Víkurfréttir - 21.07.2016, Qupperneq 9
9fimmtudagur 21. júlí 2016 VÍKURFRÉTTIR
Bifhjólaklúbburinn Ernir stóð fyrir fjölmennri
minningarstund á Reykjanesbraut við Hafna-
veg sl. fimmtudagskvöld þar sem Jóhannesar
Hilmars Jóhannessonar var minnst. Hann lést
í umferðarslysi á gatnamótunum fyrir hálfum
mánuði.
Óskar Húnfjörð, formaður Arna, flutti ávarp þar
sem hann hvatti til vitundarvakningar í umferðar-
öryggismálum, að bifhjólafólk klæddist sýnilegri
fatnaði. Þá hvatti hann ökumenn til að spyrja sig
spurningarinnar „Er bifhjólamaður í nánd?“.
Eftir ávarp Óskars settist hjólafólkið á fáka sína og
þandi mótora í 10 sekúndur. Þá var öllum boðið
til kaffisamsætis í félagsheimili bifhjólaklúbbsins á
Ásbrú. Ávarpið má lesa hér að neðan.
„Félagar, góðir gestir. Ég vil þakka ykkur fyrir að
koma hingað í kvöld og deila með okkur þessari
stund. Það vita allir hvert tilefnið er, en í síðustu
viku var hér hræðilegt slys, þar sem Jóhannes
Hilmar Jóhannesson lét lífið á mótorhjóli sínu.
Við skulum láta þetta atvik vera okkur hvatning til
þess að eiga samtal við alla bílstjóra og líka samtal
við okkur sjálf, varðandi öryggi hjólamanna. Við
þurfum að útskýra fyrir bílstjórum hvað erfitt er
að koma auga á okkur og hvað við erum óvarin
í umferðinni og hve auðveldlega við getum orðið
fyrir líkamstjóni jafnvel við minnstu óhöpp.
Við skulum fá bíl-
stjóra ti l þess að
spyrja sig viðbót-
arspurningar eftir
að þeir hafa litið eftir
öðrum bílum í um-
ferðinni, spurningu
sem hljóðar svona:
„ER BIFHJÓLA-
MAÐUR Í NÁND“.
Það eru líka aðrar
hliðar á þessum ör-
yggismálum hjóla-
manna sen snúa að
okkur sjálfum. Það
er sýnileiki okkar
hjólamanna. Okkur
finnst við öll voða
flott og töff í svörtu
búningunum okkar þegar við erum úti að hjóla.
En við verðum ekki svo töff þegar búið er að
KLESSA okkur, hvort sem er af völdum annar í
umferðinnin eða okkar sjálfra.
Þess vegna er það svo mikilvægt, eins og þegar
við setjumst undir stýri og setjum á okkur bíl-
beltin, að þegar við setjumst á hjólin, klæðast
þá SÝNILEIKAVESTI eða vera í vel sýnilegum
búningi áður en við byrjum að hjóla og förum út
í umferðina.
Það getur hjálpa til þess að aðrir ökumenn sjái
okkur betur og við komumst heil á húfi heim úr
hjólatúrnum.
Þriðja hliðin er svo ofsaakstur sumra okkar hjóla-
manna, með hraðakstri erum við að draga veru-
lega úr líkum þessa að aðrir bílstjórar geti séð okk-
ur og brugðist við eftir aðstæðum. Með hraðakstri
erum við líka að draga úr virðingu annara vegfar-
anda gagnvart okkur hjólafólki.
Við erum hér samankomin til að sýna hinum
látna Jóhannesi Hilmari virðingu okkar og sýna
samstöðu um aukna athygli á öryggi bifhjólafólks.
Ég ætla fyrir hönd okkar allra að leggja blóm hér
við slysstaðinn og kveikja á kerti til minngingar
um fallinn hjólamann. Við sendum ættingjum og
ástvinum Jóhannesar okkar dýpstu samúðarkveðj-
ur og við sendum þeim líka góðar hugsanir.
