Víkurfréttir - 25.08.2016, Blaðsíða 4
4 fimmtudagur 25. ágúst 2016VÍKURFRÉTTIR
Nokkur fjöldi fólks beið í röð á Fitjum
síðasta föstudag þegar þar var opnaður
Dunkin´ Donuts staður. Boðið var
upp á glaðning fyrir fyrstu viðskipta-
vinina og voru nokkrir sem lögðu á
sig margra tíma bið við staðinn til að
tryggja sér sæti framarlega í röðinnni.
Kleinuhringjastaðurinn var opnaður
klukkan 13:00 á föstudag og sá sem var
fyrstur í röðinni mætti klukkan eitt um
nóttina og beið því í tólf tíma. Næstu
þrír komu svo klukkan hálf sex um
morguninn. Það var til nokkuð mikils
að vinna fyrir unnendur kleinuhringja
því að fyrstu tíu í röðinni fengu að
gjöf árskort. Þeir geta þá komið einu
sinni í viku í heilt ár og fengið kassa
með kleinuhringjum. Næstu fjörutíu
viðskiptavinir fengu kaffikort og kassa
með kleinuhringjum.
Dunkin´Donuts er inni í verslun 10-
11 á Fitjum. Þar var einnig opnaður
Ginger veitingastaður í síðustu viku.
Þetta eru fyrstu Dunkin- og Ginger-
staðirnir sem eru starfræktir utan
höfuðborgarsvæðisins og segir Sig-
urður Karlsson, framkvæmdastjóri
Dunkin´ Donuts, að íbúar á Suður-
nesjum hafi tekið vel í opnunina.
„Við vorum búin að fá veður af því
að margir biðu spenntir eftir þessu
og sýndi það sig þegar við opnuðum.
Röð var fyrir utan staðinn klukkan
13.00 og það er búið að vera nóg að
gera síðan þá,“ segir hann. Til stendur
að opna fleiri staði á Suðurnesjum en
á næstunni opna sömu staðir inni í
verslun 10-11 í komusal Flugstöðvar-
innar á Keflavíkurflugvelli.
Röð í kleinuhringina
●● Sá●fyrsti●beið●í●tólf●klukkustundir
Unnendur kleinuhringja lögðu á sig nokkurra klukkustunda bið þegar Dunkin´ Donuts var opnað á Fitjum í síðustu viku.
Rósaselstorg að taka á sig mynd
●● Verslanir●og●veitingastaðir●áforma●rekstur●við●flugvöllinn
Gengið hefur verið frá samningum
við fjóra aðila um rekstur í verslunar-
og þjónustukjarnanum Rósaselstorgi
sem áætlað er að rísi rétt við flug-
stöðina á Keflavíkurflugvelli. Á meðal
þeirra eru Nettó með matvöruverslun,
Subway, Pizza Hut, KFC, Taco Bell
og Grill 66 með veitingastaði og Olís
með eldsneytissölu og þjónustu. Auk
fjölbreyttrar þjónustu við erlent og
innlent ferðafólk, er þess vænst að
staðsetning kjarnans geti verið gátt að
ferðamannastöðum á Reykjanesi og
fjölgað þeim erlendu ferðamönnum
sem staldra við á svæðinu, að því er
fram kemur í tilkynningu frá Kaup-
félagi Suðurnesja sem unnið hefur að
opnun þjónustukjarnans.
Verkefni sem skapar
fjölmörg ný störf
Samhliða mikilli fjölgun farþega um
Keflavíkurflugvöll hefur þörf fyrir
fjölbreyttari verslun og þjónustu á
flugvallarsvæðinu aukist. Einnig kalla
væntanleg stóriðjuumsvif í Helguvík
og fjölgun starfsfólks á flugvallar-
svæðinu á meira framboð þjónustu á
þessum stað. Greiðlega hefur gengið
að fá rekstraraðila að verkefninu sem
leigja munu rými í nýja kjarnanum en
dregist hefur að hefja framkvæmdir
þar sem enn er verið að hnýta lausa
enda í skipulagi svæðisins. Vonir
standa þó til að hægt verði að hefja
framkvæmdir fyrri part næsta árs og
opna kjarnann síðar sama ár. Verk-
efnið mun skapa fjölmörg ný störf en
að jafnaði munu 75-100 manns starfa
hjá rekstraraðilum í þjónustukjarn-
anum. Starfsfólki mun svo fjölga enn
frekar þegar síðari áfangar verkefnis-
ins komast í gagnið en um er að ræða
alls 20.000 fm lóð við síðasta hring-
torgið næst flugstöðinni.
