Víkurfréttir - 25.08.2016, Síða 32
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
Auglýsingasími: 421 0001
Mundi
Eru þeir að selja
skítapakk-aferðir
til Íslands?S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir
SOHO CATERING
ÞAKKAR FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR
OPIÐ FRÁ KL. 11:00 - 14:00 ALLA VIRKA DAGA.
MATSEÐILINN ER Á WWW.SOHO.IS
TILVALIÐ FYRIR VINNUSTAÐI AÐ PANTA OG SÆKJA
Soho Catering – Veisluþjónusta // Hrannargata 6 ( áður Raggi bakari) // Sími: 421 7646 // Gsm 692 0200 // www.soho.is
OPIÐ Á KVÖLDIN Á LJÓSANÓTT
Soho býður Elías Örn velkominn til starfa
Verið er að leggja lokahönd á breyt-
ingar á beitningaskúrum við Vitatorg
í Sandgerði og verða litlar íbúðir þar í
framtíðinni. Skúrarnir eru um 75 ára
gamlir og var mikið líf í kringum þá
á sínum tíma og pláss fyrir sex beitn-
ingamenn í hverjum skúr. Í stærsta
skúrnum voru þeir 14.
Framkvæmdir hafa staðið yfir síðan
í byrjun maí og hefur verið reynt að
hafa útlit hússins að utan sem líkast
því sem það var áður. Að sögn Garðars
Garðarssonar, eiganda hússins, verða
íbúðirnar leigðar út. „Ætli þetta svæði
verði ekki á endanum 101 Sandgerði.
Héðan er stutt í allt, á veitingastaðina,
höfnina, verslun og í fræðasetrið,“
sagði hann í léttum dúr. Margt eldra
fólk hefur lagt leið sína í beitninga-
skúrana og fylgst með framkvæmd-
unum og segir Garðar það hafa gaman
af því hve mikil breyting hefur orðið
og rifjað upp góðar minningar þaðan
frá árum áður.
Íbúðirnar verða opnar nú á Sand-
gerðisdögum og eru allir velkomnir.
Gamlir beitningaskúrar fá nýtt hlutverk
Beitningaskúrarnir við
Vitatorg í þátíð og nútíð.
Eldri myndin var
tekin árið 1965.
Garðar Garðarsson við beitningaskúrana sem búið er að breyta í íbúðir. Þær
verða opnar um helgina á Sandgerðisdögum.