Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.02.2007, Side 22

Víkurfréttir - 01.02.2007, Side 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR PEKING INNAN SEILINGAR Fyrst bleytir hún svæðið í kringum augun með munn- vatin, setur á sig sundgler- augun, hoppar þrisvar sinnum og stingur sér svo til sunds. Erla Dögg Haraldsdóttir var hársbreidd frá því að komast inn á Heimsmeistaramótið í sundi sem fram fer í Ástralíu í mars. Erla reyndi við lág- markið í fjórsundi á Reykja- vík International um síðustu helgi og bætti þá mótsmetið um tæpar sjö sekúndur og sitt persónulega met um þrjár sek- úndur. Því miður dugði það ekki til og var Erla aðeins 0,89 sekúndum frá lágmarkinu. „Ég vissi ekki hvort ég átti að gráta eða hlægja þegar ég sá hversu lítið vantaði upp á. Stein- dór þjálfari sagði við mig fyrir sundið að ég ætti að vera ánægð ef ég myndi bæta minn persónu- lega tíma. Ég reyni bara að líta á björtu hliðarnar,“ sagði Erla í samtali við Víkurfréttir. Útskrift og Ólympíuleikar Erla Dögg stundar nám við FS á Náttúrufræðibraut og stefnir að því að útskrifast 2008, skömmu áður en hún fer á Ólympíuleik- ana í Peking. ,,Það má byrja að reyna við lágmörkin fyrir Peking á HM í Ástralíu en því miður verð ég ekki þar. Fyrsti mögu- leiki eftir það er á Smáþjóða- leikunum í júníbyrjun í sumar sem fram fara í Mónakó,“ sagði Erla og kemur ekkert annað til greina hjá henni en að komast til Peking 2008 sem yrðu þá hennar fyrstu Ólympíuleikar. Erla er ein fremsta sundkona Ís- lands í dag því má fastlega gera ráð fyrir því að hún verði valin í landsliðið fyrir Smáþjóðaleik- ana. ,,Valið verður í landsliðið á Íslandsmeistaramótinu í mars og þar verð ég að standa mig vel,“ sagði Erla. Á fjöldann af metum Í Reykjavík International mót- inu um síðustu helgi synti Erla á 2,21 mínútu í fjórsundinu en Ólympíulágmarkið er 2,19,68. Erla hefur fulla trú á því að hún geti náð lágmarkinu enda hefur hún æft vel að undanförnu. „Ég var í þessari sömu stöðu fyrir Ólympíuleikana 2004 en þá var ég aðeins 0,16 sekúndur frá lágmarkinu,“ sagði Erla og var engan billbug á henni að finna enda aðeins 18 ára gömul og fer- ill hennar rétt að byrja þrátt fyrir langa afrekssögu. Hátindinn á sundferlinum segir Erla vera nóvembermetið hennar sem hún setti í fyrra í 200m fjórsundi en það var hennar fyrsta Íslands- met í fullorðinsflokki. „Ég setti metið í stuttu lauginni og synti á 2.16.94 mínútum og svo á ég líka metið í 400m bringusundi en það er ekki ólympíugrein,“ sagði Erla sem á einnig fjöldann af metum í yngri flokkum sem standa enn í dag. 2008 er afmælisárið Ólympíuleikarnir í Peking fara fram árið 2008 en það ár verður stórt í lífi Erlu þar sem hún verður 20 ára, mun útskrifast frá FS og ætlar sér að vera komin með þátttökurétt á leikunum. Til þess að svo megi verða leggur Erla hart að sér í námi þessa stundina svo lokaönnin hennar við FS verði í rólegri kantinum og hún geti einbeitt sér að sundinu. Hvað vill Erla hafa afrekað á sundferlinum þegar honum lýkur? „Þegar ég hætti vil ég vera búin að setja Ís- landsmet í öllum mínum bestu greinum og hafa keppt á Ólymp- íuleikum, á leikunum væri svo ekki slæmt að hafa komist í úr- slit eða undanúrslit,“ sagði Erla en fékkst ekki til að fullyrða að hún stefndi á verðlaunapall meðal þeirra bestu. Á næstunni fara nokkrir sundmenn á vegum ÍRB til Darmstadt í Þýskalandi og keppa þar í móti þar sem markmiðið verður að afla sér frekari keppnisreynslu, eftir það tekur við Íslandsmeistaramótið. Erla er hógvær en ákveðin sund- kona sem á örugglega eftir að láta frekar að sér kveða þegar fram líða stundir. Aðeins 18 ára gömul hefur hún skákað bestu sundkonum landsins í 200m fjórsundi og eflaust verða metin fleirri áður en langt um líður. Tæplega 600 krakkar á aldrinum 6-11 ára tóku þátt í KEA-Skyr mótinu í körfubolta sem fram fór í Smáranum og Salaskóla í Kópavogi um síðustu helgi. Þetta var í níunda sinn sem mótið er haldið og fer það stækkandi ár hvert. Suðurnesjaliðin létu sitt ekki eftir liggja og hér sést hvar ung Keflavíkurmær er komin í teig andstæðinganna og freistar þess að skora. Í fyrra voru þátttakendur í mótinu um 500 talsins og að sögn mótsstjórnar hjá Breiðablik fer kvenkynsþátttakendum fjölgandi ár hvert og sögðu það vel. ������������ ������������������ � �� � � ���������������������������������� � � ������ ������������������������������������������������������ � � �������������������������������� � � ���������������������������� ��������������� ���������� ������������������� ����������������������������� � � � � � � � � � � � � � � � �

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.