Víkurfréttir - 25.08.2016, Qupperneq 10
10 fimmtudagur 25. ágúst 2016VÍKURFRÉTTIR
Hafa skóhlífar til taks
Sara segir það ekki hafa verið mikið
mál að opna heimilið og halda tón-
leika. „Við þurftum nú ekki að breyta
miklu. Við bættum nokkrum stólum
við og höfðum skóhlífar til taks, ef það
skyldi vera rigning. Við höfum sama
háttinn á í ár,“ segir Sara sem hlakkar
mikið til tónleikanna. Í fyrra voru
íbúar með mismunandi skreytingar
og veitingar til að hafa stemninguna
heimilislega og skemmtilega.
Jón Jónsson á veröndinni
Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson kemur
fram á tónleikum á veröndinni við Ís-
hússtíg 14. Að sögn Særúnar Guðjóns-
dóttur, íbúa þar, verður sett upp tjald í
garðinum ef það skyldi rigna á meðan
tónleikarnir standa yfir. „Svo erum við
með garð sófasett svo einhverjir geta
fengið sæti. Svo verða luktir í garð-
inum. Þetta er nú Ljósanótt svo það
verður að vera eitthvað um ljós.“ Þau
fjölskyldan voru ekki með tónleika
heima á Ljósanótt í fyrra en fóru á tón-
leika í hverfinu. „Það voru allt mjög
skemmtilegir tónleikar og ég náði að
fara á þá alla enda stutt að ganga á
milli tónleikastaða,“ segir Særún.
Tónleikarnir fara fram föstudags-
kvöldið 2. september og verða allir
tvisvar sinnum í sama húsinu, fyrst
klukkan 21:00 og svo aftur klukkan
22:00. Tónleikarnir standa í 40 mín-
útur. Fólk getur því rölt á milli húsa,
enda stutt á milli, og sótt einn, tvo eða
jafnvel fleiri tónleika.
Listamennirnir Berndsen & Hermi-
gervill, Elíza Geirsdóttir Newman,
Jón Jónsson, Markús & The Diversion
Sessions og Ylja hafa staðfest komu
sína. Miða á tónleikana má nálgast á
vefnum tix.is. Gestir fá armband sem
er aðgöngumiðinn og kort af svæðinu
í Duushúsum, menningar- og lista-
miðstöð Reykjanesbæjar á opnunar-
tíma. Hægt er að sækja armband og
kort gegn kvittun frá Tix frá og með
29. ágúst.
ÍBÚAR OPNA HEIMILI SÍN
OG HALDA TÓNLEIKA
●● Tónleikarnir●Heima●í●gamla●bænum●slógu●í●gegn●●
í●fyrra●og●verða●aftur●á●dagskránni●í●ár
„Það var ótrúlega skemmtilegt í fyrra að halda tónleika heima og fá til sín fjöldann allan af gestum og tónlistarfólk,“ segir Sara
Dögg Gylfadóttir íbúi við Melteig í Reykjanesbæ. Sara og fjölskylda opnuðu heimili sitt á Ljósanótt í fyrra þar sem níu manna
stórhljómsveitin Sígull hélt tónleika. Þeir voru hluti af tónleikunum Heima í gamla bænum sem þá voru haldnir í fyrsta sinn. Þá
var boðið upp á tónleika á fjórum heimilum og seldust aðgöngumiðar upp á skömmum tíma. Í ár verða tónleikar í fimm húsum,
þar á meðal hjá Söru Dögg og fjölskyldu þar sem Eliza Newman mun koma fram.
Sara Dögg Gylfadóttir og fjölskylda
ætla að opna heimili sitt við Melteig
þar sem Eliza Geirsdóttir Newman
mun halda tónleika.
Tónleikar með Jóni Jónssyni verða í
garðinum við Íshússtíg 14 á heimili
Særúnar Guðjónsdóttur og fjölskyldu.
VF-mynd/dagnyhulda
Hljómsveitin Æla kom fram á heimatónleikum í fyrra.
ATVINNA
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN FJÖRHEIMAR
Félagsmiðstöðin Fjörheimar
óskar eftir starfsfólki í hlutastörf!
Um er að ræða tvær 40 % stöður í nýtt eftirskólaúrræði.
Vinnutími er virka daga frá kl. 13.00 – 16.00.
Að auki er óskað eftir starfsmönnum í kvöldvinnu í félagsmið-
stöðinni og möguleiki á starfi um helgar í Útideild Reykjanes-
bæjar.
Hæfniskröfur:
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af starfi með unglingum æskileg
- Hæfni til að vinna sjálfstætt
- Hreint sakavottorð
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri.
Sækja þarf um störfin á vef Reykjanesbæjar
www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf
Umsóknarfrestur er til 31. ágúst, æskilegt er að
viðkomandi geti byrjað sem fyrst.
LAUS STÖRF
Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað.
Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almenn-
ar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanes-
bæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf,
þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um störfin.
AKURSKÓLI Smíðakennari
FJÖRHEIMAR Starfsfólk í hlutastörf
VELFERÐARSVIÐ Forstöðumaður Bjargarinnar
VELFERÐARSVIÐ Félagsráðgjafi í barnavernd
BÓKASAFN Bókasafns- og upplýsingafræðingur
Það þarf að jafna textann
í neðri textunum tveimur,
sem sagt hafa út í vinstri
og hægri spássíu jafnt.
VIÐBURÐIR
LÉTTUR FÖSTUDAGUR Á NESVÖLLUM
Leikfangasafn í Reykjanesbæ verður kynnt á léttum föstudegi
26. ágúst kl 14:00. Suðurnesjamenn skemmta.
Allir hjartanlega velkomnir.
HEILSU- OG FORVARNARVIKA
Heilsu- og forvarnarvika Reykjanesbæjar verður haldin
3. – 9. október nk. Nánari upplýsingar eru veittar
á heilsuvika@reykjanesbaer.is.
LJÓSANÓTT HEFST Í NÆSTU VIKU
Ljósanótt verður sett 1. september en nokkrir dagskrárliðir
hafa verið auglýstir á vef Ljósanætur miðvikudaginn 31. ágúst.
Kynntu þér alla dagskrárliði Ljósanætur á ljosanott.is.
Dagskrárbæklingur verður einnig gefinn út í næstu viku.
Auglýsingasíminn er
421 0001