Víkurfréttir - 25.08.2016, Síða 12
12 fimmtudagur 25. ágúst 2016VÍKURFRÉTTIR
Ný vél leysir
mannshöndina af hólmi
Það er þekkt í dag að flest starfsfólk
í fiskvinnslu hafi ekki íslensku sem
móðurmál. Við því var brugðist með
því að ráða inn starfsfólk frá Póllandi
og einnig frá Tælandi og Filipps-
eyjum. Nú mun fiskvinnslan hins
vegar tæknivæðast enn frekar og nýja
vélin sem Nýfiskur fær í haust tekur
beingarðinn úr fiskflakinu og leysir
mannshöndina af hólmi þar. Þá sker
vélin flakið í bita í framhaldinu og allt
er þetta framkvæmt með vatni.
„Með þessu hverfa einhæf störf úr
vinnslunni hjá okkur en í staðinn
koma störf sem krefjast tækniþekk-
ingar. Við sjáum okkur knúin til að
gera þetta því það er ekki langt í að
það verði erfitt að fá fólk til að sinna
þessum einhæfu verksmiðjustörfum.
Við sjáum hvernig þróunin hefur
verið síðustu 15 til 20 ár. Við sjáum
að Íslendingar eru nánast horfnir úr
þessum geira og við leystum það með
erlendu vinnuafli. Þar er Nýfiskur
engin undantekning og við erum hér
með frábært starfsfólk meðal annars
frá Póllandi og Tælandi.“
Þorsteinn segist ekki eiga von á að
nýir hópar af erlendu vinnuafli eigi
eftir að sækja í fiskvinnslu til Íslands
nú eins og þegar erlent fiskvinnslu-
fólk streymdi hingað á árum áður.
„Við stefnum því með Nýfisk í þá átt
að vera hátæknivinnsla og að það sé
nauðsynlegt til að tryggja sér fram-
tíðina.“
Fersk flök með flugi
alla daga til Belgíu
Þorsteinn segir að sérhæfing Nýfisks
liggi í Belgíumarkaði þangað sem
fyrirtækið sendir fersk flök og flaka-
bita með flugi alla daga. Fyrirtækið
aflar sér hráefnis bæði frá eigin útgerð
en einnig af fiskmarkaði. Nýfiskur
vinnur næstum 6000 tonn af fiski á
ári en útgerð fyrirtækisins á um 850
þorskígildistonn. Fyrirtækið tryggir
sér hráefni frá nokkrum smærri
bátum, 15 til 30 tonna bátum sem róa
með línu. „Við erum með fjóra báta í
viðskiptum og kaupum það sem upp á
vantar af fiskmarkaði.“
Þorsteinn segir að staðsetning vinnsl-
unnar í Sandgerði gefi fyrirtækinu
forskot þegar kemur að því að flytja
ferskan fisk út með flugi. Það bjóði
upp á mikinn sveigjanleika að vera í
Sandgerði og viðskiptavinir Nýfisks
hafi tækifæri til að breyta daglegum
pöntunum sínum fram eftir morgni
þann dag sem fiskurinn er sendur í
flug klukkan 13 á daginn.
„Okkar viðskiptavinir í Belgíu eru
mjög kröfuharðir og vilja aðeins það
ferskasta hráefni sem völ er á og þess
vegna verðum við að nota flug til
að koma fisknum út. Útflutningur á
ferskum fiski með flugi er sá grunnur
sem fyrirtækið hefur byggt á frá upp-
hafi og ætlar að halda áfram á þeirri
braut“.
Hráefnið kemur í hús á milli klukkan
4 og 5 að morgni og slæging hefst
klukkan 6 að morgni. Vinnslan hefst
svo klukkan 7 og stöðvar ekkert yfir
daginn. Þannig fer starfsfólk á tví-
skiptum vöktum í kaffi- og matar-
tíma. Venjulegum vinnudegi lýkur svo
klukkan 15. Nýfiskur sendir frá sér
fisk í flug sex daga vikunnar og er að
allt árið. Það er rétt yfir jól og áramót
sem starfsemin er stöðvuð.
NÝIR HÓPAR ERLENDS VINNUAFLS EKKI
Á LEIÐ Í ÍSLENSKA FISKVINNSLU
●● Nýfiskur●færist●nær●hátækni●í●fiskvinnslu
Nýfiskur í Sandgerði er einn stærsti vinnustaðurinn í bæjarfélaginu ef undan er skilin opinber starfsemi og sú sem fer fram í og við flugstöð Leifs Eiríkssonar,
sem er í Sandgerði eins og allir vita. Hjá Nýfiski er unninn ferskur þorskur og ýsa alla daga ársins fyrir Belgíumarkað.
Nýfiskur mun í haust taka í notkun nýja Flexicut skurðarvél frá Marel fyrir vinnsluna í Sandgerði. Með tilkomu vélarinnar verður fiskvinnsla Nýfisks komin í
flokk með hátæknifiskvinnsluhúsum. Þorsteinn Magnússon, framkvæmdastjóri Nýfisks, segir fyrirtækið vilja vera í fremstu röð þegar kemur að fiskvinnslu. Með
frekari tæknivæðingu í fiskvinnslu er einnig verið að bregðast við því að fiskvinnslustöðvum gangi ekki eins vel í dag að ráða til sín starfsfólk eins og á árum áður. Ferskur fiskur tilbúinn í flug.
Þorsteinn Magnússon, framkvæmdastjóri Nýfisks í Sandgerði.
VF-mynd: Eyþór Sæmundsson.
Húsnæði Nýfisks í Sandgerði.
Úr fiskvinnslunni hjá Nýfiski í Sandgerði.
VF-myndir: Hilmar Bragi