Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2017, Qupperneq 49

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2017, Qupperneq 49
fólk - viðtal 25Helgarblað 17. nóvember 2017 É g byrjaði að drekka tólf ára gamall. Ég og skólafélagarnir vorum að fikta við áfengi. Ég fann það strax að áfengi væri eitthvað sem hentaði mér því mér leið svo vel þegar ég drakk. Ég man hvað mér fannst það gaman,“ segir Smári. Smári stundaði íþróttir af kappi. „Íþróttirnar unnu á móti drykkjunni. Þegar ég var ungling- ur drakk ég stanslaust um helgar en ég var í góðu líkamlegu formi. Þegar keppnistímabilið í fótbolt- anum stóð yfir þá dró ég úr drykkj- unni.“ Þrettán ára drakk Smári um hverja einustu helgi. „Ég mætti þunnur í fermingarfræðsluna. Á kirkjubekknum fyrir framan mig sátu kærasta mín og vinkon- ur hennar. Ég ældi yfir þær og það varð gríðarlegt uppnám. Ég ældi einnig á stéttina fyrir utan kirkjuna. Þegar presturinn var að kveðja okkur unglingana þá stóð hann í ælunni. Helgina eftir, í næstu fermingarfræðslu, var ekki búið að þrífa upp æluna og lyktin var viðbjóðsleg. Mamma grátbað mig um að hætta að drekka en mér fannst það ekki koma til greina. Drykkjan var komin til að vera.“ Varð háður verkjatöflum nítján ára Smári lenti í bílslysi þegar hann var nítján ára. Í kjölfarið fékk hann sterk verkjalyf sem hann varð fljót- lega háður. „Ég reyndi að vera í fót- boltanum en það var erfitt vegna bakverkja. Ég tók verkjatöflu fyrir allar æfingar og leiki. Síðan byrjaði ég að taka verkjatöflur þegar ég var að drekka.“ Smári kynntist einnig örvandi efnum á þessum tíma. „Í gegnum fótboltann kynntist ég Ripped Fuel. Það kom mér af stað fyrir leiki. Það er efedrín í Ripped Fuel og það er ólöglegt í dag. En það var mjög algengt að knattspyrnu- menn fengju sér Ripped Fuel fyrir leiki. Ripped Fuel fór mjög í skapið á mér og það var erfitt fyrir mig að spila fótbolta. Ég byrjaði að kaupa hreint efedrín og varð háður því. Ég gat varla farið á fætur á morgn- ana án þess að fá mér efedrín. Ef ég fór í skólann án þess að fá mér efedrín var dagurinn ónýtur. Þarna var strax farið að verða ljóst hversu mikill fíkill ég er. Ég misnotaði bæði áfengi og töflur. Ég áttaði mig ekki á því að ég ætti við vandamál að stríða fyrr en ég var 37 ára.“ Þróaði sjúkdóminn með sér Næstu átján árin drakk Smári. „Ég þróaði sjúkdóminn með mér. Þegar ég var yngri var ég alltaf með eitthvert vesen. Ég drakk of mikið og gerði eitthvað af mér. Með árunum sá ég að það gengi ekki að lenda sífellt í veseni þegar ég var að drekka. Ég lærði að drekka minna á skemmtistöðum og á meðal fólks. Ég hafði hemil á mér þar til ég var kominn heim og þá hellti ég í mig. Mesta drykkjan fór fram heima. Þar drakk ég þangað til ég sofnaði.“ Vildi frekar deyja Árið 2014 fékk Smári heiftar- lega áfengiseitrun heima hjá sér. „Ég hafði fengið nokkrar slæm- ar áfengiseitranir áður en þessi var sú versta. Ég varð allur gulur á litinn. Mér fannst eins og inn- yfli mín væru að brenna. Ég lá á gólfinu sárþjáður en þorði ekki að hringja á sjúkrabíl. Ég skammaðist mín svo mikið að ég vildi frekar deyja. Það kom ekki til greina að hringja á hjálp. Eftir áfengiseitrun- ina hugsaði ég með mér að ég ætti kannski við vandamál að stríða. Ég ætlaði að hætta að drekka í kjölfar- ið en gat það ekki.