Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.02.2007, Síða 30

Víkurfréttir - 15.02.2007, Síða 30
30 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR BOXVEISLA Í ÍSLAND-ÍRLAND Frægðarför til Darmstadt Um síðustu helgi gerðu ÍRB-liðar góða ferð til Darmstadt í Þýskalandi og komu aftur heim með 59 verðlaun í fartesk- inu. Alls fóru 19 sundmenn til Þýskalands frá Reykjanesbæ og höfnuðu í 2. sæti í liða- keppninni í mótinu. Fyrir árangurinn hlaut ÍRB 15 þúsund krónur í verðlaunafé en keppnisdagarnir voru tveir. Á fyrsta degi mótsins var ÍRB í 6. sæti keppninnar með 20 verðlaun en á seinni deginum fóru sundmenn ÍRB á kostum og lauk liðið keppni með 59 verðlaun og í 2. sæti mótsins. Alls tóku 37 lið þátt í mótinu en ÍRB landaði 26 gullverðlaunum, 18 silf- urverðlaunum og 15 bronsverðlaunum. Erla Dögg Haraldsdóttir var með stigahæsta afrek kvenna í mótinu fyrir gott 100m bringusund og litu margar góðar tímabætingar dagsins ljós í mótinu. Dæmi voru um það að sund- menn ÍRB væru að bæta sig um 10-14 sek- úndur og ljóst að Vatnaveröldin er að skila félaginu enn betri árangri í 50 metra lauginni. Erla Dögg vann til flestra verðlauna í mótinu hjá ÍRB með sex gull og eitt silfur. Davíð Hildi- berg Aðalsteinsson var með 3 gull, 3 silfur og 2 brons, Soffía Klemenzdóttir 3 gull og 3 brons, Helena Ósk Ívarsdóttir 3 gull og 1 silfur og Birkir Már Jónsson 1 gull, 3 silfur og 1 brons. Sannarlega glæsilegur árangur. REYKJANESBÆ Símun, Marco og Nicolai semja við Keflavík Knattspyrnumennirnir Marko Kotilainen og Nicolai Jörgen- sen gerðu á föstudag eins árs samning við knattspyrnulið Keflavíkur og munu leika með þeim á næstu leiktíð. Marko og Nicolai hafa verið að æfa með Keflavíkurliðinu að und- anförnu og sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari liðs- ins, að leikmennirnir væru til þess fallnir að fylla stöður hægri og vinstri kantmanna sem og vinstri bakvarðar og að liðið hefði verið að leita að styrkleika í þær stöður. Eins og sakir standa er ekkert því til fyrirstöðu að Keflavíkur- liðið tefli fram sama hóp og á síðustu leiktíð að Magnúsi Þormari frátöldum sem geng- inn er í raðir Stjörnunnar. Enn hafa ekki bortist tilboð í Jónas Guðna Sævarsson og Baldur Sigurðsson sem báðir hafa nýlega verið á reynslu hjá norskum úrvalsdeildarliðum. Þá skrifaði Símun Samuelsen einnig undir nýjan samning við Keflavík á fimmtudag og er samningurinn til tveggja ára. Símun er færeyskur lands- liðsmaður og því mikill fengur fyrir liðið að hann hafi ákveðið að framlengja við félagið. Systurnar í landsliðið Þær Björg Ásta og Guðný Petrína Þórðardættur verða í æfingahópi A-landsliðs kvenna í knattspyrnu um helgina þegar liðið leikur æfingaleik ásamt því að stunda æfingar. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari liðsins, hefur valið 27 leikmenn til æfinga með hópnum. Þá var Mist Elíasdóttir einnig valin í hópinn úr röðum Keflavíkur en hún er markvörður. „Þeir eru rosa- legir bardaga- hundar,“ segir Guðjón Vilhelm Sigurðsson um írsku boxarana. Á laugardagskvöld verður hnefaleikaveisla í Reykja-nesbæ þegar 15 írskir hnefaleikamenn mæta liði Reykjanesbæjar í nýju boxhöllinni sem áður var gamla sundhöllin. Von er á fullu húsi og hófst forsala aðgöngu- miða í dag hjá Kaffi DUUS. Guðjón Vilhelm Sigurðs- son, forstöðumaður Hnefaleikafélags Reykjaness, segir sína bardagamenn klára í slaginn og að bardagar Íslend- inga og Íra séu þeir allra hörðustu því hnefaleikakappar þessara landa vilji sækja, ekki verjast. Unglingahópar liðanna hefja keppni á laugardag kl. 14 og stendur hún til kl. 17. Um dag- inn verður einnig kynning á starfi félagsins í nýjum og glæsi- legum húsakynnum. Um kl. 20 hefjast svo aðalbardagarnir og þá verður selt inn. Miðaverð í forsölu er kr. 1500 en við inn- ganginn mun kosta kr. 1900 inn. „Við ætlum að koma 350 manns inn í húsið og skapa skemmtilega og ógleymanlega stemmningu. Það verður talað um þennan viðburð næstu vik- urnar,“ sagði Guðjón í samtali við Víkurfréttir. „Það eru efni- legir strákar að koma upp og við tjöldum nýrri línu af boxurum á laugardag. Þar á milli eru strákar sem munu láta vel að sér kveða í framtíðinni og því um að gera að byrja að fylgjast með þeim frá upphafi,“ sagði Guðjón sem gat vart leynt spennu sinni fyrir laugardeginum en hann er ekki einn um það að vera spenntur. „Ég hef verið í nokkuð reglu- legu sambandi við Írana og það er einnig mikil spenna í þeirra herbúðum. Þar er að finna marga góða boxara og þeir eru ekkert að grínast þegar þeir stíga í hringinn. Þeir eru rosalegir bardagahundar.“ Keppt verður í ólympískum hnefaleikum þar sem sigur fæst með flestum höggum og einnig á rothöggum eða tæknilegum rothöggum. „Bæði lið hafa verið að æfa vel að undanförnu og ég er klár á því að það verði uppselt hjá okkur svo það er um að gera að næla sér í miða í tæka tíð. Ég hef farið víða í boxinu og full- yrði að það er hvergi betri stuðn- ingur við hnefaleika en í Reykja- nesbæ, jafnvel allri Evrópu. Við náðum t.d. 3500 manns í Laugardalshöllina á sínum tíma og ég veit að þar voru rúmlega 2000 Suðurnesjamenn,“ sagði Guðjón sem tekur á móti Írum á föstudag og þá fá þeir einn dag til að æfa í boxhöllinni. Guðjón skoraði á Suðurnesja- menn að mæta á laugardags- kvöld. „Það er tilvalið að fara í Höllina og sjá Keflavíkurkonur verða bikarmeistarar og koma svo heim og upplifa flugeldasýn- inguna með okkur.“

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.