Hönnun rýma að ljúka
„Við hefðum viljað vera komin af stað
með framkvæmdirnar, en skipulags-
málin taka sinn tíma og góðir hlutir
gerast hægt,“ segir Skúli Skúlason,
stjórnarformaður Kaupfélags Suður-
nesja. „Við höfum gengið frá form-
legu samstarfi við kjölfestuaðila vegna
2000 fm verslunar- og þjónustuhúss-
ins, það er matvöruhluta þess, elds-
neytissölu og við fimm veitingaaðila
í matartorgið. Þessir aðilar munu á
næstu vikum ljúka þátttöku í endan-
legri hönnun sinna rýma en þar eru
nokkrar hugmyndir á teikniborðinu.
Ýmsir fleiri aðilar hafa sýnt staðsetn-
ingunni áhuga og við munum vinna
áfram með sveitarfélaginu Garði að
uppbyggingu svæðisins,“ segir Skúli.
Margar fyrirspurnir
um lóðir við flugvöllinn
Magnús Stefánsson bæjarstjóri í Garði
kveðst fagna miklum áhuga fyrirtækja
á að hefja starfsemi á þessum stað.
„Það er fullur vilji hjá bæjarstjórninni
í Garði að uppbygging Rósaselstorgs-
ins gangi sem hraðast. Við erum núna
að hnýta nokkra lausa enda varðandi
skipulag og vegagerð. Þetta er mjög
verðmætt svæði til lengri tíma litið og
við hjá Garði, Sandgerði og Reykja-
nesbæ fáum margar fyrirspurnir
vegna lóða í grennd við Keflavíkur-
flugvöll. Það er mikil þensla í flug-
stöðinni og allt í kringum hana. Við
sjáum að mannaflaþörfin vex stöðugt
og að atvinnuleysi á svæðinu er nánast
að hverfa. Þá er mikil eftirspurn og
sala á íbúðarhúsnæði í öllum sveitar-
félögunum.“
Nokkrar stöður tollvarða í Reykjavík og á Keflavíkurflugvelli
eru lausar til umsóknar hjá embætti Tollstjóra. Um er að ræða
fjölbreytt og lifandi störf sem miða að því að vernda sam-
félagið gegn ólöglegum innflutningi og fela í sér mikil sam-
skipti við viðskiptavini Tollstjóra. Störfin henta jafnt konum
sem körlum.
Starf tollvarða felur m.a. í sér:
• Afgreiðslu og eftirlit með skipum, flugvélum,
farþegum og áhöfnum.
• Eftirlit og skoðun vörusendinga og tollskjala
• Sérhæfðar leitir svo sem í bílum,
með gegnumlýsingarbúnaði o.s.frv.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða menntun sem má meta til slíks náms.
• Samviskusemi, nákvæmni og traust vinnubrögð
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Gott andlegt og líkamlegt atgervi
• Gott vald á íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Almenn ökuréttindi.
• Hreint sakavottorð.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h.
ríkissjóðs og Tollvarðafélags Íslands. Um skipun eða setningu
í embætti tollvarða gildir V. kafli laga um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kári Gunnlaugsson, í síma
560-0300
Umsóknarfrestur er til 5. september nk.
Sótt er um starfið rafrænt á www.tollur.is/laus-storf.
Í tengslum við ráðningu þarf að þreyta þríþætt inntökupróf,
bæði skriflegt og líkamlegt, en nánari upplýsingar um það er
að finna á www.tollur.is. . Gera má ráð fyrir að þeir sem kallaðir
verða í inntökupróf mæti 8. eða 9. september.
Gildi Tollstjóra eru traust, samvinna og framsækni.
Ráðningar hjá embættinu taka mið af þeim.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðn-
ingu liggur fyrir. Athygli er vakin á að umsóknir gilda í 6 mán-
uði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
TOLLVÖRÐUR
SPENNANDI STARF Í LIFANDI UMHVERFI