Víkurfréttir - 25.08.2016, Blaðsíða 24
24 fimmtudagur 25. ágúst 2016VÍKURFRÉTTIR
Tók soninn með í
Stýrimannaskólann
Jónína á fjögur börn og eru þrjú elstu
uppkomin og flutt að heima en yngsti
sonurinn, Jón Þór Jónsson Hansen er
18 ára. Hann var á leikskólaaldri þegar
Jónína byrjaði í námi við Stýrimanna-
skólann og fór stundum með í skól-
ann. „Í skólanum var hann stundum
spurður hvort hann ætlaði að verða
vélstjóri eins og mamma en hann var
alveg ákveðinn að verða stýrimaður,“
segir Jónína. Hún hefur nú lokið námi
í skipstjórn og er langt komin með
4. stig í vélfræði. Jón Þór stundar nú
nám í vélstjórn við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja og stefnir á sjóinn eins og
mamma hans. Jónína er virk í björg-
unarsveitinni Sigurvon í Sandgerði
þegar hún er í landi og er þá hluti af
sjóflokknum. Með henni í björgunar-
sveitarstörfunum eru eiginmaðurinn,
Jón Þór Ingólfsson og yngsti sonurinn.
„Þeir eru mjög virkir en ég hef minni
tíma vegna vinnunnar. Það er gaman
af því að sonurinn ætli að leggja sjó-
mennsku fyrir sig eins og ég,“ segir
hún. Eldri börnin þrjú, Hlynur Han-
sen, Heimir Hansen og Perla Sif Han-
sen hafa öll stundað nám í vélstjórn.
Saumar jólaskraut allt árið
Á milli vakta á sjónum saumar Jón-
ína jólaskraut. Jón Þór, eiginmaður
hennar, kemur með jólasokk og sýnir
blaðamanni og segir í gríni að hún
sé búin að sauma utan um klósettið
á heimilinu líka. Jónína saumar jóla-
skrautið allt árið en tekur sér hvíld
frá saumaskapnum í desember. „Þetta
byrjaði þannig að frænka mín gaf
mér bandarískan sokk til að sauma
út. Ég kunni nú ekki við annað en að
sauma hann. Síðan þá er ég búin að
sauma mikið og jólaskrautið er vin-
sælt hjá barnabörnunum. Á sjónum
fara sumir að hlæja þegar þeir sjá vél-
stjórann sauma út á milli vakta,“ segir
Jónína.
Allir samstarfsmenn Jónínu í gegnum
tíðina hafa verið karlmenn með einni
undantekningu. Aðspurð hvernig
karlarnir hafi tekið henni þegar hún
byrjaði fyrst á sjónum segir hún þetta
ekki flókið; annað hvort passi fólk inn
í hópinn eða ekki og að henni hafi
verið vel tekið. „Ég bara svara körl-
unum ef þeir segja eitthvað sem mér
líkar ekki. Það verður að hafa munn-
inn fyrir neðan nefið á sjónum.“
Núna í sumar sigldi Jónína í fyrsta sinn
með áhöfn þar sem önnur kona var en
það var Kolbrún Matthíasdóttir bryti.
l Sandgerðingurinn Jónína Hansen siglir um heimsins höf með flutningaskipum Eimskips
l Fór á sjóinn til að bjarga fjárhagnum
„Ég hef alltaf verið svolítill strákur í mér og stundum gera samstarfsfélagarnir grín að því að ég gangi kvenlega í vinnugall-
anum,“ segir Jónína Hansen, stýrimaður og vélstjóri hjá Eimskip, fjögurra barna móðir og amma. Hún ólst upp í Reykjavík flutti
til Sandgerðis fyrir nokkrum árum síðan. Jónína hefur verið á sjónum í yfir tíu ár og gegnt stöðu stýrimanns, vélstjóra, háseta
og kokks. Æskudraumur Jónínu var að verða sjómaður, eins og pabbi sinn. „Á árum áður sótti ég oft um en fékk aldrei vinnu
á sjó. Svo missti maðurinn minn vinnuna sína. Við komumst að þeirri niðurstöðu að annað okkar þyrfti að fara á sjóinn til að
bjarga fjárhagnum. Maðurinn minn er svo sjóveikur að það kom ekki annað til greina en að ég færi á sjóinn,“ segir Jónína sem af
barnabörnunum og sumum vinnufélögum er kölluð amma Dreki.
SAUMAR
Á SJÓNUM
Jónína í vélasalnum á Selfossi, ásamt Gunnari Rafni
Skarphéðinssyni og Óskari H. Kristjánssyni.
Í desember sigldi Jónína til Bandaríkjanna og var slæmt veður alla leiðina.
Myndina tók hún í ferðinni.
Jónína hefur verið vélstjóri, stýrimaður, háseti og kokkur.