Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.08.2016, Side 20

Víkurfréttir - 25.08.2016, Side 20
20 fimmtudagur 25. ágúst 2016VÍKURFRÉTTIR Sveitasöngvar eru viðfangsefni hátíðartónleika Ljós- anætur í Reykjanesbæ þetta árið undir yfirskriftinni: Hvernig ertu í kántrýinu? Það er einvalalið söngvara og hljóðfæraleikara sem taka þátt í Með blik í auga sem nú eru haldnir í sjötta sinn og fara söngvararnir Björgvin Halldórsson, Stefanía Svavarsdóttir, Jóhanna Guðrún og Eyjólfur Kristjánsson fyrir stórhljómsveit undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Björgvin Halldórsson þarf vart að kynna en hann þekkir vel kántrýtónlistina og gerði henni góð skil með hljómsveit sinni Brimkló sem lék kántrýskotna popptónlist. Þeir voru vinsælir og segja má að þeir hafi verið frumkvöðlar íslenskrar kántrýtónlistar en lög þeirra lifa enn góðu lífi meðal þjóðar- innar. En hvaðan kemur kántrýáhuginn á Ís- landi? “Ég hlustaði auðvitað mikið á Kanann í gamla daga og kynntist þar kántrý tón- listinni. Síðan er við stofnuðum Brimkló árið 1972 þá var efnsskrá okkar mikið kántrý tónlist eins og glöggt má heyra á öllum plötum hljómsveitarinnar.” Hvernig var kántrýið á Íslandi? „Brimkló var nú held ég eina hljómsveitin sem lagði upp með þessa tónlist í byrjun og náði mikilum vinsældum. Það má auðvitað segja að fyrstu lög Villa Vill hafi verið kántrý- skotin sem og flest íslensk dægurlög sbr. lög Magga Eiríks og svo er gaman að geta þess að lag Rúna Júll, Það þarf fólk eins og þig fyrir fólk eins og mig, er upphaflega kántrý lag samið af Buck Owens frá Bakersville. Var kántrý á Íslandi öðruvísi en t.d. í Bandaríkjunum? „Heimili þessarar tónlistar er auðvitað í Bandaríkjunum en hér heima átti hún mikinn hljómgrunn, það er ekki spurning.” Hvað er það sem einkennir kántrý helst? „Það er hægt að svara þessu með því að segja…4 hljómar og sannleikurinn, “ segir Björgvin og segir það rétt að Kan- inn hafi haft mikil áhrif á hlustendur á suðvesturhorninu og kveikt hjá mörgum áhugan á kántrý þótt ekki hafi það náð lengra. „Fyrir norðan náðu þeir ekki Kananum en hlustuðu þá frekar á sjóræningjastöðina Ra- dio Caroline sem spilaði mest megnis enska tónlist en stundum þá amerísku.” Hvað er besta kántrýlag allra tíma? „Það er ekki hægt að taka eitt lag út. Þau eru svo mörg. Ég á svo mörg uppáhalds lög. Uppáhalds lag eftir mig er: „Ég er ennþá þessi asni sem þú kysstir þá.” Hvernig leist þér á þetta verkefni þegar skipuleggjendur höfðu sam band við þig? „Mér leist vel á þetta framtak og hafði heyrt góðar sögur af þessu. Ég vona bara að þetta heppnist skamm- laust, “ segir Björgvin og svarið er einfalt þegar hann er spurður að því hverju tónleikagestir megi eiga von á á Ljósanótt. „Fjórum til fimm hljómum og sannleiknum - sem og lögum sem það þekkir. Ég vona bara að allir syngi með.” Frumsýning er miðvikudaginn 31. ágúst og tvær sýningar verða sunnudaginn 4. september. Sýningar fara fram í Andrews Theatre á Ásbrú og er miðasala á midi.is. KÁNTRÝVEISLA Í ANDREWS Á LJÓSANÓTT FIMM HLJÓMAR OG SANNLEIKURINN ●● Björgvin●Halldórsson●í●kántrýinu●á●Ljósanótt ■ Sandgerðisdagar voru formlega settir í Grunnskóla Sandgerðis í gær og munu standa fram á sunnudag. Á dagskránni eru ýmsir skemmtilegir viðburðir, svo sem Loddugangan sem fer fram í kvöld, fimmtudagskvöld klukkan 20:00. Um helg- ina mun svo hver viðburðurinn reka annan. Á föstudag verður litabolti í Íþróttamið- stöðinni, opið hús hjá Tónlistarskólanum og sagna- og söngvakvöld í Efra-Sandgerði, viðureign Norður- og Suðurbæjar í fótbolta og stórdansleikur með Helga Björnssyni og Reiðmönnum vindanna. Á hátíðarsviði við grunnskólann á laugardag koma fram ýmsir skemmtikraftar, svo sem Villi og Sveppi, Lína Langsokkur, Jóhanna Ruth og fleiri. Ýmsir fleiri viðburðir eru á dagskrá Sandgerðisdaga sem nálgast má á vefnum sandgerdi.is Fjör í Sandgerði um helgina ●● Sandgerðisdagar●settir●í●gær Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst þriðjudaginn 19. ágúst. Utankjörfundaratkvæðagreiðslan fer fram á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Opið alla virka daga kl. 8:00 - 16:00. Einnig er hægt að greiða atkvæði utankjörfundar á eftirfarandi stöðum: REYKJANESBÆR, GARÐUR, SANDGERÐI OG VOGAR Sjálfstæðishúsinu, Hólagötu 15, Ytri Njarðvík Opið verður milli kl. 17.00 og 19.00 eftirfarandi daga:  Mánudagur 5. september Miðvikudagur 7. september Föstudagur 9. september Þá er hægt að kjósa eftir samkomulagi með því að hringja í tengilið í síma 864-8288 frá 23 ágúst til 9 september á milli 13:00 og 17:00. GRINDAVÍK Félagsheimili sjálfstæðisfélaganna, Víkurbraut 27 Tengiliðir: Katrín Sigurðardóttir s. 821- 1399, Hulda s. 846-9800 og Hjálmar s. 869-7010. Opið verður milli kl. 17.00 og 19.00 eftirfarandi daga:  Mánudagur 5. september Miðvikudagur 7. september Þá er hægt er að kjósa eftir samkomulagi með því að hringja í tengiliði. Atkvæðisrétt eiga allir félagsbundnir sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi. Kjósa skal 5 frambjóðendur, hvorki fleiri né færri. Kosið skal með því að setja tölu- staf frá einum og upp í fimm fyrir framan nöfn frambjóðenda í þeirri röð sem óskað er að þeir skipi endanlegan framboðslista. Yfirstrikanir ógilda kjörseðilinn. Nánari upplýsingar um prófkjörið verða birtar þegar nær dregur prófkjörsdeginum 10. september. Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA Í SUÐURKJÖRDÆMI 10. SEPTEMBER 2016

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.