Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.03.2007, Blaðsíða 39

Víkurfréttir - 15.03.2007, Blaðsíða 39
39ÍÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU Í BOÐI LANDSBANKANS VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR ÚRSLITAKEPPNIN HEFST Í KVÖLD Deildarkeppninni í Iceland Express deild karla í körfuknattleik er lokið og í kvöld hefst úrslitakeppnin sem margir körfuknattleiksunn- endur bíða jafnan eftir í of- væni. Suðurnesjaliðin Njarð- vík, Keflavík og Grindavík verða öll í eldlínunni en Kefl- víkingar leika sinn fyrsta leik í keppninni í kvöld og annað kvöld leika Njarðvík og Grinda- vík sína fyrstu leiki. Keflavík mætir Snæfell í fyrstu umferð úrslitakeppninnar og þar sem Snæfellingar hafa heima- vallarréttinn fer leikur kvöldsins fram í Stykkishólmi og hefst hann kl. 19:15. Annar leikur liðanna fer fram í Sláturhúsinu á laugardag og hefst hann kl. 16:00. Sigurður Ingimundarson hefur þegar gefið út að meiðsli Tony Harris komi í veg fyrir að hann leiki með Keflavík í úrslitakeppninni. Óvíst er hvort að nýr Bandaríkjamaður komi til liðs við Keflavíkur en það kemur í ljós síðar. Nokkuð sennilegt er því að Keflvíkingar leiki án Bandaríkjamanns í kvöld. Annað kvöld taka Njarð- víkingar á móti Hamri/Selfoss og að sögn Einars Árna Jóhanns- sonar verður Igor Beljanski klár í slaginn en hann reif maga- vöðva á dögunum og hefur verið að jafna sig af þeim meiðslum. Grindvíkingar mæta Skallagrím í Borgarnesi annað kvöld þar sem Borgnesingar hafa heima- vallarréttinn en Grindavík og Njarðvík leika sinn annan leik í úrslitakeppninni á sunnudag og hefjast þeir báðir kl. 19:15. Njarðvíkingar eru núverandi Ís- landsmeistarar og eiga titil að verja en þeim var spáð sigri í Íslandsmótinu fyrir þessa leiktíð sem og á blaðamannafundi sem fram fór í Reykjavík síðastliðinn þriðjudag. Í gær lauk deildarkepnninni í Iceland Express deild kvenna en Víkurfréttir fóru í prentun áður en úrslit urðu kunn í leikjunum. Fyrir þessa síðustu umferð var ljóst hvaða lið myndu mætast í úrslitakeppninni en það eru Íslands- og bikarmeistarar Hauka s em mæta ÍS og Suðurnesjaliðin Grindavík og Keflavík mætast í hinum leikjunum í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Komið hefur í ljós að Birna Valgarðsdóttir mun að öl lum l ík indum ekki leika með Keflavík í úrslitakeppninni og er það mikil blóðtaka fyrir Keflavík en Birna er mikill reynslubolti í kvennakörfunni. Um síðustu helg i fór f r a m Í s l a n d s m ó t í hópfimleikum en mótið var haldið í Versölum í Kópavogi. Fimleikadeild Keflavíkur náði lágmörkum í tveimur hópum inn á mótið og vegnaði þeim ágætlega í mótinu. Annar hópurinn frá Keflavík tók þátt í keppni á dýnu en hinn keppti á trampólíni. Hópunum gekk ágætlega en þeir náðu ekki á verðlaunapall að þessu sinni en vissulega mikill sigur fyrir Fimleikadeild Keflavíkur að hafa náð tveimur hópum inn í mótið. Framundan eru tvö f imleikamót sem fara fram í Keflavík. Annað mótið er Vortrompsmótið en hitt er Ponsumót. Vortrompsmótið fer f ram helg ina 28 .-29. apríl en dagsetning er ekki komin á Ponsumótið. Hið árlega Innanfélagsmót FK fer fram þann 12. maí en þá er keppt bæði í áhalda- og hópfimleikum. Ágætur árangur FK Geirmundur fékk gullmerkið Aðalfundur Keflavíkur í þ r ó t t a - o g ungmennafélags fór fram í byrjun marsmánaðar en þar var Einar Haraldsson endurkjörinn sem formaður f é l a g s i n s . G e i r m u n d u r Kristinsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík var heiðraður með gullmerki Keflavíkur á fundinum en þetta var í fyrsta sinn sem gullmerki Keflavíkur er veitt. S t j ó r n K e f l a v í k u r v a r endurkjörin á fundinum en sérstakur gestur fundarins var Björn B. Jónsson, formaður UM F Í , o g a f he nt i han n félaginu Hvatningarverðlaun UMFÍ og he iðraði hann þaun Birgi Má Bragason og Sesselju Birgisdóttur með starfsmerki UMFÍ. Á fundinum mærði Björn mjög það starf sem unnið er í Keflavík og hvatti Suðurnesjamenn til að sækja um að fá að halda ungmennalandsmót UMFÍ árið 2009 þar sem það hefur aldrei verið haldið í landshlutanum. Á fundinum voru veittar viðurkenningar (starfsmerki) fyrir stjórnarsetu og voru sjö bronsmerki veitt þeim Elínu Kjar tansdóttur, Kelmenzi S æ m u n d s s y n i , S i g r í ð i Björnsdóttur, Ólaf i Birgi Bjarnasyni, Hal ldóri Leví Björnssyni, Hjörleifi Stefánssyni og Þorsteini Marteinssyni. Þeir Þorgrímur St. Árnason og Guðjón Axelsson fengu si lfurmerki Kef lavíkur en starfsbikarinn fengu þau Linda Gunnarsdóttir og Jón KR. Magnússon fyrir störf sín til handa sunddeild Keflavíkur. Einar Haraldsson, formaður Keflavíkur, ásamt gullmerkishafanum Geirmundi Kristinssyni. Einar tekur við hvatningarverðlaununum úr höndum Björns B. Jónssonar, formanns UMFÍ. Frans samdi við UMFN Knattspyrnumaðurinn Frans Elvarsson hefur gert þriggja ára samning við Njarðvíkinga. Frans verður 17 ára í ágúst en lék áður með Sindra á Hornafirði. Fyrstu stig Grindvíkinga Andr i Ste inn Birg iss on b j arg a ð i f y r s tu s t i g u m Grindvíkinga í hús um síðustu helgi þegar hann gerði jöfnunarmark Grindavíkur í 2-2 jafntefli gegn KA. Markið kom í viðbótartíma. Grindavík mætir Val í kvöld kl. 19:00 í Egilshöll. Víðismenn máttu sætta sig við stórt tap gegn Selfyssingum í Lengjubikarnum en lokatölur leiksins voru 6-2. Leikurinn fór fram í Reykjaneshöllinni og var fyrsti leikur Víðis í keppninni. Næsti leikur Víðis er gegn Njarðvíkingum þann 24. mars næstkomandi og fer leikurinn fram í Reykjaneshöllinni kl. 15:00. Hóparnir frá Keflavík sem kepptu í Íslandsmótinu. Myndin er frá þátttöku hópsins í Haustmótinu fyrr á tímabilinu.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.