Víkurfréttir - 21.07.2016, Síða 10
10 fimmtudagur 21. júlí 2016VÍKURFRÉTTIR
LESANDI VIKUNNAR
Hvaða bók ertu að lesa núna?
Núna er ég að bíða eftir bók sem kom nýverið út, bókin
heitir Iréne en hún er glæpasaga eftir franskan höf-
und að nafni Pierre Lemaitre . Í biðinni er ég að
lesa krimma eftir Camillu Läckberg.
Hver er þín eftirlætis bók?
Það er bókin Veröld sem var eftir Stefan
Zweig. Ég lá á sjúkrahúsi og mátti ekki
hreyfa mig og þá kom einhver hérna frá
Bókasafni Reykjanesbæjar með bókina
á hljóðbók til mín. Ég hlustaði á hana
aftur og aftur og endaði svo á að kaupa
mér hana þegar mér gafst tækifæri til.
Hver er eftirlætis höfundurinn þinn?
Þeir eru nú svo margir en sem barn
hélt ég mikið upp á Mark Twain og
í dag les ég allt, bæði gamalt og nýtt.
Ég held mikið upp á Auði Övu, Auði
Jónsdóttur, Einar Má, Mikael Torfason,
Kristínu Steins en ég var mjög ánægð með
bækurnar Á eigin vegum og Vonarland, Jane
Aamund, Marianne Fredriksson og ég býð
alltaf eftir bókum frá Jóni Kalman.
Hvernig bækur lestu helst?
Ég les mest skáldsögur og ef fræðibækur verða fyrir valinu
eru það helst sagnfræðibækur. Einnig les ég ævisögur og þá
vel ég ævisögur þeirra sem hafa skipt máli fyrir framgang
sögunnar, líkt og ævisögu Winston Churchill og fleiri.
Mér finnst líka mjög gaman að lesa um framandi hluti og
nefni þá Saffraneldhúsið og Hús moskunnar.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig?
Bókin Veröld sem var eftir Stefan Zweig en
aðstæður voru líka sérstakar.
Hvaða bók ættu allir að lesa?
Það er erfitt að segja til um það, fólk svo
ólíkt. Helst væri það Austurlandaviska
eina og Vegurinn og allir hefðu gott af
því að lesa Hávamál.
Hvar finnst þér best að lesa?
Í rúminu.
Hvaða bækur standa upp úr sem þú
vilt mæla með?
Það eru helst þessar bækur sem ég hef
verið að nefna en ég hef verið að gefa bæk-
ur eftir Jón Kalman, Einar Má, Auði Övu og
Auði Jónsdóttur í jólagjafir. Ég gef ekki nema
það sem ég hef gaman að sjálf.
Við þökkum Ásrúnu kærlega fyrir og minnum á heima-
síðu safnsins: sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn þar sem
hægt er að mæla með Lesanda vikunnar. Einnig minnum
við á að allir eru velkomnir í leshring eða Bókaspjall
Bókasafns Reykjanesbæjar sem hefst aftur í september.
ALLIR HEFÐU GOTT AF
ÞVÍ AÐ LESA HÁVAMÁL
Ásrún Ingadóttir geislafræðingur hefur verið í leshring í Bókasafni Reykjanesbæjar í um 8 ár en hún hefur alltaf lesið
mikið, alveg frá því hún lærði að lesa.
Í hverri viku í allt sumar verður valinn Lesandi vikunnar í Bókasafni Reykjanesbæjar. Lesandi vikunnar birtist í Víkur-
fréttum alla fimmtudaga í sumar. Í lok hvers mánaðar fær einhver einn heppinn lesandi lestrarverðlaun. Allir sem vilja
taka þátt eða mæla með lesanda þurfa að skrá sig en það er hægt að gera í afgreiðslu Bókasafnsins eða á heimasíðu safns-
ins:sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn
„Ég les mest skáldsögur og ef
fræðibækur verða fyrir valinu
eru það helst sagnfræðibækur.“
Aukavinna
Óskum eftir tveimur smiðum til
að skipta um járn á gömlu húsi.
Reynsla nauðsynleg.
Húsið er staðsett í Grindavík.
Nánari upplýsingar gefur
Örn Sigurðsson í síma 869 6820
lést á heimili sínu, þriðjudaginn 12. júlí.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju,
fimmtudaginn 21. júlí kl: 13:00.