“ Smári reyndi oft að hætta að drekka eftir þessa áfengiseitrun en byrjaði alltaf aftur. „Ég hafði enga trú á mér og gafst upp að lok- um. Vonbrigðin urðu mikil þegar ég byrjaði að drekka aftur eftir að hafa hætt. Ég hætti við að hætta. Löngunin til að hætta var einfald- lega ekki til staðar. Mér fannst of gott að drekka.“ Smári hætti að drekka í tíu mánuði árið 2015. Hann segir að hann hafi ekki hætt fyrir sjálfan sig heldur systur sína. „Fríða syst- ir bað mig um að hætta að drekka. Ég hætti á hnefanum og var edrú í tíu mánuði. En ég hætti ekki fyrir mig sjálfan.“ Mikil vanlíðan Mikil vanlíðan fylgdi drykkjunni og Smári hefur glímt við þung- lyndi og kvíða í mörg ár. Hann fór til geðlæknis, sótti alls konar nám- skeið og fór í kvíðameðferð. Hann leitaði sífellt að að lyklinum að vellíðan. „Heilinn skemmist mjög af drykkju. Það vantar efni í líkamann og heilann sem ger- ir það að verkum að manni líður illa. Niðurtúrarnir voru langverst- ir. Ég var búinn að prófa margt til að láta mér líða betur. Árið 2006 fór ég á geðdeild Landspítalans og var þar í tvær vikur. Ég fékk einnig þunglyndislyf. Síðan þá hef ég verið í kvíðameðferðastöðinni, farið á Dale Carnagie-námskeið og námskeið hjá Lótushúsinu. Ég reyndi allt til að mér liði betur en mér datt aldrei í hug að hætta að drekka.“ Daglegur áfengisdauði „Ég drakk daglega í marga mánuði áður en ég fór í meðferð. Hvert einasta kvöld drakk ég þar til ég dó áfengisdauða. Ég gat ekki sofnað öðruvísi. Kvíðinn var orðinn svo mikill. Ef ég var ekki með áfengi í blóðinu þá var ég hræddur. Ég var óttasleginn við tilhugsunina um að þurfa að gera eitthvað.“ Þunglyndi og kvíði skullu yfir Smára í bylgjum. Hann upplifði bæði góða og slæma tíma. Í lokin voru tímarnir aðeins slæmir. „Ég náði botninum sumarið 2016. Ég var í draumanámi, upptökunámi hjá Stúdíó Sýrlandi. Ég var hættur að geta stundað námið. Oft komst ég ekki í skólann því ég var full- ur. Ég leyndi ástandinu gríðar- lega vel. Ég laug að ég hefði ekki fengið áframhaldandi námslán og hætti í námi. Á þessum tíma leið mér óskaplega illa. Ég vaknaði á morgnana og það fyrsta sem ég gerði var að hella í mig einum eða tveimur áfengum sykurdrykkjum. Síðan fékk ég mér bjór og því næst viskí. Stundum var ég í góðum gír og fór niður á pöbb. Þar fékk ég mér nokkra bjóra og fór svo aftur heim og drakk þar til ég sofnaði. Á þessum tíma fann ég að líkami minn var á síðustu metrunum.“ Smári lokaði á fjölskyldu sína og átti erfitt með að vera í ástar sambandi. „Allt sem ógn- aði drykkjunni var látið flakka. Ég hætti að tala við marga fjöl- skyldumeðlimi, fólk sem þykir vænt um mig og vildi hjálpa mér, en mér fannst ógna drykkjunni. Ég lokaði til dæmis alveg á Pálm- ar, bróður minn, því ég vissi að hann taldi mig eiga við vandamál að stríða. Sambönd fóru einnig í vaskinn vegna drykkjunnar. Kærustur mínar sáu flestar fljót- lega að ég átti við vandamál að stríða. Áfengi var eina ástin mín.