Við munum svo setjast á hjólin okkar ræsa þau og
þenja mótorinn í 10 sec. í virðingaskyni við hinn
látna.
Að lokum skulum við svo hjóla upp í Hreiður og
þiggja kafi og meðlæti í boði Bifhjólaklúbbsins
ARNA. Takk fyrir samstöðuna um að AÐ LÁTA
TIL OKKAR TAKA,“ sagði Óskar Húnfjörð í
ávarpi sínu.
Hulda kynnti
heilsukoddann
Keili á heilsuráð-
stefnu í Kaup-
mannahöfn á
dögunum. Eftir
ráðstefnuna gerði
hún samning við
danskt fyrirtæki
um að koma
honum á markað
í Danmörku, Sví-
þjóð og Noregi.
koddann því þegar maður er með
hálsáverka getur maður ekki gist með
hvaða kodda sem er á hótelum.“
Koddinn hefur fengið ýmis verðlaun
á erlendri grundu, til að mynda
Special Recognition Award hjá
EUWIIN (European Union Women
Inventors & Innovators Network)
og Inpex-verðlaunin í flokknum
Health and Fitness í Pittsburgh í
Bandaríkjunum. Það verður því
spennandi að fylgjast með markaðs-
sókn Huldu erlendis með koddann
Keili. Hún segir marga hafa stutt sig
við það verkefni að koma koddan-
um á markað og að án þeirra hafði
hann aldrei orðið að veruleika.
Nánar má lesa um
heilsukoddann Keili á vefsíð-
unni buildyourpillow.com og á
Facebooksíðunni
Keilir Health Pillow.
HULDA SVEINSDÓTTIR hlaut áverka á háls árið 2005 og átti eftir það erfitt með svefn. Í framhaldinu þróaði hún heilsukoddann Keili fyrir fólk með hálsá-
verka. Hann hefur verið seldur í litlu upplagi hér á landi síðan 2009 en á dögunum gerði Hulda samning við heilsufyrirtækið Careware Kompagniet í Dan-
mörku um dreifingu á Norðurlöndunum til að byrja með og víðar í framtíðinni. „Það eru spennandi tímar framundan og gaman að hafa náð samningum um
dreifingu á Norðurlöndum,“ segir Hulda en koddinn verður framleiddur hjá fjölskyldufyrirtækinu Ekamed í Þýskalandi. Koddinn samanstendur af fimm
stykkjum, botni, tveimur hliðarstykkjum og tveimur sívalningum sem festir eru á botnstykkið með frönskum rennilás.
Koddinn samanstendur
af fimm stykkjum, botni,
tveimur hliðarstykkjum
og tveimur sívalningum
sem festir eru á botns-
tykkið með frönskum
rennilás. Búið er að setja
koddaver utan um efri
koddann á myndinni.
VF-myndir/Aldís Ósk
l Ökumenn spyrji sig: Er bifhjólamaður í nánd?
Fjölmenn minningarstund
við Reykjanesbraut
Allur ágóði grannaslags í Garði
rennur til fjölskyldu Jóhannesar
Í kvöld, fimmtudagskvöld, mætast erkifjendurnir Víðir og Reynir í 3. deild karla í
fótbolta. Leikurinn fer fram í Garðinum en Víðismenn sigruðu í síðustu rimmu 0-3
í Sandgerði. Allur ágóði af miðasölu mun renna til fjölskyldu Jóhannesar Hilmars
Jóhannessonar sem lést í umferðarslysi við Hafnarveg fyrir skömmu. Leikurinn hefst
klukkan 20:00 en grillin fara í gang klukkan 19:00.
Frá minningarstundinni á gatnamótum Reykjanes-
brautar og Hafnavegar í síðustu viku.
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi
Vélhjólafólk af Suðurnesjum fjölmennti í minningarstundina.