Guðný Rós Hinriksdóttir, Harry Kahari,
Valgeir Örn Hinriksson Birgitta Rán Óskarsdóttir
Magdalena Olsen, Valgeir J. Þorláksson,
barnabörn og Ásmundur Örn Valgeirsson
lést 11. júlí sl. á Mary Immaculate
sjúkrahúsinu í Newport News VA., Bandaríkjunum.
Anthony Ciotta og fjölskylda
Lúðvík, Halldóra , Þórhallur, Gréta , Edda
Guðmundsbörn og fjölskyldur.
Faðir okkar, tengdafaðir, sonur,
afi og bróðir,
Hinrik Þór Valgeirsson
Gónhól 7, Njarðvík
Elskuleg eiginkonan mín,móðir
okkar, tengdamóðir, amma og systir
Inga K. Guðmundsdóttir Ciotta
frá Litlabæ í Keflavík F: 26. 1. 1939 Hvernig verður sumarfríið hjá þér
í ár?
Sumarið í sumar verður í raun eitt
langt sumarfrí bæði heima og að
heiman því ég er á milli starfa. Frí-
ið mitt byrjaði á því að ég fór ásamt
hundinum okkar alein á Snæfellsnes
og dvöldum við þar í tjaldvagni í tæp-
ar þrjár vikur án rafmagns, alveg dá-
samleg upplifun en stundum ögrandi.
Þetta var einkadraumurinn minn sem
eiginmaðurinn deildi ekki með mér
vegna starfa erlendis. Ég er svo mikið
náttúrubarn og fer daglega í göngu-
ferðir úti í náttúrunni. Elska að labba
í fjörunni eða í móanum fyrir ofan
Sandgerði þar sem ég bý. Hundar eru
góðir göngufélagar.
Eftirminnilegasta sumarfríið?
Ég á margar skemmtilegar minningar
um sumarfrí með fjölskyldu minni
og svo einnig með sjálfri mér. Það er
stundum þannig að mig langar að
prófa að gera eitthvað sem öðrum
finnst ekkert svakalega spennandi og
þá fer ég bara ein. Skrýtnasta sumar-
fríið mitt er sennilega þegar ég fór á
gyðjunámskeið úti í skógi í Wales fyrir
sextán árum. Við hjónin höfum oft
ferðast innanlands og erlendis. Ísland
er auðvitað alltaf best og náttúran svo
sæt og saklaus, engar slöngur eða úlfar
og birnir.
Hvert væri draumasumarfríið?
Við hjónin eigum okkur þann draum
að skoða Hawaii og sigla svo á skipi
þaðan um fallegar paradísareyjar í
Kyrrahafinu.
Kennarinn Marta Eiríksdótt-
ir er mikið náttúrubarn og
fer daglega í gönguferðir. Á
dögunum fór hún í þriggja
vikna sumarfrí á Snæfellsnes,
alein með hundinum sínum.
Skrítnasta sumarfrí Mörtu var þegar hún fór á gyðjunámskeið úti í skógi í Wales fyrir sextán árum
síðan.
SUMARFRÍIÐ
Draumurinn að ferðast til Havaí
●● Ferðaðist●●um●Snæfellsnes●í●þrjár●vikur●með●hundinum●sínum
TRILOGIA MEÐ NÝTT
LAG OG MYNDBAND
Dúóið Trilogia frá Sandgerði hefur sent frá sér nýtt lag, sem kallast Dreams,
en glæsilegt myndband fylgir útgáfunni. Það eru þau Fríða Dís Guðmunds-
dóttir og Finnbjörn Benónýsson sem skipa hljómsveitina en þau hafa verið
að gera tónlist saman frá unglingsaldri. Fríða er flestum kunn úr hljóm-
sveitinni Klassart, en þau Finnbjörn voru einnig saman í hljómsveitinni
Tabula rasa á árum áður.
Annað lag eru væntanleg fljótlega en þau Fríða og Finnbjörn eru búin að vera
í hljóðveri síðustu vikur. Þau munu spila á Gærunni á Sauðárkróki í ágúst og
líklega eitthvað í kringum Ljósanótt og Sandgerðisdaga.
Tónlist sveitarinnar er rafskotið popp en lagið Dreams er önnur smáskífa þeirra.
Keflvíkingurinn Þorsteinn Surmeli sá um að gera myndbandið við lagið.
Sjónvarp Víkurfrétta
öll fimmtudagskvöld kl. 21:30 á ÍNN