“ Síðan Smári hætti að drekka hefur kvíðahnúturinn sem hann fann iðulega fyrir horfið. Ætlaði að fara í meðferð Sumarið 2016 hringdi Smári á Von SÁÁ í Efstaleiti. „Ég var í marga daga að manna mig upp í að hringja og fannst símtalið mjög erfitt. Allir svona litlir hlutir voru mikið mál. Ég hringdi og mér var sagt að göngudeildin væri lokuð. Það var nóg fyrir mig. Ég skellti á. Ég vissi ekki hvað göngudeild var eða hvað það þýddi að hún væri lokuð. Mér fannst mér vera hafn- að. Ég hringdi ekki aftur og ákvað að fara ekki í meðferð. Ég hafði reynt og það var nóg.“ Smári segir að hann hafi haldið áfram að drekka stíft. Venjulega var líðan hans sveiflukennd en í þetta sinn náði hann sér ekki upp. „Mér leið illa í marga mánuði. Mér fannst ég sökkva dýpra með hverjum deginum þannig að ég ákvað að fara á Vog í byrj- un október 2016. Ég gekk inn og bað um viðtal. Á fundinum var ákveðið að ég kæmi þar inn eftir nokkra daga, ástandið á mér var hrikalegt.“ Man ekki eftir fyrstu dögunum inni á Vogi Smári var í tíu daga á Vogi. Fyrst var hann á gjörgæsludeild þar sem hann var trappaður niður með lyfjum. „Ég man lítið sem ekkert eftir fyrstu dögunum. Þeir voru mjög erfiðir. Þegar ég byrjaði að ná áttum naut ég mín virkilega inni á Vogi. Þarna var öll lands- flóran. Það var svo mikið líf þar og mikið að gerast. Ég naut þess að vera þarna inni. Ég eignaðist strax góða vini og var mjög heppinn.“ Eftir tíu daga dvöl fór Smári heim í helgarfrí áður en hann fór í áframhaldandi meðferð á Staðar- felli. „Það var erfitt að fara aftur heim því þar fór mesta drykkjan fram. Ég sótti nokkra hluti heim til mín og fór svo til foreldra minna.“ Læra að vera edrú Smári var í mánuð á Staðarfelli. „Inni á Vogi fer maður í afvötnun og verður edrú. Á Staðarfelli lærir maður að vera edrú. Á þessum tíma lærði ég að drykkjan er mér æðri. Ég ræð ekki við hana. Drykkjan tekur öll völd frá mér. Á hverjum morgni þarf ég að minna mig á að ég er alkóhólisti og á hverju kvöldi þakka ég fyrir að vera edrú. Þetta þarf ég að gera á hverjum degi til að halda mér edrú.“ Smári óttaðist stimplun samfé- lagsins. „Ein ástæðan fyrir því að ég fór ekki fyrr í meðferð var sú að ég vildi ekki vera stimplaður sem fyllibytta og aumingi sem gæti ekki ráðið við drykkju sína. Það er auðvitað ekki rétt.“ Ekki AA-maður en edrú „Starfsemin inni á Vogi er oft og tíðum misskilin. Það sem kom Nýtt líf „Allt sem ég er að gera nú hefði ég ekki getað gert þegar ég var að drekka.“ Smári Guðmundsson er 38 ára tónlistar- og fjöllistamaður. Hann er í hljómsveitinni Klassart og var að skrifa sinn fyrsta söngleik, Mystery Boy. Smári er einnig alkóhólisti. Hann var einungis tólf ára gamall þegar hann byrjaði að drekka. Nítján ára varð hann háður verkjatöflum. Í einlægu viðtali við Guðrúnu Ósk Guðjónsdóttur ræðir Smári um alkóhólismann sem náði snemma tökum á lífi hans, baráttuna við þunglyndi og kvíða, vanlíðan sem fylgdi drykkjunni og ferlið sem leiddi til þess að hann varð edrú. Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrun@bleikt.is „Ég mætti þunnur í fermingar- fræðsluna. Á kirkju- bekknum fyrir framan mig sátu kærasta mín og vinkonur hennar. Ég ældi yfir þær og það varð gríðarlegt uppnám.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.