verið margvíslegar enda erum við öll ólík og bak-
runnur mismunandi. Ástæðurnar geta til dæmis
verið andleg og/eða líkamleg veikindi, neysla eða
annað.“
Að jafnæði er gerð einstaklingsáætlun með hverj-
um og einum, fólk skráir sig vikulega á bæjarskrif-
stofunni og segir Una það hluta af því að halda
fólki virku í atvinnuleitinni. Ásamt því að mæta
reglulega í viðtöl til félagsráðgjafa. Vinnufærum
einstaklingum sem leita til félagsþjónustunnar
er vísað í Stíg, sem er samstarfsverkefni á vegum
Vinnumálastofnunar og félagsþjónustunnar. Það
er fyrir einstaklinga sem eru í atvinnuleit en án
atvinnuleysisbóta en fær framfærslu frá sveitarfé-
laginu. Þar fær fólk aðstoð í atvinnuleit og er vísað
í úrræði á vegum Vinnumálastofnunar.
Einnig eru í boði úrræði hjá Miðstöð símenntun-
ar á Suðurnesjum (MSS), meðal annars virkni-
námskeið sem er samstarfsverkefni félagsþjónustu
Sandgerðisbæjar, Sveitarfélagsins Garðs og Sveitar-
félagsins Voga, félagsþjónustunnar í Reykjanesbæ
og MSS. Virkninámskeiðið er fyrir atvinnuleitend-
ur sem fá fjárhagsaðstoð hjá sveitarfélögunum.
Atvinnuleitendum, 25 ára og yngri, er vísað í Fjöl-
smiðjuna og er félagsþjónustan reglulega með sam-
ráðsfundi með þátttakendum þar sem og forstöðu-
manni Fjölsmiðjunnar.
Að sögn Unu getur langvarandi atvinnuleysi haft
mikil áhrif á einstaklinginn, sjálfstraust hans, sem
og fjárhagslega- félagslega- og heilsufarslega stöðu
viðkomandi.
Eftir að fólk hefur verið án atvinnu í langan tíma
getur átta stunda vinnudagur stundum verið yfir-
þyrmandi, að sögn Unu. Því sé gott að búta vinnu-
daginn niður á meðan fólk aðlagast því að vinna
fullan vinnu. „Stundum er fólk tilbúið að vinna
fullan vinnudag en það getur verið þannig ef fólk er
með stutta vinnusögu, hefur lengi verið án atvinnu
og hugsanlega að glíma við veikindi sem hamla því
þá er oft gott að starfshlutfallið sé minna til að byrja
með.“ Kröfur vinnumarkaðsins er mismunandi og
þarf að samræma hvert mál fyrir sig sem hentar
best fyrir einstaklinginn og vinnustaðinn.
Í þeim tilfellum sem fólk er óvinnufært er einstak-
lingum vísað í endurhæfingu í samráði við lækni.
Ýmis úrræði eru einnig í boði fyrir fólk sem ekki er
vinnufært, til að mynda Virk: starfsendurhæfing,
Björgin: geðræktarmiðstöð á Suðurnesjum, Mið-
stöð Símenntunar á Suðurnesjum sem og regluleg
viðtöl hjá félagsráðgjafa.
Hvernig gengur svo hjá fólki almennt að fara út á
vinnumarkaðinn eftir langvarandi atvinnuleysi?
„Ég upplifi að fólk almennt þiggur þær ráðleggingar
sem það fær. Fólk er að öllu jöfnu móttækilegt og
tilbúið í þetta og vill breyta til. Fólk er misjafnt eins
og það er margt. Við horfum á hvert og eitt mál og
reynum að finna hvað hentar hverjum og einum,“
segir Una að lokum.
dagnyhulda@vf.is
Gúmmíkurlið
ryksugað upp
Nú er unnið að því að ryksuga gúmmí-
kurl af sparkvöllunum tveimur í
Grindavík auk þess að skipta út grasi
á eldri vellinum við Ásabraut. Samið
var við Altis um framkvæmdina.
Myndin var tekin sl. mánudag við
Ásabrautina í Grindavík þar sem
byrjað er á því að ryksuga gúmmí-
kurlið upp áður en grasið verður
svo rifið af og nýtt sett í staðinn.
Ljósmynd: Grindavíkurbær
Lögreglan
stöðvaði veiði
á Pókemo
Ökumaður bifreiðar var stöðvaður
á Ránargötu í Reykjanesbæ eftir að
hafa ekið á móti einstefnu á Suður-
götu. Ökumaðurinn kvaðst hafa verið
að aka um með unnustu sinni í leit
af Pokemonum og hafi hann ekki
verið alveg að fylgjst með umferða-
merkjum. Ökumaður játaði brotið
og staðfesti vett-
vangskýrslu með
undirskrift sinni,
segir í tilkynningu
frá lögreglunni á
Suðurnesjum.
„Nú er komið að
þeim tímapunkti að við verðum að
fara að taka okkur taki, öll sömul, og
fylgjast með umhverfinu í kringum
okkur er við erum úti í umferðinni. Nú
er sumar og mikið af börnum og fólki
á götum og gangstéttum og vitandi
það að ökumenn eru farnir á Pokemon
veiðar á bílunum sínum er galið. Allir
vita hættuna sem getur skapast við
það að vera í símanum og aka bifreið
á sama tíma og er ekkert það mikil-
vægt að það megi ekki bíða í nokkrar
mínútur. Ef það er mikilvægara en svo
þá er hægt að fara út í kant og svo má
benda á það að handfrjáls búnaður er
ódýrari en sektin sem hlýst af því að
aka bifreið og nota farsíma. Svo skilst
okkur að þetta Pokemon æði sé hin
besta hreyfing og viljum við hvetja
fólk til að fara út og ganga um bæinn
í leit af þessum verum,“ segir á fés-
bókarsíðu Suðurnesjalögreglunnar.
Skemmdar-
verk og rusl
við Krísuvík
Það var ófögur sjón sem blasti við
vegfarendum í Krísuvík þar sem fólk
hafði augljóslega komið saman að
skemmta sér um helgina. Gestirnir
skildu eftir sig talsvert magn af rusli
á túninu við kirkjustæðið í Krísuvík.
Auk þess að dreifa rusli um svæðið
höfðu gestirnir kveikt í vörubrettum
og unnið skemmdir á sviði sem er á
svæðinu. Marta Sigurðardóttir bæj-
arfulltrúi í Grindavík var á ferðinni
um Krísuvík á sunnudag og greindi
hún frá þessu á Facabooksíðu sinni.
Marta segir að Óskar Sævarsson
landvörður og kona hans Guðbjörg
Eyjólfsdóttir hafi verið önnum
kafin við þrif þegar hana bar að.
„Það er aldrei of oft sagt
hversu mikilvæg virkni
er. Að fólk fari á fætur á
morgnana, að lífið sé í rútínu
og að fólk hafi hlutverk,”
segir Una Björk Kristófers-
dóttir, félagsráðgjafi hjá
félagsþjónustu Sveitarfé-
lagsins Garðs, Sandgerðis
og Sveitarfélagsins Voga.
Markmiðið að
allir hafi hlutverk
l Á árunum eftir hrun voru flestir sem leituðu til félagsþjónustunnar eftir fjárhagsaðstoð til framfærslu vinnu-
færir en án atvinnu og án atvinnuleysisbóta l Í dag er meirihlutinn aftur á móti fólk sem ekki er vinnufært