Dagsbrún - 01.04.1893, Qupperneq 12

Dagsbrún - 01.04.1893, Qupperneq 12
—60— Israel I. bls. 22: „Það er öldungis víst, að gamla Testamentis frá- sögurnar um hið fyrsta ástand Gyðinga, eru á sainastigi, og sögurnar um hina fyrstu víðburði annara þjóðc. Aðalkjarni þeirra er nefni- lega þjóðsaga. Hinar yngri kynslóðir geymdu minningu mikilla manna og marKverða viðburði forfeðra sinna. Sögurnar gengu mann frá manni, og smátt og smátt urðu þær óvissari og ónákvæmari, auk þess bættust inn í þær aðrar sagnir.“ Seinna þegar á líður sögu Gyðinga, þá komum vér að hinni verulegu sögu, og er hún þó um langan tíma þjóðsögum blandin,en verður einlægt áreiðanlegri og áreiðanlegri eptir því, sem vér Kom- um lengra niður í tímann. Þar finnum vér og ýmsan skáldskap, hörpusöngva,kennsluljóð og söguljóð meira eða minna ágæt, æfi- sögur, lagasafn, orðsKviðasafn, ýmsar trúarskipanir og trúarátriði; þá kemur ýmist fram prédikarinn oða spámaðurinn og Ioks höfum vér þar heilan hóp af bréfum um trúarleg málefni. Örðugleiki að finna hið rétta ár, er einn eður annar atburð- ur sKeði kemur mjög opt fyrir. Eins og eðlilegt er, er það mjög áríðandi að vita, hvenær hin eða þessi bÓK var rituð. En þeirri spurningu þyKÍr lærðum mönnum harla torvelt að svara, og í sannleika að segja, þá játa þeir, að því sé alls ómögulegt að svara, um margar bækur ritningarinnar. Stafar þetta nokkuð af því, að Gyðingar voru fámenn og afskeKKt þjóð, og sáralítið minnst á hana 'í sögu eða bÓKmenntum annara þjóða, höfum vér því mjög litla fótfestu hjá öðrum þjóðum til þess, að miða niður við- burði í sögu Gyðinga, eða tíma þann, er ein eður önnur bÓK þeirra var rituð á. Svo bætist þar við, að allir rithöfundar þeirra virðast vera mjög kærulausir með ártöl öll. En mestu varðar þó það, að rit þeirra eru eklci framkomin á neinum sérstökum tíma, og eKKÍ heldur samin af neinum sérstÖKum höfundi, heldur eru þau flest samdráttur úr fornum skjölum. (Framhald næst.)

x

Dagsbrún

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/1272

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.