Dagsbrún - 01.11.1895, Blaðsíða 1

Dagsbrún - 01.11.1895, Blaðsíða 1
GILDI GAMLATESTAMEN.TISINS. (Athugasemclir við “Aldamói” 1893.) Framh. Þá liölduin vér áfram í fyrirlestrinmn — þessum makalausa bautasteini séra Friðriks — og rekum oss þá nœst á, að á bls. 55 er Davíð talinn fulltrúi Guðs. Ojæja, hann sýnir, hvaða boðskap hann liafði að flytja frá guði, eins og þegar hann hertók Rabba og aðrar borgir Ammonssona, eða þegar hann myrti Úria til jpess að ná í Batsebu konu hans. En svo á bls. 56 segir höf., að Davíð hafi vitað vel, að þær bænir sem hatrið stílar, væru í munni drottins smurða andstygð t'yrir guði. Þegar nú Davíð vissi, að guði voru andstyggi- iegar aðrar eins hænir og hann oft flutti fram fyrir guð, t. d. í 109. sálmi, sem vér komum með fvrir nokkru, því í ósköpunum var liann þá að biðja guð ? Var Davíð að biðja guð í þeim tiigangi, að verða sjálfur andstyggilegur í augum guðs ? Nei, það er ekki gott að eiga við það; það er ekki auðvelt að réttlæta Davíð, því að menn ienda þá ólijákvæmilega i þær ógöngur og flækjur, að úr því verður að eins endileysa og bull, eins og þetta. Svo fer nú höf. að líkja þeim saman, Davíð og Kristi, en þar er þó ólíkum saman að jafna. Höf. fyrirlestursins ógnar Davíð, hvað hann skuli vera hákarlalegur, og reynir svo að bæta fyrir honum með því, að sýna fram á, að Kristur lrnfi verið grimmur lílca, en með því að hvítþvo Davíð, svertir hann Krist. Þegar Davíð lyftist upp, sígur Kristur niður, og ég er alveg óviss um, að Kristur mundi hafa þakkað séra Friðrik fyrir þennan samanburð.

x

Dagsbrún

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/1272

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.