Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2017, Side 64

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2017, Side 64
40 menning Helgarblað 17. nóvember 2017 D auðinn er raunveru­ legur.“ Á þessum einfalda en sárs­ aukafulla sann­ leik hefst nýjasta plata Mount Eerie, A crow looked at me, ein áhrifaríkasta plata ársins að mínu mati – berstrípuð og átakanleg innsýn í tilfinningalíf syrgjandi ekkils skömmu eftir dauða sálu­ félagans. Hljóðtilraunir og poppaðar laglínur Í rúmlega tvo áratugi hefur Banda­ ríkjamaðurinn Phil Elverum gefið út tónlist undir listamannsnöfn­ unum The Microphones og síðar Mount Eerie. Hann er mikilvirkur og sérstakur tónlistarmaður, hlé­ drægur og sérvitur karakter sem hefur öðlast goðsagnakennt orð­ spor í indírokkheiminum og fáa en heittrúaða fylgjendur. Hann lifir rólegri og einangr­ aðri tilveru í heimabæ sínum, smábænum Anacortes í Wash­ ington­fylki, þar sem hann semur, tekur upp og gefur út mikið magn tónlistar (12 breiðskífur frá 1999), músík sem ferðast áreynslu­ laust frá hinu smáa og innhverfa yfir í það háværa og skítuga, frá abstrakt hljóðtilraunum að gríp­ andi indílaglínum. Hann hefur næmt poppeyra og í tregablöndn­ um söng sínum tekst honum oftar en ekki á einfaldan hátt að fanga ljóðræna fegurðina í smáatrið­ um hversdagslegra athafna sem speglast svo í hinum dýpstu til­ vistarspurningum og ægikrafti náttúrunnar – ætli það megi ekki kalla þetta djúpvisku hins næfa. Elverum hefur komið tvisvar til Íslands til að leika á tónleikum, árin 2005 og 2006. Í bæði skiptin kom með honum og spilaði, eig­ inkona hans, fransk­kanadíska tónlistarkonan og myndasögu­ teiknarinn Geneviève Castrée sem kom fram undir nöfnun­ um Woelv og O Paon. Við sem mættum til að sjá Mount Eerie fengum einnig að kynnast tónlist Geneviève, sem var líka áhuga­ verð, hún virkjaði einhvern hráan náttúrukraft í einföldum og barns­ legum söng sínum. Skömmu eftir að fyrsta dóttir þeirra hjóna fæddist árið 2015 greindist Geneviève með krabba­ mein í brisi og dró sjúkdómurinn hana til dauða í júlí í fyrra – en þá var hún 35 ára gömul. Það er þessi harmleikur sem áheyrendur fá að upplifa með Elverum á nýju plöt­ unni, að syrgja sálufélaga sinn og standa uppi sem einstæður faðir með ómálga barn. Varla tónlist Eðli málsins samkvæmt er platan, A crow looked at me, ekkert til­ finningalegt léttmeti – langt því frá. Lögin eru berstrípuð, yfirleitt bara kassagítar og rödd sem eru tekin upp með einum hljóðnema, en upptökurnar fóru víst flestar fram á kvöldin í næsta herbergi við sofandi dótturina. Gítarplokk­ ið er hljóðlegt, röddin og meló­ díurnar viðkvæmar, svo að á köfl­ um líður manni eins og Phil sitji grátbólginn og dofinn á rúmi sínu, strjúkandi strengi gítarsins og rau­ landi eitthvað út í loftið og inn á upptöku, hálfmelódíur og hverja þá hugsun sem skýtur upp í koll­ inn á honum – enda hefur hann sjálfur sagt í viðtölum að platan sé „varla tónlist.“ Textarnir eru í fyrsta skipti skrifaðir á undan lögunum og leika stærra hlutverk en oftast áður í tónlist Elverum. Lögin eru ekki um Geneviève heldur æpandi fjarveru hennar, holuna sem dauði ástvinar býr til í tilveruna. Nokkuð bókstaflega lýsa þeir tilf­ inningalífi, hugsunum og hvers­ dagslegum athöfnum ekkilsins vikurnar eftir fráfallið – stundum skondnum, stundum ljúf sárum, oft átakanlegum smáatriðum. Phil lýsir því hvernig hann forð­ ast herbergið þar sem hún lést, rifjar upp veikindin og síðustu stundir hennar, gengur frá fötun­ um hennar og lýsir því hvernig til­ finningin fyrir nærveru hennar dofnar og ljósmyndir taka smám saman yfir raunverulegar minn­ ingar. Hann lýsir sjálfum sér sem hólki utan um sögur af henni og veltir fyrir sér hvort fólki finnist ekki óþægilegt að hann tali ekki um annað en látna eiginkonu sína. Eins og opin dagbók gefa textarnir