Víkurfréttir - 25.08.2016, Blaðsíða 27
27fimmtudagur 25. ágúst 2016 VÍKURFRÉTTIR
STARFSMAÐUR Í BÍLAÞRIF
Í BÍLALEIGU Í KEFLAVÍK
Thrifty Car Rental, bílaleiga Brimborgar,
leitar að röskum og jákvæðum starfsmanni
í bílaþrif í Keflavík. Æskilegt er að viðkomandi sé
búsettur á Keflavíkursvæðinu.
Stutt lýsing á starfi:
• Vinna við bílaþrif fyrir Thrifty bílaleigu ásamt
almennri aðstoð við þjónustufulltrúa eins og
skutl viðskiptavina til og frá starfsstöð
Hæfniskröfur:
• Laghentur og hörkuduglegur verkmaður
• Gilt bílpróf skilyrði og vera jafnvígur á beinskiptan
og sjálfskiptan bíl
• Stundvísi
• Framúrskarandi þjónustulund
• Heiðarleg, áreiðanleg og vönduð vinnubrögð
Unnið er á vöktum 06:00-18:00 og frá 18:00-06:00 (5/4).
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið má finna
undir Laus störf á brimborg.is
Umsóknarfrestur er til 1. september 2016
Sæktu um
í dag!
Bílaþrif_DTI_Víkurfréttir_99x150_20160818.indd 1 18.8.2016 16:00:45
DO YOU LOVE CLEANING?
AÞ-Þrif is looking for people to work at
the airport, both for daytime work
and shift work
PROFESSIONALISM
GOOD SERVICE
HONESTY
Punctual and efficient individual, between
the age of 20–40 years old with driving
license and no criminal record.
Must speak english and/or icelandic.
Challenging work in a multicultural environment.
If you are interested, please apply via
www.ath-thrif.is or email: gerda@ath-thrif.is
Kolbrún á að baki langan feril í mynd-
listinni og hafði lengi átt sér þann
draum að fara í myndlistarnám. Kol-
brún á þrjú börn með eiginmanni sín-
um, Jóni Bjarna Pálssyni, og þegar þau
voru búin með sitt háskólanám fannst
henni tímabært að að láta drauminn
sinn rætast og fara í myndlistarskóla.
Þá var hún komin á sextugsaldur.
„Árið 2010 ákvað ég að leigja mér íbúð
á Akureyri og hefja eins árs fornám í
Myndlistarskóla Akureyrar. Eftir þetta
eina ár fann ég að mig langaði til að
halda áfram og hóf þriggja ára nám
í fagurlistum.“ Kolbrún útskrifaðist
vorið 2014. „Maðurinn minn hélt
áfram á sjó en heimsótti skólastelpuna
sína í fríum. Við héldum okkar heimili
hér í Sandgerði og vorum við því í eins
konar fjarbúð,“ segir Kolbrún.
Námið á Akureyri var öflugt, að sögn
Kolbrúnar og þar lærði hún margt,
bæði í listasögu og listsköpun. „Ég
kynntist fullt af frábæru fólki, kenn-
urum skólans, skólasystkinum og
eignaðist góða vini. Þetta var svo
mikið ævintýri og ég hef lært að það
er aldrei of seint að láta drauma sína
rætast.“
Síðasta veturinn fyrir norðan lét Kol-
brún sig hafa það að búa ein í 20 fer-
metra bústað sem var hinu megin í
Eyjafirðinum. „Á morgnana gekk ég
í svarta myrkri í gegnum skóg með
vasaljós. Þetta var um 600 metra
leið upp brekku í bílinn minn, oft í
miklum snjó og byl. Það var mikið
lagt á sig fyrir skólann.“ Kolbrún segir
námið hafa gefið sér sjálfstraust til að
halda áfram að þróa sína list og jafn-
framt veitt sér mikinn innblástur.
Fyrir rúmlega ári síðan hélt Kol-
brún einkasýningu í Norðurbryggju í
Hörpu og voru verkin þar innblásin
af lokaverki hennar úr Myndlistar-
skóla Akureyrar. Málverkasýning
Kolbrúnar sem nú stendur yfir í sal
Listatorgs við Vitatorg í Sandgerði er
sölusýning. Verkin á sýningunni eru
unnin í olíu og blek á bómullarefni
með blandaðri tækni. „Birtan spilar
stórt hlutverk í verkunum þannig að
þau eru ávallt að breytast og fylgja
birtunni í rýminu,“ segir hún. Verkin
eru römmuð inn í plexígler til þess að
birtan geti leikið um þau. Sýningin
mun standa til 4. september og verður
opin alla daga frá klukkan 13:00 til
17:00.
dagnyhulda@vf.is
ALDREI OF SEINT AÐ LÁTA
DRAUMANA RÆTAST
●● Kolbrún●Vídalín●fór●í●myndlistarnám●á●sextugsaldri
●● Heldur●sýningu●á●Sandgerðisdögum
Listakonan Kolbrún Vídalín heldur sýningu á verkum sínum núna á Sandgerðisdögum og mun hún standa til 4. september.
„Markmið mitt í gegnum lífið hefur ávallt verið að efla listsköpun í umhverfi mínu og hef ég verið dugleg að sækja ýmis konar
námskeið og miðlað þekkingu minni til annarra og með því vakið áhuga margra á listsköpun,“ segir hún.
Á morgnana gekk
ég í svarta myrkri í
gegnum skóg með vasaljós
Sýning Kolbrúnar mun standa til 4. september í Listatorgi við Vitatorg í Sandgerði.
Verk eftir Kolbrúnu á sýningunni í
Listatorgi. Birtan spilar stórt hlutverk
í öllum verkunum á sýningunni.
AÐALFUNDUR
FRJÁLS AFLS
stjórnmálasamtaka verður haldinn þriðjudaginn 30. ágúst nk.
kl. 17:30 að Hafnargötu 91 jarðhæð. Auk félagsmanna eru aðrir
stuðningsmenn boðnir velkomnir. Kaffi á könnunni.
Stjórnin.
Íslenskir radíóamatörar komu saman við Garð-
skagavita um nýliðna helgi. Heimsókn radíó-
amatöranna fór ekki framhjá fólki sem sótti
Garðskaga heim en tvö risastór loftnet sáust
víða að enda annað þeirra svipað Garðskagavita
á hæð.
Radíóamatörarnir héldu sérstaka vitahelgi en
um helgina var alþjóðleg vitahelgi. Þá koma radí-
óamatörar saman við vita víðsvegar um heim-
inn og senda út kallmerki sín. Yfirleitt fara ekki
flókin samskipti fram í gegnum talstöðvarnar,
heldur gefa menn upp kallmerki sitt og stað-
setningar. Þannig voru radíóamatörarnir á Garð-
skaga í samskiptum við kollega sína víðsvegar
um heiminn.
Þegar Víkurfréttir komu við í búðum talstöðvar-
fólksins voru þeir m.a. í sambandi við aðila í
Norður Kóreu. Þá var einnig verið að nota Mors
og var áhugamaður um það í sambandi við aðila
í Þýskalandi og á Bretlandseyjum. Þegar nóttin
brestur á næst hins vegar Mors-samband víðar.
Nánar um radíóamatöra í Sjónvarpi Víkurfrétta
á vf.is og ÍNN.
Beint samband til Norður Kóreu frá Garðskagavita
Vígaleg loftnet á Garðskaga um nýliðna helgi.
Radíóamatör í sam-
skiptum við kollega hinu
megin á hnettinum.