Víkurfréttir - 01.02.2007, Síða 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR
PEKING INNAN SEILINGAR
Fyrst bleytir hún svæðið í kringum augun með munn-
vatin, setur á sig sundgler-
augun, hoppar þrisvar sinnum
og stingur sér svo til sunds.
Erla Dögg Haraldsdóttir var
hársbreidd frá því að komast
inn á Heimsmeistaramótið í
sundi sem fram fer í Ástralíu
í mars. Erla reyndi við lág-
markið í fjórsundi á Reykja-
vík International um síðustu
helgi og bætti þá mótsmetið
um tæpar sjö sekúndur og sitt
persónulega met um þrjár sek-
úndur. Því miður dugði það
ekki til og var Erla aðeins 0,89
sekúndum frá lágmarkinu.
„Ég vissi ekki hvort ég átti að
gráta eða hlægja þegar ég sá
hversu lítið vantaði upp á. Stein-
dór þjálfari sagði við mig fyrir
sundið að ég ætti að vera ánægð
ef ég myndi bæta minn persónu-
lega tíma. Ég reyni bara að líta
á björtu hliðarnar,“ sagði Erla í
samtali við Víkurfréttir.
Útskrift og Ólympíuleikar
Erla Dögg stundar nám við FS á
Náttúrufræðibraut og stefnir að
því að útskrifast 2008, skömmu
áður en hún fer á Ólympíuleik-
ana í Peking. ,,Það má byrja að
reyna við lágmörkin fyrir Peking
á HM í Ástralíu en því miður
verð ég ekki þar. Fyrsti mögu-
leiki eftir það er á Smáþjóða-
leikunum í júníbyrjun í sumar
sem fram fara í Mónakó,“ sagði
Erla og kemur ekkert annað til
greina hjá henni en að komast
til Peking 2008 sem yrðu þá
hennar fyrstu Ólympíuleikar.
Erla er ein fremsta sundkona Ís-
lands í dag því má fastlega gera
ráð fyrir því að hún verði valin
í landsliðið fyrir Smáþjóðaleik-
ana. ,,Valið verður í landsliðið
á Íslandsmeistaramótinu í mars
og þar verð ég að standa mig
vel,“ sagði Erla.
Á fjöldann af metum
Í Reykjavík International mót-
inu um síðustu helgi synti Erla
á 2,21 mínútu í fjórsundinu en
Ólympíulágmarkið er 2,19,68.
Erla hefur fulla trú á því að hún
geti náð lágmarkinu enda hefur
hún æft vel að undanförnu. „Ég
var í þessari sömu stöðu fyrir
Ólympíuleikana 2004 en þá
var ég aðeins 0,16 sekúndur frá
lágmarkinu,“ sagði Erla og var
engan billbug á henni að finna
enda aðeins 18 ára gömul og fer-
ill hennar rétt að byrja þrátt fyrir
langa afrekssögu. Hátindinn á
sundferlinum segir Erla vera
nóvembermetið hennar sem
hún setti í fyrra í 200m fjórsundi
en það var hennar fyrsta Íslands-
met í fullorðinsflokki. „Ég setti
metið í stuttu lauginni og synti
á 2.16.94 mínútum og svo á ég
líka metið í 400m bringusundi
en það er ekki ólympíugrein,“
sagði Erla sem á einnig fjöldann
af metum í yngri flokkum sem
standa enn í dag.
2008 er afmælisárið
Ólympíuleikarnir í Peking fara
fram árið 2008 en það ár verður
stórt í lífi Erlu þar sem hún
verður 20 ára, mun útskrifast frá
FS og ætlar sér að vera komin
með þátttökurétt á leikunum.
Til þess að svo megi verða
leggur Erla hart að sér í námi
þessa stundina svo lokaönnin
hennar við FS verði í rólegri
kantinum og hún geti einbeitt
sér að sundinu. Hvað vill Erla
hafa afrekað á sundferlinum
þegar honum lýkur? „Þegar ég
hætti vil ég vera búin að setja Ís-
landsmet í öllum mínum bestu
greinum og hafa keppt á Ólymp-
íuleikum, á leikunum væri svo
ekki slæmt að hafa komist í úr-
slit eða undanúrslit,“ sagði Erla
en fékkst ekki til að fullyrða
að hún stefndi á verðlaunapall
meðal þeirra bestu. Á næstunni
fara nokkrir sundmenn á vegum
ÍRB til Darmstadt í Þýskalandi
og keppa þar í móti þar sem
markmiðið verður að afla sér
frekari keppnisreynslu, eftir það
tekur við Íslandsmeistaramótið.
Erla er hógvær en ákveðin sund-
kona sem á örugglega eftir að
láta frekar að sér kveða þegar
fram líða stundir. Aðeins 18 ára
gömul hefur hún skákað bestu
sundkonum landsins í 200m
fjórsundi og eflaust verða metin
fleirri áður en langt um líður.
Tæplega 600 krakkar á aldrinum 6-11 ára tóku þátt í KEA-Skyr mótinu í körfubolta sem fram fór í Smáranum og
Salaskóla í Kópavogi um síðustu helgi. Þetta var í níunda sinn
sem mótið er haldið og fer það stækkandi ár hvert.
Suðurnesjaliðin létu sitt ekki eftir liggja og hér sést hvar ung
Keflavíkurmær er komin í teig andstæðinganna og freistar þess
að skora. Í fyrra voru þátttakendur í mótinu um 500 talsins og
að sögn mótsstjórnar hjá Breiðablik fer kvenkynsþátttakendum
fjölgandi ár hvert og sögðu það vel.
������������ ������������������
� ��
� � ����������������������������������
� � ������ ������������������������������������������������������
� � ��������������������������������
� � ���������������������������� ���������������
����������
�������������������
�����������������������������
� � � � � � � � � � � � � � � �