innsýn í hugsanir og til­ finningalíf í miðjum stormi sorgar­ innar, áður en syrgjandinn hefur farið í gegnum sorgarferlið, unnið úr tilfinningum sínum og sætt sig við þennan gang lífsins. Það sem gerir hana svo yfirþyrmandi er að þegar lögin eru samin er enn ekki komin nein „feel­good“ viska eða sniðugur lærdómur um dauðann – sorgin og guðlaus tómleikinn er algjör og heltakandi. Náttúruunn­ andinn Elverum reynir að sjá sam­ svörun í skógareldum sem geisa á sama tíma og eiginkonan deyr en finnur enga huggun í því að hugsa um eyðilegginguna. Örvæntingar­ fullt úthrópar hann náttúruna og dauðann sem er nauðsynlegur hluti af henni „Ég mótmæli náttúr­ unni, ég er ósammála,“ lýsir hann yfir í átakanlega vonlausum mót­ mælum. Það eru hins vegar skyldur hans og umhyggja gagnvart dótturinni sem neyðir hann til að halda áfram göngunni og lífinu, að halda áfram með sameiginlegan draum þeirra hjónanna um að flytja í fáfarna eyju úti á flóanum og byggja þar upp fjölskyldu. Tím­ inn byrjar sitt hjúkrunarstarf þrátt fyrir að hjartað streitist tregafullt á móti: „Smám saman öðlast ég aft­ ur sjálfsstjórn // En ég vil það samt ekki // og sviksemin spyr: // hver og hvernig á ég að lifa?“ Í loka­ laginu gengur Phil svo með dóttur sína á bakinu um svæðið þar sem skógareldurinn fór yfir nokkrum mánuðum áður. Þar sjá þau eina svarta kráku rísa upp úr bruna­ rústunum. Platan endar sem sagt á örlítilli von, upphafi af sátt. Ég efast um að margir muni hlusta oft og ítrekað á plötuna, hvorki renna henni í gegn í vinnunni eða með sunnudagskaff­ inu. Það er erfitt að hlusta og finna til, en tónlistin er gerð af örlæti, í henni eru raunverulegar og sterkar tilfinningar, sorg, heiftarlegur söknuður og óskaplega fegurð. Sungið til hinnar horfnu ástar Á undanförnum mánuðum hefur Phil Elverum ferðast um Evrópu og leikið lög af þessari nýjustu plötu sinni. Um síðustu helgi fékk ég að verða vitni að tónleikum hans í 17. aldar kirkjunni Les Brigittines í Brussel en allt hefur verið hreins­ að út úr byggingunni og henni breytt í tónleikastað. Elverum kom fram einn síns liðs með kassagítar í blóðrauðri birtu kirkjubyggingar­ innar, feimnislegur og viðkvæmur. Hann spilaði um helming lag­ anna af plötunni áður en hann sneri sér að nýrri lagasmíðum, sem halda þó áfram þaðan sem frá var horfið. Textadrifið uppgjör við frá­ fallið. Sem betur fer er tónninn í rödd Elverum líflegri og hann virðist nálgast hina sársaukafullu sátt sem er þó svo nauðsynlegur endapunkt­ ur. Hann leyfir sér að gera grín að eigin kaldhæðnislegu stöðu, hvern­ ig hann ferðast um og syngur dauða­ lög um eiginkona sína fyrir dópaða unglinga á tónlistarhátíðum. Frekar en ljóðræn óræðnin sem oft ein­ kenndi söng Elverum eru hér bók­ staflegar og nákvæmar lýsingar á at­ vikum og hugsunum. Í lögunum lýsir hann mót­ sagnakenndum tilfinningum, því hvernig hann nær smám saman nægri fjarlægð til að sjá að þótt harmur hans sé mikill sé hann ekki einstakur í mannkynssögunni – dauðinn og sorgin er hluti af lífi okkar allra. Það er ómögulegt að fylla í skarðið en það er um lítið annað að ræða en að sætta sig við það óhjákvæmilega – og halda áfram að lifa. Lögin syngur hann þó áfram til hennar, hinnar sönnu og eilífu ástar, Geneviève. n Dauðinn er raunverulegur Á nýjustu plötu Mount Eerie tekst Phil Elverum á við harmrænan dauða eiginkonu sinnar Átakanlegt andlát Elverum-fjölskyldan skömmu fyrir dauða Geneviève í fyrra. Sorgarferli einstæðs föður Bandarískri tónlistarmaðurinn Phil Elverum ásamt dóttur sinni, en á nýjustu plötu Mount Eerie syngur hann um andlát eiginkonu sinnar og barnsmóður. Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Tónlist A crow looked at me Flytjandi: Mount Eerie Höfundur: Phil Elverum Útgefandi: P.W. Elverum & Sun Útgáfuár: 2017

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.